ALC krefst þess að fá þotuna til umráða

Deilan um kyrr­setn­ingu vélar ALC, sem var hluti af flug­flota WOW air, stendur enn.

Air Lease Corporation (ALC) eig­andi far­þega­þot­unnar TF-GPA, sem Isavia kyrr­setti vegna van­gold­inna lend­ing­ar­gjalda hins gjald­þrota WOW air, hefur lagt fram nýja aðfar­ar­beiðni hjá Hér­aðs­dómi Reykja­ness.

Í nýju beiðn­inni er þess kraf­ist að ALC fái full umráð þot­unnar, enda sé búið að greiða þau gjöld sem tengj­ast þot­unni beint, að því er segir í til­kynn­ingu frá ALC.

Í for­sendum úrskurðar Hér­aðs­dóms Reykja­ness, sem kveð­inn var upp 2. maí, segir að Isavia hafi verið „heim­ilt að hamla för flug­vél­ar­innar TF-GPA frá Kefla­vík­ur­flug­velli á meðan gjöld tengd þeirri flug­vél eru ógreidd en ekki vegna ógreiddra ann­arra gjalda WOW air hf.“

„For­sendur úrskurð­ar­ins geta því ekki verið mikið skýr­ari. ALC ákvað að greiða þau gjöld sem tengj­ast notkun TF-GPA í sam­ræmi við þær og fá í kjöl­farið full og ótak­mörkuð umráð þot­unnar,“ segir í til­kynn­ingu frá ALC.

Eins og fram hefur komið þá ætlar Isavia að kæra fyrri úrskurð Hér­aðs­dóm Reykja­ness, meðal ann­ars á þeirri for­sendu að ef nið­ur­staðan verður end­an­lega, þá geti grunnur fyrir gjald­töku á Kefla­vík­ur­flug­velli breyst með víð­tækum afleið­ingum.

Samkvæmt úrskurð­inum þá var heim­ilt að kyrr­setja vél­ina, en skuld ALC var 87 millj­ónir á meðan lend­ing­ar­gjalda­skuld WOW air var um tveir millj­arðar.

„For­svars­menn ALC telja sig þar með hafa greitt allt það sem Isavia getur mögu­lega notað sem ástæðu til þess að stöðva brott­för vél­ar­innar. Úrskurður hér­aðs­dóms hafn­aði því að Isavia gæti krafið félagið um að greiða öll van­greidd not­enda­gjöld WOW air. Sú afstaða Isavia að þrá­ast við er því í and­stöðu við nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms Reykja­ness og er að mati ALC bæði óbil­gjörn og með öllu ólög­mæt. Af þeim sökum eru stjórn­endur ALC til­neyddir að leita aftur til hér­aðs­dóms til að knýja á um að Isavia fylgi nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins. Kæra Isavia til Lands­réttar kemur ekki í veg fyrir að ALC fari fram á nýjan úrskurð um afhend­ingu sem tekur til­lit til þess að búið er að greiða allt sem teng­ist þot­unni. Staða máls­ins er breytt að því leyti. Isavia bar að afhenda far­þega­þot­una strax og for­sendum úrskurð­ar­ins hafði verið mætt. Í sam­skiptum við for­svars­menn Isavia hafa lög­menn ALC ítrekað reynt að fá leið­bein­ingar um mögu­leika sína á að leggja fram trygg­ingu, með fyr­ir­vara um lög­mæti. Því hefur í engu verið svarað. Það er alfarið á ábyrgð og áhættu Isavia að beita stöðv­un­ar­á­kvæði loft­ferða­laga og þar af leið­andi þeirra að upp­lýsa um mögu­leika ALC til að leysa þot­una úr haldi. Því hefur Isavia í engu sinnt. Bendir ALC á að það tók meira en 4 vikur að fá upp­lýs­ingar um gjöld WOW air sund­ur­liðað eftir far­þega­þotum. Þegar þau gögn voru loks afhent, þá voru þau með öllu óunnin. Það kom því í hlut ALC að greina gögnin til að kom­ast að nið­ur­stöðu um þau gjöld sem tengj­ast notkun TF-GPA beint,“ segir í til­kynn­ingu frá ALC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár