ALC greiði 87 milljónir en ekki tvo milljarða

Samkvæmt dómi Hér­aðs­dóms Reykja­ness mun kyrr­setn­ing Isavia á einni af vél­unum sem WOW air hafði á leigu ekki tryggja end­ur­greiðslu á lend­ing­ar­gjöldum.

Hér­aðs­dómur Reykja­ness hafn­aði í dag kröfu fyr­ir­tæk­is­ins ALC um að kyrr­setn­ingu Isavia á Airbus-þotu í eigu þess yrði aflétt. Þotan var kyrr­sett eftir fall WOW air, en hún var í flug­flota félags­ins.

Með kyrr­setn­ing­unni vildi Isavia tryggja að hægt væri að fá greiðslur upp í tveggja millj­arða skuldir WOW air á lend­ing­ar­gjöldum, sem söfn­uð­ust upp í aðdrag­anda falls félags­ins.

Það hefur nú verið tekið til gjald­þrota­skipta, en Sveinn Andri Sveins­son hrl. og Þor­steinn Ein­ars­son hrl. eru skipta­stjórar búss­ins.

Í dómnum er þessu hafnað einnig, og sagt að ALC þurfi ekki að greiða allar þessar skuldir, sem söfn­uð­ust upp hjá WOW air í aðdrag­anda falls félags­ins. Félagið þurfi ein­göngu að greiða þær skuldir sem tengj­ast þot­unni, sem eru um 87 millj­ónir en ekki tveir millj­arðar.

Í við­tali við RÚV segir Oddur Ást­ráðs­son, lög­maður ALC, að nið­ur­staðan sé merki­leg og að félagið muni freista þess að fá kyrr­setn­ing­unni aflétt, svo að eig­and­inn geti fengið hana til sín og nýtt hana til ann­arra verk­efna.

Isavia hefur enn ekk­ert gefið út um nið­ur­stöð­una, eða hvort henni verði áfrýjað til Lands­réttar.

Íslenska ríkið er eig­andi Isavia, sem rekur flug­vell­ina í land­inu, þar á meðal Kefla­vík­ur­flug­völl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár