Forsætisráðherra segir viðbragðsáætlun hafa virkjast við fall WOW air

Katrín Jak­obs­dóttir fékk upp­lýs­ingar um stöðu WOW air um mið­nætti í gær. Sér­stakur við­bragðs­hópur stjórn­valda fund­aði strax í morgun. Hún segir hag­kerfið vel í stakk búið til að takast á við þá áskorun sem fylgir því að WOW air hafi hætt starf­semi.

„Seint í gær­kvöldi hafði ég spurnir af því að þetta gæti horft til verri vegar,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra aðspurð um hvenær hún hefði fengið upp­lýs­ingar um stöðu WOW air, sem hætti starf­semi snemma í morgun.

[links]Katrín segir í sam­tali við Kjarnann að hún hefði fengið tölvu­póst um mið­nætti um að búið væri að kyrr­setja vélar WOW air í Kanada og Banda­ríkj­unum. Í tölvu­póst­inum voru líka upp­lýs­ingar um að nýir mögu­leikar væru til staðar hjá WOW air sem gætu tryggt áfram­hald­andi starf­semi flug­fé­lags­ins. „Snemma í morgun fékk ég stað­fest­ingu á því að það stefndi í að flug­fé­lagið myndi skila inn leyf­inu.“

Katrín segir að stjórn­völd hafi verið með sér­stakan við­bún­að­ar­hóp und­ir­búin mán­uðum saman ef að þessi staða kæmi upp. Það væri hluti af við­bragðs­á­ætlun stjórn­valda. Sá hópur var ræstur út og fund­aði strax í morgun en helsta hlut­verk hans er að koma far­þegum WOW air sem eru stranda­glópar á milli staða. Katrín segir að um sé að ræða um fjögur þús­und far­þega sem séu hér og þar í heim­inum.

[adspot]Á meðal þess sem hefur gerst það sem af er degi, sem er hluti af þeim við­brögðum, er að bæði Icelandair og Easy Jet bjóða nú upp á sér­stök kjör fyrir þá sem eru stranda­glópar með WOW air flug­miða í Evrópu eða Norður-Ameríku. Hjá Icelandair er boðið upp á sér­stök kjör á Economy Standard fyrir alla far­þega sem eiga miða heim frá 28. mars til 11. apríl. Fast gjald frá Evrópu eru 60 dalir með tösku, um 7.300 krónur fyrir utan skatta og gjöld, og frá Norður-Ameríku er það 100 dalir, um 12.200 krónur fyrir utan skatta og gjöld.

Kom ekki til greina að ríkið kæmi að WOW air

Fjöl­miðlar hafa greint frá því að und­an­förnu að WOW air hafi fal­ast eftir rík­is­að­stoð vegna stöðu sinnar og Skúli Mogensen, frá­far­andi for­stjóri og eig­andi WOW air, hefur vísað í þá aðstoð sem Icelandair hefur fengið í gegnum tíð­ina frá hinu opin­bera til að rök­styðja þá kröfu.

Katrín segir að það hafi ekki borist nein beiðni frá WOW air á loka­metr­unum í til­veru flug­fé­lags­ins um fjár­hags­að­stoð. Sam­skipti stjórn­valda við WOW air hafi að mestu farið fram í gegnum Sam­göngu­stofu og Isavia. „Það lá samt fyrir að stjórn­völd voru ekki að fara að setja opin­bert fé inn í þennan rekstur,“ segir Katrín.

Hún segir að farið hafi verið yfir hina svoköll­uðu Air Berlin- sviðs­mynd, en þýsk stjórn­völd stigu inn með fjár­magn þegar það félag var á leið­inni í þrot haustið 2017 og lögðu skipta­stjóra félags­ins til fé til að halda rekstr­inum gang­andi þangað til að Luft­hansa tæki yfir hluta hans. For­sæt­is­ráð­herra segir að það hafi hins vegar ekki þótt verj­andi að stíga inn í jafn áhættu­saman rekstur með þeim hætti og því hafi það ekki verið raun­hæfur val­kostur.

Áfall starfsfólks stóra málið

Aðspurð um hvort að búið sé að greina áhrifin á íslenska efna­hags­kerfið segir Katrín að það hafi verið fylgst vel með þróun mála. „Við teljum að hag­kerfið sé vel í stakk búið til að takast á við þessa áskorun. Stóra málið í mínum huga er áfallið sem starfs­fólk WOW air hefur orðið fyrir og aðrir sem byggt hafa afkomu sína á starf­semi flug­fé­lags­ins.“

Hún bendir á að það sé svig­rúm í rekstri rík­is­sjóðs, sem áætl­anir hafa gert ráð fyrir að skili umtals­verðum afgangi, til að takast á við breyt­ingar á tekjum hins opin­bera. Auk þess hafi verið ráð­ist í það í fyrra að hækka bætur úr ábyrgð­ar­sjóði launa og atvinnu­leys­is­bætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár