Leigu­sal­ar kyrrsettu vélar WOW air í nótt

Flug­vélar Wow air sem áttu að fljúga frá Banda­ríkj­unum í nótt lögðu aldrei upp frá flug­völlum vegna þess að leigusalar WOW air í Banda­ríkj­unum og Kanada létu kyrr­setja vél­arnir vegna van­efnda á leigu­samn­ingum.

Flug­vélar Wow air sem áttu að koma úr Amer­íkuflugi í nótt lögðu aldrei upp frá flug­völlum vest­an­hafs vegna þess leigusalar WOW air í Banda­ríkj­unum og Kanada létu kyrr­setja vél­arnir í nótt. Þetta herma heim­ildir Kjarnans.

Stuttu síðar kom til­kynn­ing frá WOW air að flug­fé­lagið væri á loka­metr­unum að klára hluta­fjár­aukn­ingu við nýjan eig­enda­hóp á félag­inu og að allt flug hefði verið stöðvað þar til þeir samn­ingar yrðu kláraðir. Á vef WOW air birt­ist síðan til­kynn­ing um átta leitið í morgun um að flug­fé­lagið hefði hætt starf­semi. WOW air skil­aði síðan flug­rekstr­ar­leyfi sínu til Sam­göngu­stofu klukkan átta í morgun

Á mbl.is er greint frá því sú vél sem kyrr­sett er á Kefla­vík­ur­flug­velli, eftir sam­komu­lagi WOW air og Isavia vegna van­gold­inna lend­ing­ar­gjalda flug­fé­lags­ins, sé í eigu ALC. En sam­kvæmt Morg­un­blað­inu voru það fyr­ir­tæk­in ALC, Tungnaa Aviati­on Leasing Lim­ited og Sog Aviati­on Leasing Lim­ited sem ákváðu að krefj­ast kyrr­setn­ing­ar á vél­um WOW air vegna van­efnda á leigu­samn­ing­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár