Allt flug verið stöðvað hjá WOW air - Fjárfesting sögð „á lokametrunum“

Flug hjá WOW air hefur verið stöðvað.

Allt flug hjá WOW air hefur verið stöðvað. Í til­kynn­ingu frá WOW air segir að félagið sé á „loka­metr­unum“ með að klára fjár­fest­ingu og fá nýjan eig­enda­hóp að félag­inu.

„WOW air er á loka­metr­unum að klára hluta­fjár­aukn­ingu við nýjan eig­enda­hóp á félag­inu. Allt flug hefur verið stöðvað þangað til þeir samn­ingar verða kláraðir. Nánari upp­lýs­ingar verða gefnar kl. 9. Félagið þakkar far­þegum fyrir stuðn­ing­inn og biðst vel­virð­ingar á þeim óþæg­indum sem þetta veldur.“

Und­an­farnar vikur hafa for­svars­menn WOW air reynt að bjarga félag­inu frá gjald­þroti, en kröfu­hafar tóku það yfir á mánu­dag, að mestu leyti, en síðan þá hefur verið unnið að því með ráð­gjöfum að fá nýja eig­endur að félag­inu.

Fjár­hags­staða WOW air er í molum, eins og fram hefur komið, og þarf félagið á millj­arða fjárinn­spýt­ingu að halda til að geta orðið starf­hæft til fram­tíðar. Rætt hefur verið um 40 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 5 millj­arða króna, í þeim efnum, en ekki er úti­lokað að það þurfi hærri fjár­hæðir til þess að tryggja rekstur félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár