Skúli: Ég mun aldrei geta fyr­ir­gefið sjálf­um mér

For­stjóri WOW air sendi bréfi til starfs­manna sinna í morg­un þar sem hann segir að hann muni aldrei geta fyr­ir­gefið sjálf­um sér fyr­ir að hafa ekki gripið til aðgerða fyrr.

Skúli Mogensen
Skúli Mogensen Mynd: Kjarninn.

„Ég mun aldrei geta fyr­ir­gefið sjálf­um mér fyr­ir að hafa ekki gripið til aðgerða fyrr þar sem það er aug­ljóst að WOW var ótrú­legt flug­fé­lag og við vor­um á réttri leið að gera frá­bæra hluti aft­ur.“

Þetta skrif­ar Skúli Mo­gen­sen, for­stjóri WOW air, í bréfi til starfs­manna sinna í morg­un eft­ir að til­kynnt var að starf­semi WOW yrði hætt. Mbl.is greinir fyrst frá.

[links]Far­þegum er bent á að kanna mögu­leika á flugi hjá öðrum flug­fé­lög­um, sem og er þeim bent á að hafa sam­band við Sam­­göng­u­­stofu.

Greint var frá því í nótt að öllu flugi hjá WOW a­ir hefði verið aflýst. Í til­­kynn­ingu frá flug­fé­lag­inu í nótt ­sagði að félag­ið væri á „loka­­metr­un­um“ með að klára fjár­­­fest­ingu og fá nýjan eig­enda­hóp að félag­in­u. Nú er hins vegar ljóst að það tókst ekki.

[adspot]

Vildi að meiri tími hefði verið til stefnu

Skúli seg­ist óska þess heit­ast að meiri tími hefði verið til stefnu og að hægt hefði verið að gera meira „þar sem þið öll eigið skilið svo miklu meira og mér þykir ákaf­lega leitt að setja ykk­ur í þessa stöðu.“

Hann skrif­ar að sama hvað verði sagt muni hann alltaf vera þakk­lát­ur fyr­ir að hafa unnið með svo „frá­bæru teymi og ég vona inni­lega að við get­um munað af­rek okk­ar sem braut­ryðj­end­ur í lággjalda­flug­rekstri og að hafa byggt upp ótrú­legt vöru­merki á met­tíma. Það í sjálfu sér er ekk­ert lítið af­rek sem þið ættuð öll að vera stolt af.“

Reyndu sitt besta allt til enda

Í lok bréfs­ins þakk­ar Skúli far­þegum WOW air sem hafi staðið með fé­lag­inu frá upp­hafi. Einnig þakk­ar hann sam­starfs­að­ilum um all­an heim sem og yf­ir­völd­um. „Við reynd­um öll okk­ar besta allt til enda.“

„Síðast en ekki síst vil ég þakka ykk­ur, mín­ir kæru vin­ir, fyr­ir stór­kost­leg­asta ferða­lag lífs míns. Við mun­um alltaf vera WOW og ég mun aldrei gleyma ykk­ur. Ég vona og treysti því að þið munið aldrei gleyma WOW-and­an­um og að þið takið hann með ykk­ur í ykk­ar næsta æv­in­týri.

Takk,“ skrifar Skúli til starfs­manna sinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár