Arion banki: Stöðvun WOW air hefur ekki „veruleg bein áhrif“ á afkomu

Arion banki er einn af stærri kröfu­höfum WOW air, sem til­kynnti í morgun að fyr­ir­tækið hefði hætt starf­semi. Bankinn hefur þegar sent til­kynn­ingu í Kauphöll vegna áhrifa sem stöðvun á rekstri WOW air hefur á afkomu hans.

Arion banki var skráður á markað í fyrra.
Arion banki var skráður á markað í fyrra. Mynd: Nasdaq Iceland

„Í ljósi umfjöll­unar í fjöl­miðlum um mál­efni WOW Air og skuld­bind­ingar félags­ins við Arion banka vill bank­inn taka fram að stöðvun rekstrar WOW Air mun ekki hafa veru­leg bein áhrif á rekstr­ar­af­komu bank­ans að teknu til­liti til ann­arra þátta í rekstri bank­ans. “

Þetta er meðal þess sem fram kemur í til­kynn­ingu frá Arion banka til Kaup­hallar Íslands í morgun. Ástæða til­kynn­ing­ar­innar er að WOW air greindi frá því snemma í morgun að fyr­ir­tækið hefði hætt rekstri. Arion banki er á meðal kröfu­hafa WOW air.

Í til­kynn­ing­unni segir enn fremur að: „Arion banki verður fyrir ein­skiptis­kostn­aði vegna þessa atburðar sem hefur ekki bein áhrif á reglu­legar tekjur og almennan rekstr­ar­kostnað bank­ans. Óvíst er um áhrif þess að WOW Air hættir starf­semi á ferða­þjón­ustu og íslenska hag­kerfið í heild. Fjár­hags­leg mark­mið bank­ans til næstu ára, t.a.m. varð­andi þróun eig­in­fjár, eru óbreytt.“

Hver sá ein­skiptis­kostn­aður verður mun vænt­an­lega koma fram þegar afkoma Arion banka fyrir fyrsta árs­fjórð­ung verður birt 8. maí 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár