Wow air hættir starfsemi

Flug­fé­lagið Wow air hefur hætt starf­semi. Til­kynn­ing þessa efnis birt­ist á vef félags­ins upp úr klukkan átta í morgun.

Flug­fé­lagið Wow air hefur hætt starf­semi. Til­kynn­ing þessa efnis birt­ist á vef félags­ins upp úr klukkan átta í morgun. Öll flug félags­ins falla niður. Farþegum er bent á að kanna mögu­leika á flugi hjá öðrum flug­fé­lögum og að hafa sam­band við Sam­göngu­stofu.

Greint var frá því í nótt að öllu flugi hjá WOW air hefði verið aflýst. Í til­kynn­ingu frá flug­fé­lag­inu í nótt sagði að félagið væri á „loka­metr­un­um“ með að klára fjár­fest­ingu og fá nýjan eig­enda­hóp að félag­in­u. Nú er hins vegar ljóst að það tókst ekki.[adspot]

Leiðbeiningar til farþega

Sam­göngu­stofa hefur birt til­kynn­ingu á vef sínum um upp­lýs­ingar til far­þega WOW air. Farþegum er bent á að kanna mögu­leika á flugi hjá öðrum flug­fé­lögum. Farþegum sem keyptu flug­miða með kredit­korti er bent á að hafa sam­band við útgef­anda korts­ins til að kanna mögu­leika á að fá flug­mið­ann end­ur­greiddan.

Jafn­framt er far­þegum sem keyptu ferð­ina af evr­ópskum ferða­skipu­leggj­anda sem seldi flug­mið­ann sem hluta af svo­kall­aðri alferð bent á að þeir eigi rétt á heim­flutn­ingi á grund­velli sam­evr­ópskra reglna um alferðir. Farþegum er bent á að hafa sam­band við þann ferða­skipu­leggj­anda sem þeir keyptu ferð sína af.

Í til­kynn­ing­unni segir að far­þegar kunni jafn­framt að eiga kröfu á hendur WOW air , meðal ann­ars á grund­velli reglu­gerðar um rétt­indi flug­far­þega. „Þegar um gjald­þrot er að ræða þarf að lýsa slíkum kröfum í þrotabú flug­rek­and­ans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár