Sjálfstæðisflokkurinn nú með formennsku í helmingi fastanefnda

Jón Gunn­ars­son tók í morgun við for­mennsku í umhverfis- og sam­göngu­nefnd. Stjórn­ar­þing­maður lagð­ist á sveif með þorra and­stöð­unnar gegn þeirri til­lögu en Mið­flokk­ur­inn og einn óháður stjórn­ar­and­stöðu­þing­maður gengu til liðs við stjórn­ar­meiri­hlut­ann.

Jón Gunnarsson er nú orðinn formaður umhverfis- og samgöngunefndar.
Jón Gunn­ars­son er nú orð­inn for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Eftir að Jón Gunn­ars­son tók við for­mennsku í umhverfis- og sam­göngu­nefnd á fundi hennar í morgun liggur fyrir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stýrir nú helm­ingi allra fasta­nefnda á Alþingi. Fyrir hafði flokk­ur­inn for­mennsku í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd, þar sem Páll Magn­ús­son er for­maður, í efna­hags- og við­skipta­nefnd, þar sem Óli Björn Kárason gegnir for­mennsku, og í utan­rík­is­mála­nefnd, þar sem for­mað­ur­inn er Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir.

Hinir tveir rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafa ein­ungis for­mennsku í sitt­hvorri fasta­nefnd­inni. Lilja Rafney Magn­ús­dóttir situr sem for­maður fyrir Vinstri græn í atvinnu­vega­nefnd og Willum Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, er for­maður fjár­laga­nefndar.

Samkvæmt sam­komu­lagi milli stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu fengu flokk­arnir sem sitja í minni­hluta for­mennsku í þremur nefndum við upp­haf þing­starfa í kjöl­far síð­ustu kosn­inga.

[adspot]Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir gerðu þá með sér sam­komu­lag sem í fólst að Sam­fylk­ingin myndi stýra stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd á fyrri hluta kjör­tíma­bils, en Píratar á síð­ari hluta þess. Píratar fengu á móti for­mennsku í vel­ferð­ar­nefnd á fyrri hluta kjör­tíma­bils en sú for­mennska fer yfir til Sam­fylk­ing­ar­innar á síð­ari hluta þess.

Þriðji stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn, Mið­flokk­ur­inn, fékk svo for­mennsku í umhverfis- og sam­göngu­nefnd. Í þann for­manns­stól sett­ist Bergþór Ólason.

Vildu ekki að Klaustursmenn stýrðu nefndum

Bergþór var einn sex­menn­ing­anna sem sat við drykkju á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og hafði sig einna mest frammi við að láta níð og gíf­ur­yrði, sum hver klám­fengin, falla um meðal ann­ars aðra stjórn­mála­menn, sér­stak­lega konur.

Hann fór í leyfi frá störfum eftir að málið var opin­berað vegna upp­töku Báru Hall­dórs­dóttur af sam­tali sex­menn­ing­anna en snéri aftur, ásamt Gunnari Braga Sveins­syni, til þing­starfa 24. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Fyrsti fundur umhverfis- og sam­göngu­nefndar eftir end­ur­komu Bergþórs var hald­inn 29. jan­úar. Ljóst var fyrir fund­inn að mikil and­staða var hjá hluta nefnd­ar­manna, og hluta þing­heims alls, við það að einn af þeim sem sátu á Klaustri myndi gegna nefnd­ar­for­mennsku. Það væri ekki boð­legt að slíkur stýrði nefnd sem þyrfti að boða allskyns gesti fyrir sig og vinna með öllum þing­mönnum.

Á fund­inum var lögð fram til­laga um að Bergþór myndi víkja sem for­maður. Þeirri til­lögu var vísað frá af meiri­hluta nefnd­ar­innar. Það var rök­stutt með því að það hlyti að vera mál stjórn­ar­and­stöð­unnar að ákveða hvernig hún skipti á milli sín for­mennsku í nefndum sem hún hefði for­mennsku í.

Enginn vilji er hjá þorra stjórn­ar­and­stöð­unnar að taka upp sam­komu­lag um skipt­ingu for­mennsku­emb­ætta, meðal ann­ars vegna þess að innan hennar er hræðsla við að Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjart­ar­son, nú þing­menn utan flokka, muni ganga til liðs við Mið­flokk­inn og gera hann að stærsta stjórn­ar­and­stöðu­flokknum. Samkvæmt hefð fengi hann þá að velja fyrstu milli for­mennsku í þeim þremur nefndum sem standa stjórn­ar­and­stöð­unni til boða. Og full­trúar Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar vilja alls ekki að það ger­ist, þar sem þeir ótt­ast að þá muni Mið­flokk­ur­inn taka við for­mennsku í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, einni valda­mestu nefnd þings­ins.

Kosið eftir nýjum víglínum

Aftur dró til tíð­inda í umhverfis- og sam­göngu­nefnd þegar Bergþór Ólason las upp yfir­lýs­ingu við upp­haf fundar þar sem hann til­kynnti að hann myndi víkja sem for­maður. Krafa hafði verið uppi hjá meiri­hluta stjórn­ar­and­stöð­unnar að Mið­flokk­ur­inn myndi ein­fald­lega skipa annan þing­mann flokks­ins, sem hafði ekki verið á Klaustri í nóv­em­ber, sem nýjan for­mann nefnd­ar­innar.

[adspot]Ekki var vilji til þess hjá Mið­flokknum. Því lagði Helga Vala Helga­dóttir, fyrir hönd minni­hlut­ans, fram til­lögu um að Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar, yrði for­maður nefnd­ar­innar. Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, studdi þá til­lögu. Það gerðu hins vegar aðrir full­trúar stjórn­ar­flokk­anna, Bergþór og Karl Gauti, sem situr líka í nefnd­inni, ekki.

Því skap­að­ist sú staða að ný víg­staða skap­að­ist, sem var ekki eftir stjórnar- og stjórn­ar­and­stöðu­línum. Ari Trausti Guð­munds­son, hinn full­trúi Vinstri grænna í nefnd­inni, studdi til að mynda ekki ofan­greinda til­lögu.

Þess í stað var lögð fram ný til­laga um að Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, myndi taka tíma­bundið við for­mennsku í nefnd­inni. Ari Trausti tók við sem 1. vara­for­maður og Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, verður 2. vara­for­maður.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, hafði raunar spáð þess­ari nið­ur­stöðu í stöðu­upp­færslu sem hún birti á Facebook í gær. Þar sagði hún meðal ann­ars að meiri­hlut­inn á Alþingi væri að not­færa sér „óþol okkar fyrir Berg­þóri Ólafs­syni í for­manns­stóli með því að taka til sín stól­inn og setur þangað Jón Gunn­ars­son, skugga­sam­göngu­mála­ráð­herra Íslands.“

Þessa til­lögu studdu allir stjórn­ar­þing­menn í nefnd­inni utan Rósu Bjarkar auk Bergþórs og Karls Gauta. Í stað þess að halda for­mennsku í umhverfis- og sam­göngu­nefnd, með því að skipa annan þing­mann sinn í emb­ættið, studdi Mið­flokk­ur­inn það að þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins fengi for­manns­sætið. Sem þýðir að sá flokkur stýrir nú helm­ingi allra fasta­nefnda á þingi.

Til við­bótar fer Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með fimm af ell­efu ráð­herra­stólum, eða 45 pró­sent allra ráðu­neyta. Þar á meðal er fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, stýrt af Bjarna Bene­dikts­syni, sem heldur utan um rík­is­budd­una og hefur því áhrif á það fjár­magn sem fer til allra hinna ráðu­neyt­ana.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 25,3 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum og mæld­ist með 23,4 pró­sent fylgi í síð­ustu könnun Gallup á fylgi stjórn­mála­flokka.

„Afstaða hins nýja meirihluta liggur nú fyrir“

Upp­lýs­inga­full­trúi Vinstri grænna sendi til­kynn­ingu fyrir hönd flokks síns, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks vegna for­mennsku í umhverfis- og sam­göngu­nefnd, í morgun eftir að nið­ur­staða lá fyrir um að Jón myndi taka við for­mennsku hennar.

Þar sagði að umhverfis- og sam­göngu­nefnd hefði verið óstarfs­hæf um tíma og að það hefði truflað störf Alþingis. Þing­flokks­for­menn hefðu leitað leiða til að vinna úr stöð­unni en það hefði ekki skilað árangri. Mið­flokk­ur­inn hafi auk þess heldur ekki viljað skipta um sinn full­trúa í nefnd­inni.

[links]Í til­kynn­ing­unni segir síða að að sé hluti af ábyrgð þeirra sem hafi meiri­hluta á Alþingi að tryggja að störf þings­ins geti gengið eðli­lega fyrir sig. Því hafi þing­menn stjórn­ar­flokk­anna talið eðli­legt að kjósa Jón sem for­mann á meðan að ekki næð­ist sam­komu­lag um annað fyr­ir­komu­lag. „Það er öllum ljóst að um tíma­bundna lausn sé að ræða til að koma störfum nefnd­ar­innar í rétt horf. Ef og þegar aðstæður breyt­ast eru stjórn­ar­flokk­arnir reiðu­búnir að end­ur­skoða þessa stöðu og telja raunar mik­il­vægt að slíkt end­ur­mat eigi sér stað fyrir þing­lok. Þar sem hér er um tíma­bundna ráð­stöfun að ræða líta stjórn­ar­flokk­arnir ekki svo á að taka þurfi upp allt sam­komu­lag stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu um for­mennsku í fasta­nefndum Alþingis að svo stöddu.“

Til­kynn­ingin var send út í nafni allra þriggja stjórn­ar­flokk­anna þrátt fyrir að Rósa Björk, annar nefnd­ar­maður Vinstri grænna í nefnd­inni, hefði ekki stutt til­lög­una um að gera Jón að for­manni hennar.

Síðar í dag var send út til­kynn­ing frá Sam­fylk­ingu, Pírötum, Viðreisn og Flokk fólks­ins vegna for­mann­skipta í umhverfis- og sam­göngu­nefnd. Þar lýstu flokk­arnir fjórir yfir „miklum von­brigðum með að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir VG, Sjálf­stæð­is­flokkur og Framsókn, hafi stutt til­lögu Mið­flokks­ins sem lagði til brot á sam­komu­lagi stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu um skipt­ingu á for­mennsku í nefndum.“

Full­trúar minni­hlut­ans hefðu marg­sinnis lagt til að Mið­flokkur til­nefndi ein­hvern þeirra þriggja þing­manna flokks­ins sem ekki höfðu tekið þátt í sam­kom­unni á Klaustri í for­manns­stól­inn eða að for­manns­emb­ættið færð­ist til á næsta flokk í stjórn­ar­and­stöð­unni, sem væri Viðreisn, á meðan Mið­flokk­ur­inn leysti ekki úr sínum málum. „Fulltrúi Mið­flokks kaus hins vegar að leggja til að for­mennska færi heldur til stjórn­ar­liða sem meiri­hlut­inn sam­þykkti[...]Afstaða hins nýja meiri­hluta liggur nú fyrir. Stjórn­ar­flokk­arnir nýta sér þær for­dæma­lausu aðstæður sem uppi eru og varða virð­ingu Alþingis og störf til að ganga á bak orða sinna varð­andi sam­komu­lag við stjórn­ar­and­stöð­una um skipt­ingu for­mennsku í nefndum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár