Þórhildur Sunna: Verið að refsa stjórnarandstöðunni fyrir gjörðir Miðflokksmanna

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður, Pírata segir í færslu á Facebook að stjórn­ar­meiri­hlut­inn sé að refsa stjórn­ar­and­stöð­unni.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, segir að meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks, sé að láta stjórn­ar­and­stöð­una gjalda fyrir Klaust­urs­málið og sér­stak­lega fram­ferði Mið­flokks­manna, með því taka yfir for­mennsku í umhverfis- og sam­göngu­nefnd, sem Bergþór Ólason hefur gengt.

Í færslu á Facebook, í til­efni af mót­mælum Þór­hildar Sunnu og Björns Levís Gunn­ars­sonar, félaga hennar í þing­flokki Pírata, segir hún að henni hafi ofboðið fram­ganga þing­meiri­hlut­ans. Hún og Björn Léví voru gagn­rýnd af sitj­andi for­seta Alþingis, fyrir að standa með „Fokk ofbeldi“ húfur við hlið Bergþórs þegar hann flutti ræðu á Alþingi í gær.

Færsla Þór­hildar Sunnu fer hér á eftir í heild sinni:

„Í þrjár vikur hafa störf umhverfis og sam­göngu­nefndar verið í upp­námi vegna afstöðu­leysis meiri­hlut­ans gagn­vart for­mennsku Bergþórs Ólafs­sonar í nefnd­inni. Stjórn­ar­meiri­hlut­inn hefur ekki þorað að taka afstöðu í mál­inu í allan þennan tíma þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir minni­hlut­ans til þess að finna ásætt­an­lega lausn í mál­inu. Nú hefur meiri­hlut­inn tekið ákvörðun um að hirða eitt þriggja for­mannemb­ætta minni­hlut­ans af honum til sín, í hendur skugga­sam­göngu­mála­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Jóns Gunn­ars­sonar. Hér er verið að refsa stjórn­ar­and­stöð­unni fyrir gjörðir Mið­flokks­manna.

Á sama tíma fær Brynjar Níelsson að spúa kvenn­fyr­ir­litn­ing­ar­tali um víðan völl án við­náms frá stjórn­ar­meiri­hlut­anum. Katrín Jak­obs­dóttir, jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, sam­þykkir með þögn sinni að það sé í lagi að Brynjar Níelsson væni kon­urnar sem hafa sakað Jón Baldvin Hanni­bals­son um kyn­ferð­is­brot, um opin­bera smánun. Að þær vilji bara meiða hann. Að þær fari offorsi. Brynjar smættar brotin gegn þessum hug­rökku konum, gerir lítið úr þeim með þöglu sam­þykki stjórn­ar­meiri­hlut­ans.

Eins fær Brynjar Níelsson að ráð­ast gegn þol­anda vændis í við­tölum við fjöl­miðla og reynir að kenna henni lex­íur í sjálfs­á­byrgð.

Við skulum ekki gleyma því að þetta er sami maður og sagði sem for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar að til væru verri brot gegn börnun en þau sem Róbert Downey framdi gegn Nínu Rún Bergs­dóttur, Höllu Ólöfu Jóns­dóttur, Glódísi Töru og Önnu Katrínu Snorra­dóttur.

Þetta er sami maður og hneyksl­að­ist opin­ber­lega á því að Hjalti Sigurjón Hauksson hefði misst vinnu sem rútu­bíl­stjóri þegar upp komst að hann hefði fengið lengsta dóm sem dæmdur hefur verið á Íslandi fyrir kyn­ferð­is­brot gegn barni.

Þetta er sami maður og sá sem for­maður stjórn­skip­unar- og efitr­lits­nefndar, hélt því fram að þau sem kröfð­ust upp­lýs­inga um upp­reist æru, þ.á.m. Bergur Þór Ing­ólfs­son, vildu bara berja á þeim sem veitt höfðu barn­a­níð­ing­unum Róberti Downey og Hjalta Sig­ur­jóni Hauks­syni með­mæli.

Þetta þykir stjórn­ar­meiri­hlut­anum í lagi. Þetta þykir þing­mönnum VG, sem að eigin sögn hafa femín­isma sem eina af sínum grunn­stoðum í lagi.

Menn sem tala ógeðs­lega um konur. Tala um þær sem skrokka, sem hluti, sem húrrr­andi klikk­aðar kuntur, sem apa­k­etti, sem vænd­is­konur sem þurfi bara að bera ábyrgð á sjálfum sér, sem konur sem vilja bara meiða karla sem brutu á þeim kyn­ferð­is­lega, fá að gera það óáreittir og án afleið­inga frá stjórn­ar­meiri­hlut­anum. ­

Þriggja vikna umræður um hvort Bergþór ætti að víkja úr for­manns­stóli höfðu engu skilað í gær vegna þess að stjórn­ar­meiri­hlut­inn var ekki til­bú­inn að fella hann úr stóli. Var ekki til­bú­inn að taka afstöðu gegn fram­komu Bergþórs.

Í gær hafði sú staða ekki breyst. Ég fyrir mitt leyti, hafði reynt mitt besta til að fá stjórn­ar­meiri­hlut­ann í lið með okkur en fékk nóg af þess­ari við­var­andi með­virkni með ofbeld­is­seggjum á Alþingi.

Á sama tíma beita þeir Mið­flokks­menn fyrir sig Per­sónu­vernd og dóm­stólum í víga­leik sínum gegn upp­ljóstr­ar­anum Báru, sem opin­ber­aði inn­ræti þeirra fyrir alþjóð. Á sama tíma lætur rík­is­sak­sókn­ari það eiga sig að rann­saka spill­ing­argort þeirra Gunnars Braga og Sig­mundar Davíðs.

Nú er komið í ljós að næst­besta staðan fyrir Mið­flokk­inn var valin af stjórn­ar­meiri­hluta­naum sem ákveður að refsa okkur í stjórn­ar­and­stöð­unni með því að setja sinn mann í for­mann­stól nefnd­ar­innar. Meiri­hlut­inn not­færar sér óþol okkar fyrir Bergþóri Ólafs­syni í for­manns­stóli með því að taka til sín stól­inn og setur þangað Jón Gunn­ars­son, skugga­sam­göngu­mála­ráð­herra Íslands.

Þannig græðir stjórn­ar­meiri­hlut­inn á Klaust­urs­mál­inu. Þeim finnst líka ekk­ert mál að Bergþór sitji áfram í stjórn nefnd­ar­innar og geti þannig stýrt fundum nefnd­ar­innar for­fall­ist Jón eða Ari Trausti. Ekkert mál.

Mér ofbauð og við Björn gripum til okkar ráða. Lái okkur hver sem vill.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár