Lýsa yfir vonbrigðum með að ríkisstjórnarflokkarnir hafi stutt tillögu Miðflokksins

Vegna for­manns­skipta í umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis lýsa fjórir flokkar yfir miklum von­brigðum með að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafi stutt til­lögu Mið­flokks­ins um skipt­ingu á for­mennsku í nefndum.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Vegna for­manns­skipta í umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis lýsa fjórir flokkar – Sam­fylk­ingin, Píratar, Viðreisn og Flokkur fólks­ins – yfir miklum von­brigðum með að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir VG, Sjálf­stæð­is­flokkur og Framsókn, hafi stutt til­lögu Mið­flokks­ins sem lagði til brot á sam­komu­lagi stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu um skipt­ingu á for­mennsku í nefndum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá flokk­unum fjórum sem send var út í dag.

Berg­þór Óla­son, þing­maður Mið­flokks­ins, steig til hliðar úr for­manns­sæti í umhverf­is- og sam­göngu­nefnd Alþing­is í morgun. Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók við for­mennsku í nefnd­inni tíma­bundið á meðan reynt er að finna lausn í mál­inu sem allir geta sætt sig við, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Vinstri græn­um, Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokkn­um sem send var til fjöl­miðla í morgun og fjallað var um á Kjarn­anum.

„Fyrir umhverfis- og sam­göngu­nefnd lágu tvær til­lögur enda ljóst að full­trúar Sam­fylk­ingar og Við­reisnar, auk Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur þing­manns VG og Björns Leví Gunn­ars­sonar, áheyrn­ar­full­trúa Pírata, töldu óásætt­an­legt að full­trúi Mið­flokks­ins gengi að trún­að­ar­störfum sínum á Alþingi sem vísum eftir fram­göngu sína á Klaustri eins og alræmt er. Krafa þeirra um for­manna­skipti hafði verið borin fram á síð­asta fundi nefnd­ar­innar en þá verið vísað frá af meiri­hlut­anum. Full­trúar minni­hlut­ans höfðu marg­sinnis lagt til að Mið­flokkur til­nefndi ein­hvern þeirra þriggja þing­manna flokks­ins sem ekki höfðu tekið þátt í sam­kom­unni á Klaustri,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá kemur fram að minni­hlut­inn hafi einnig ítrekað lagt til að for­manns­emb­ættið fær­ist til á næsta flokk í stjórn­ar­and­stöð­unni á meðan Mið­flokk­ur­inn leysir ekki úr sínum málum og lögðu því til að full­trúi Við­reisnar tæki við for­mennsku fyrir hönd minni­hlut­ans. Fulltrúi Mið­flokks hafi hins vegar kosið að leggja til að for­mennska færi heldur til stjórn­ar­liða sem meiri­hlut­inn sam­þykkti.

„Við for­manns­skiptin lágu fyrir tvær til­lögur um emb­ætti for­manns, 1. vara­for­manns og 2. vara­for­manns. Fyrri til­lagan var borin upp af full­trúa Sam­fylk­ingar, Helgu Völu Helga­dóttur, en sú seinni frá full­trúa Mið­flokks­ins, Bergþóri Ólasyni. Greidd voru atkvæði um hvert emb­ætti fyrir sig og í öllum til­fellum greiddu full­trúar stjórn­ar­flokk­anna þriggja, að Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur und­an­skil­inni, atkvæði með til­lögu Mið­flokks­ins sem fól í sér að öll emb­ættin færu til stjórn­ar­flokk­ana þriggja.

Afstaða hins nýja meiri­hluta liggur nú fyrir. Stjórn­ar­flokk­arnir nýta sér þær for­dæma­lausu aðstæður sem uppi eru og varða virð­ingu Alþingis og störf til að ganga á bak orða sinna varð­andi sam­komu­lag við stjórn­ar­and­stöð­una um skipt­ingu for­mennsku í nefndum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár