Bergþór hættir sem formaður í umhverfis- og samgöngunefnd

Bergþór Ólason hefur nú kosið að stíga til hliðar úr for­manns­sæti í umhverfis- og sam­göngu­nefnd en Jón Gunn­ars­son mun taka við for­mennsku tíma­bundið. Nefndin hefur verið óstarf­hæf um tíma og hefur það truflað störf á Alþingi.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, stígur til hliðar úr for­manns­sæti í umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis. Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mun taka við for­mennsku í nefnd­inni tíma­bundið á meðan reynt er að finna lausn í mál­inu sem allir geta sætt sig við. Ari Trausti Guð­munds­son tekur við sem 1. vara­for­maður og Líneik Anna Sæv­ars­dóttir verður 2. vara­for­maður.

[links]Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Vinstri grænum, Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum.

Í henni kemur jafn­framt fram að umhverfis- og sam­göngu­nefnd hafi nú verið óstarf­hæf um tíma og hafi það truflar störf Alþingis. Ekki hafi verið fundað í nefnd­inni síðan 29. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þing­flokks­for­menn allra flokka hafi leitað leiða til að vinna úr stöð­unni, án árang­urs.

Samkvæmt sam­komu­lagi um nefnd­ar­for­mennsku minni­hlut­ans kom þessi nefnd­ar­for­mennska í hlut Mið­flokks­ins en fflokk­ur­inn hefur ekki viljað skipta um sinn full­trúa í nefnd­inni.

„Hluti af ábyrgð þeirra sem hafa meiri­hluta á Alþingi er að tryggja að störf þings­ins geti gengið eðli­lega fyrir sig. Því telja þing­menn stjórn­ar­flokk­anna eðli­legt að þetta sé lausnin á meðan sam­komu­lag næst ekki um annað fyr­ir­komu­lag.

Það er öllum ljóst að um tíma­bundna lausn sé að ræða til að koma störfum nefnd­ar­innar í rétt horf. Ef og þegar aðstæður breyt­ast eru stjórn­ar­flokk­arnir reiðu­búnir að end­ur­skoða þessa stöðu og telja raunar mik­il­vægt að slíkt end­ur­mat eigi sér stað fyrir þing­lok. Þar sem hér er um tíma­bundna ráð­stöfun að ræða líta stjórn­ar­flokk­arnir ekki svo á að taka þurfi upp allt sam­komu­lag stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu um for­mennsku í fasta­nefndum Alþingis að svo stöddu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár