Ari Trausti ekki talsmaður minnihlutans

Þing­flokks­for­menn Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar segja að Ari Trausti sé ekki tals­maður minni­hlut­ans en hann greindi frá því að full­trúar flokk­anna, sem sitja í umhverfis- og sam­göngu­nefnd, vildu ekki að Bergþór Ólason yrði áfram for­maður nefnd­ar­innar.

Ari Trausti Guðmundsson
Ari Trausti Guð­munds­son Mynd: Bára Huld Beck

Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður og for­maður þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag að Ari Trausti Guð­munds­son, þing­maður Vinstri grænna og nefnd­ar­maður umhverfis- og sam­göngu­nefnd, sé ekki tals­maður minni­hlut­ans á Alþingi, ekki frekar en ógreiddra atkvæða í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslum. „Sam­komu­lag um for­mennsku í nefndum var um að stjórn­ar­and­staðan fengi þrjá for­menn og við ákváðum að stærsti fengi að velja fyrstu nefnd­ina og svo koll af kolli,“ segir Oddný á Facebook.

Í frétt Frétta­blaðs­ins í morgun kom fram að full­trúar Við­reisnar, Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna sem sitja í umhverfis- og sam­göngu­nefnd hefðu lýst því yfir að þau vildu ekki að Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, yrði áfram for­maður nefnd­ar­innar.

Oddný segir aftur á móti að flokk­arnir ráði því algjör­lega sjálfir hvaða þing­menn séu valdir í for­manns­sætið. Það sé því Mið­flokk­ur­inn sem ræður því hver sé for­maður í umhverfis- og sam­göngu­nefnd. Hinn val­kost­ur­inn sé að rifta sam­komu­lag­inu og þá sé allt undir og allir flokkar þurfi að setj­ast niður og finna aðra umgjörð um störf þings­ins.

[adspot]

Sagði fulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar og VG ekki vilja hafa Bergþór áfram sem formann

Á þing­flokks­for­manna­fundi síð­degis í gær voru mál­efni þings­ins og vinnu­friður rædd. Meðal þess sem rætt var á fund­inum voru mál­efni umhverfis- og sam­göngu­nefndar en Bergþór er for­maður nefnd­ar­innar. Ari Trausti sagði í sam­tali við Frétta­blaðið í dag að Bergþóri væri ljóst að hann hafi ekki stuðn­ing til áfram­hald­andi setu sem for­maður í nefnd­inni.

„Bergþór kemur og hefur rétt til að ganga inn í nefnd­ina og rétt til að taka sitt sæti sem hann hafði. Við getum ekki sagt nei. Málið er að hann er þarna sam­kvæmt sam­komu­lagi minni­hluta­flokk­anna,“ sagði Ari Trausti.

Hann sagði það vera stað­reynd að stjórn­ar­and­staðan hefði fengið þrjá for­manns­stóla í nefndir þings­ins og raðað þar niður eftir þing­styrk. „Þau fengu þrjá for­menn nefnda eftir ákveðnu sam­komu­lagi og því er það þeirra að leysa þetta mál og nú hefur bæði full­trúi Við­reisnar og Sam­fylk­ingar og einnig full­trúi Vinstri grænna lýst yfir að þau vilji ekki að hann leiði þetta áfram og það er honum alveg ljóst,“ sagði Ari Trausti.

Smári McCarthy, þing­maður Pírata, segir í athuga­semd við færslu Oddnýjar að Ari Trausti virð­ist hafa auga­stað á sér­stökum verð­launum fyrir hrút­skýr­ingar í næstu þing­veislu.

Í takt við aðra upplifun af starfsháttum meirihluta nefndarinnar í vetur

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar og þing­flokks­for­maður flokks­ins, fjallar einnig um málið í stöðu­upp­færslu á Facebook í morgun en þar segir hún að Ari Trausti sé ekki sér­skip­aður tals­maður hennar eða ann­arra þing­manna Við­reisnar.

„Sem full­trúi í umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis, kann ég honum litlar þakkir fyrir að þykj­ast þess umkom­inn að túlka skoð­anir mínar og fyr­ir­ætlan í fjöl­miðlum. Ég verð þó því miður að segja að þetta er í takt við aðra upp­lifun mína af starfs­háttum meiri­hluta nefnd­ar­innar í vetur,“ segir hún.

Hún bætir því við að mál sem varða for­mennsku í umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis verði útkljáð á vett­vangi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna og nið­ur­staða kynnt þegar hún liggi fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár