Sigmundur segir að það eigi ekki refsa þeim sem urðu „fyrir afbroti“ í Klausturmálinu

Formaður Mið­flokks­ins ítrek­aði í kvöld þá afstöðu sína að þing­menn hans sem við­höfðu niðr­andi orð um konur og ýmsa þing­menn á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber 2018 væri þolendur í mál­inu, ekki ger­endur.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: RÚV/Skjáskot

Formaður Mið­flokks­ins ítrek­aði í kvöld þá afstöðu sína að þing­menn hans sem við­höfðu niðr­andi orð um konur og ýmsa þing­menn á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber 2018 væri þolendur í mál­inu, ekki ger­endur.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, seg­ist geta varið heilum sjón­varps­þætti í að kvarta yfir með­ferð á sér og sam­flokks­mönnum sínum í Klaust­ur­mál­inu svo­kall­aða. Hann vilji þó frekar ræða fram­tíð­ina en ekki „það að refsa þeim sem verða fyrir afbroti.“

Þetta kom fram í þætt­inum For­ystu­sætið á RÚV í kvöld þar sem Sig­mundur Davíð var við­mæl­andi.

Þegar spyrlar þátt­ar­ins spurðu um hvaða áhrif málið hefði haft á hann sagði Sig­mundur Davíð að mál sem þetta hefðu gríð­ar­lega mikil áhrif á þá ein­stak­linga sem fyrir því verða. „Ekki bara þá sem að lentu í brot­inu beint, heldur líka önnur fórn­ar­lömb glæps­ins. Það er alveg ljóst að við þurfum að verja rétt ein­stak­linga og hlífa þeim við því að verða fyrir svona brotum enda leggjum við áherslu mik­il­vægi þess á að verja per­sónu­frelsi og rétt ein­stak­linga á Íslandi.“

Sig­mundur Davíð ítrek­aði því þá afstöðu sína að hann og sam­flokks­menn hans sem létu ýmis niðr­andi orð falla um nafn­greint fólk, meðal ann­ars aðra þing­menn, á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber 2018, og voru teknir upp af gesti á barnum sem kom upp­tök­unum til fjöl­miðla, væru þolendur í Klaust­ur­mál­inu, en ekki ger­endur. Í sjón­varps­þætti á Hring­braut í síð­asta mán­uði sagði Sig­mundur að honum þætti „ósann­gjarnt ef að menn yrðu látnir gjalda fyrir það að vera þolendur þess sem síðar kom í ljós að var glæpur, skipu­lagður glæpur.“

[adspot]Greint var frá í maí 2019 að stjórn Per­sónu­verndar hefði ekki fall­ist á kröfu þing­manna Mið­flokks­ins um að Bára Hall­dórs­dóttir, sú sem tók upp sam­tal þing­mann­anna á Klaust­ur­bar, yrði sektuð vegna hljóð­rit­unar hennar á sam­skiptum þeirra sem fram fóru. Hins vegar tald­ist upp­takan ólög­leg sam­kvæmt per­sónu­vernd­ar­lögum og bæri Báru að eyða henni og senda Per­sónu­vernd stað­fest­ingu á að það hefði verið gert eigi síðar en 5. jan­úar 2020.

Bára varð við því og eyddi upp­tök­unum.

Siðanefnd sagði tvo þingmenn hafa brotið siðareglur

Siða­nefnd Alþingis komst svo að þeirri nið­ur­stöðu sum­arið 2019 að Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, hefðu brotið siða­reglur alþing­is­manna með ummælum sem þeir létu falla á barnum Klaustri þann 20. nóv­em­ber 2018.

Aðrir þing­menn sem tóku þátt í sam­tal­inu, Sig­mund­ur Davíð og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þing­menn Mið­flokks­ins, og Karl Gauti Hjalta­son og Ólaf­ur Ísleifs­son, sem voru í Flokki fólks­ins þegar sam­talið átti sér stað en gengu síðar til liðs við Miðflokk­inn, brutu ekki gegn siða­regl­um að mati nefnd­ar­innar.

[links]Í áliti siða­nefnd­ar sagði að Bergþór og Gunn­ar Bragi hafi gerst brot­leg­ir við siða­regl­ur alþing­is­manna með um­mæl­um sem þeir létu falla á Klaustri bar. Siða­nefnd fór yfir ummæli Bergþórs um Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, Írisi Róberts­dóttur, bæj­ar­stjóra í Vest­manna­eyjum, Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, og Lilja Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Bergþórs væru „öll af sömu rót­inni sprottin“. Þau væru ósæmi­leg og í þeim fælist van­virð­ing er lýtur að kyn­ferði þeirra kvenna sem um var rætt. Einnig væru þau til þess fallin að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess.

Nefndin fór einnig yfir ummæli Gunnars Braga um Albertínu og Lilju auk Ragn­heiðar Run­ólfs­dóttur, fyrr­ver­andi sund­konu. Komist var að sömu nið­ur­stöðu og í máli Bergþórs, að í ummæl­unum fælist van­virð­ing í garð umræddra kvenna og þau væru til þess fallin að skaða ímynd Alþingis.

For­sætis­nefnd Alþingis féllst á mat siða­nefndar.

Gunnar Bragi ákvað að vera ekki í fram­boði fyrir kom­andi kosn­ingar en Bergþór er odd­viti Mið­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár