Vilja ekki að Bergþór leiði áfram umhverfis- og samgöngunefnd

Nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar vilja ekki að Bergþór Ólason sitji áfram sem for­maður nefnd­ar­innar. Þing­flokks­for­menn munu fara yfir stöðu nefnd­ar­innar eftir helgi en lík­legt þykir að Mið­flokk­ur­inn velji nýjan for­mann í stað Bergþórs.

Bergþór Ólason
Bergþór Ólason Mynd: Bára Huld Beck

Full­trúar Við­reisnar, Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna sem sitja í umhverfis- og sam­göngu­nefnd hafa lýst því yfir að þau vilji ekki að Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, verði áfram for­maður nefnd­ar­innar. Þing­flokks­for­menn auk for­seta þings­ins munu ræða for­mennsku nefnd­ar­innar á fundi næst­kom­andi mánu­dag, þar sem ljóst sé að Bergþór njóti ekki meiri­hluta­stuðn­ings til að sitja í nefnd­inni. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Segir Bergþór vita að hann hafi ekki stuðning sem formaður

[links]Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, til­kynntu í gær­morgun að þeir myndu taka aftur sæti á þingi. Þeir tóku óvænt þátt í þing­störfum í gær og voru meðal ann­ars við­staddir óund­ir­búnar fyr­ir­spurn­ir.

Á þing­flokks­for­manna­fundi síð­degis í gær voru mál­efni þings­ins og vinnu­friður rædd. Meðal þess sem rætt var á fund­inum voru mál­efni umhverfis- og sam­göngu­nefndar en Bergþór er for­maður nefnd­ar­innar. Ari Trausti Guð­munds­son, þing­maður Vinstri grænna og nefnd­ar­maður umhverfis- og sam­göngu­nefnd, segir í sam­talti við Frétta­blaðið í dag að Bergþóri sé ljóst að hann hafi ekki stuðn­ing til áfram­hald­andi setu sem for­maður í nefnd­inni.

„Bergþór kemur og hefur rétt til að ganga inn í nefnd­ina og rétt til að taka sitt sæti sem hann hafði. Við getum ekki sagt nei. Málið er að hann er þarna sam­kvæmt sam­komu­lagi minni­hluta­flokk­anna,“ segir Ari Trausti Guð­munds­son.

Hann segir það vera stað­reynd að stjórn­ar­and­staðan hafi fengið þrjá for­manns­stóla í nefndir þings­ins og raðað þar niður eftir þing­styrk. „Þau fengu þrjá for­menn nefnda eftir ákveðnu sam­komu­lagi og því er það þeirra að leysa þetta mál og nú hefur bæði full­trúi Við­reisnar og Sam­fylk­ingar og einnig full­trúi Vinstri grænna lýst yfir að þau vilji ekki að hann leiði þetta áfram og það er honum alveg ljóst,“ segir Ari Trausti. [adspot]

Líklegt að einhver annar úr Miðflokknum komi í hans stað

Ari Trausti segir nokkra mögu­leika í stöð­unni en að minni­hluta­flokk­arnir verði að leysa málið sín á milli. „Við þurfum ekk­ert að kjósa því ef minni­hlut­inn ræðir saman þá getur hann stigið til hliðar og ein­hver annar úr Mið­flokknum komið inn í hans stað.“

„Við í meiri­hlut­anum erum í raun og veru ekki að vasast með þetta mál, þetta er í höndum minni­hlut­ans. En þetta verður rætt í hópi þing­flokks­for­manna á mánu­dag,“ segir Ari Trausti að lokum.

Þing­flokks­for­menn og þing­for­seta munu fara yfir stöðu nefnd­ar­innar eftir helgi en lík­legt þykir að Bergþór þurfi að hætta sem for­maður til að þess vinnu­friður á þingi náist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár