Vissi ekki af endurkomu Gunnars Braga og Bergþórs

Skilaboð Lilju Alfreðs­dóttur til Gunnars Braga Sveins­sonar á þingi í dag voru þau að hún væri ekki sátt við fram­komu hans.

Lilja Alfreðsdóttir
Lilja Alfreðs­dóttir Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, vissi ekki af end­ur­komu Gunnars Braga Sveins­sonar og Bergþórs Ólasonar, þing­manna Mið­flokks­ins, fyrr en hún sá þá í þing­sal í morgun. Þetta kom fram í útvarpsfréttum RÚV í dag.

Gunnar Bragi og Bergþór til­kynntu í morgun að þeir myndu taka sæti á þingi og tóku þeir þátt í þing­störfum í dag. Meðal ann­ars voru þeir við­staddir óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir.

Lilja segir í sam­tali við RÚV afar mik­il­vægt að þing­störf haldi áfram og þeir sem hlut eigi að máli í Klaust­ur­mál­inu fari ekki með dág­skrár­valdið þar.

Athygli vakti á Alþingi í morgun þegar Lilja stóð upp úr sæti sínu tvisvar, með tæp­lega tveggja mín­útna milli­bili, og hvísl­aði ein­hverju að Gunnari Braga. Skömmu seinna yfir­gaf Lilja þingsal­inn, eins og sjá má á mynd­bandi í frétt RÚV frá því fyrr í dag.

Í sam­tali við RÚV í dag segir hún að skila­boð hennar til Gunnars Braga hefðu verið að hún væri ekki sátt við þessa fram­komu. „Það sem ég segi er að það sé mik­il­vægt að störf þings­ins haldi áfram.“

Þegar hún var spurð hvort störf þings­ins getu haldið áfram þá segir hún: „Fyrir mitt leyti er brýnt að fólk standi með sjálfu sér. Ég veit hvernig mér líður með þetta mál og ég segi bara enn og aftur: „Þeir eiga ekki að hafa dag­skrár­valdið í þessu sam­fé­lagi.““

[links]Bergþór og Gunnar Bragi viku báðir sæti á Alþingi eftir að birtar voru upp­tökur af sam­ræðum þeirra á Klaust­ur­bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Í sam­tal­inu við­höfðu þeir niðr­andi ummæli um Lilju.

Hún sagð­ist í Kast­ljós­við­tali í byrjun des­em­ber upp­lifa sam­tal Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, Gunnars Braga Sveins­sonar og Bergþórs Ólasonar um hana sem árás. „Ég upp­lifi þetta sem algjört ofbeldi. Þeir eru ofbeld­is­menn. Ég segi bara að þetta er alveg skýrt í mínum huga. Ofbeld­is­menn hafa ekki dag­skrár­vald í íslensku sam­fé­lagi,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár