Tillögu um að Bergþór myndi stíga til hliðar sem formaður vísað frá

Bergþór Ólason stýrði fundi umhverfis- og sam­göngu­nefndar í morgun. Björn Leví Gunn­ar­son, þing­maður Pírata, yfir­gaf fund­inn áður en honum lauk, ósáttur við að Bergþór skyldi sitja áfram sem for­maður.

Tillögu um að Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, myndi ekki sitja áfram sem formaður umhverfis- og samgöngunefndar var vísað frá á fundi nefndarinnar í morgun. Frá þessu er greint á Rúv. Í dag var fyrsti fundur umhverfis- og samgöngunefndar eftir að Bergþór tók sæti á Alþingi á ný í síðustu viku.

Vilja ekki að Bergþór verði áfram formaður

[links]Fjallað hefur verið um að andstöðu nokkra nefndarmanna umhverfis- og samgöngunefndar við formennsku Bergþórs síðustu daga en Bergþór var einn þeirra þingmanna sem hvað mest fór fyrir á Klausturbar í nóvember. Í kjölfarið tók Bergþór sér leyfi frá þingstörfum en sneri aftur á þing í síðustu viku. Bergþór stýrði fundinum í morgun en fundurinn í dag var fyrsti fundur umhverfis- og samgöngunefndar eftir að Bergþór sneri aftur á þing. Samkvæmt upplýsingum Rúv kom fram tillaga á fundinum að Bergþór sæti ekki áfram sem formaður, en þeirri tillögu var vísað frá. [adspot]

Afgreiddu samgönguáætlun úr nefndinni í dag

Jón Gunn­ars­son, vara­for­maður nefnd­ar­innar, stýrði fund­inum síð­ustu tíu mín­út­urnar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Rúv. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, yfir­gaf fund­inn tíu mín­útum áður en hann lauk, afar ósáttur við að Bergþór Ólason ætl­aði að sitja áfram sem for­maður nefnd­ar­innar. Í frétt Rúv segir að þrátt fyrir þetta hafi tek­ist að afgreiða sam­göngu­á­ætlun úr nefnd­inni, en í áætl­un­inni eru meðal ann­ars fyr­ir­ætl­anir um upp­bygg­ingu á vega­kerf­inu með veggjöldum.

Uppfært: Samkvæmt frétt Vísis lagði Helga Vala fram til­lögu með stuðn­ingi Hönnu Katrínar Frið­riks­son, for­manns þing­flokks Við­reisnar, og Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur, þing­manns Vinstri grænna, um að greidd yrðu atkvæði um for­mann nefnd­ar­innar en þeirri til­lögu var vísað frá af meiri­hluta nefnd­ar­innar.

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lagði fram frá­vís­un­ar­til­lög­una en að sögn Helgu Völu var hún studd af Líneik Önnu Sæv­ars­dóttur, þing­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, Vil­hjálmi Árnasyni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ara Trausta Guð­munds­syni, þing­manni VG, og þeim Bergþóri og Karli Gauta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár