Seðlabankinn vinnur að gerð skýrslu um fjárfestingarleiðina

Innan Seðla­bank­ans er nú unnið að gerð skýrslu um hina umdeildu fjár­fest­ing­ar­leið bank­ans. Enn er verið að kanna hvort rann­sókn­ar­nefnd þings geti tekið hana til rann­sóknar. Kjarninn hefur kært Seðla­bank­ann til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­ing­ar­mál.

Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son er seðla­banka­stjóri. Mynd: Úr safni.

Gjald­eyr­is­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands vinnur að gerð skýrslu um hina svoköll­uðu fjár­fest­ing­ar­leið sem bank­inn bauð upp á árunum 2012-2015. Til­gangur skýrslu­gerð­ar­innar er að varpa ljósi á mark­mið leið­ar­innar og árangur hennar við að búa í hag­inn fyrir losun fjár­magns­hafta. Upp­lýs­ingar um upp­runa þeirra þátt­tak­enda sem nýttu sér leið­ina verða birtar í skýrsl­unni eftir því „sem lög leyfa og nauð­syn­legt er til að ná mark­miðum skýrsl­unnar“. Þetta kemur fram í svari Seðla­banka Íslands við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið. Þar segir einni að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvenær skýrslan verði gerð opin­ber, en að það ætti að vera innan fárra mán­aða.

[links]Vorið 2017 var lögð fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga á Alþingi um að skipa rann­sókn­ar­nefnd til að rann­saka fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Sú til­laga gekk til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar sem kall­aði eftir umsögnum, en komst ekki lengra í þing­legri með­ferð. Einn þeirra aðila sem skil­aði þá umsögn var Seðla­banki Íslands. Í henni sagði að bank­inn hefði „gert ræki­lega grein fyrir öllum þáttum áætl­un­ar­innar um losun fjár­magns­hafta[...]og fjár­fest­ing­ar­leið­inni. Fram­kvæmdin gekk vel, var skipu­leg og gagnsæ og upp­lýs­ingar hafa verið veittar um hana, nú síð­ast í ítar­legu svari við fyr­ir­spurn á Alþingi til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans sem lagt verður fram á næstu dögum.“

Það svar barst i júní 2017. Um það má lesa hér.

[adspot]Heim­ildir Kjarnans herma að áhugi sé enn til staðar hjá hópi þing­manna að láta rann­sókn­ar­nefnd á vegum Alþingis rann­saka fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Málið var meðal ann­ars til umræðu á þingi 23. októ­ber í fyrra. Þar sagði Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, að „háar fjár­hæðir hafa komið til lands­ins í gegn­um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans og eig­end­ur fengið þar veru­leg­an gróða. Aðeins op­in­ber rann­sókn get­ur aflétt þeirri leynd sem yfir þeirri leið rík­ir.“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur áður gagn­rýnt fjár­fest­ing­ar­leið­ina opin­ber­lega, sagt hana hafa verið ósann­gjarna og falið í sér aðstöðumun milli inn­lendra og erlendra aðila. Í ofan­greindum umræðum sagði Bjarni að ef ein­verjar vís­bend­ingar væru um að í fjár­fest­ing­ar­leið­inni hafi menn „verið með illa fengið fé sem ekki hafi verið talið fram á ferð­inni, þá tel ég al­veg aug­ljóst að slíkt eigi að skoða og ég tel ís­lensk­um stofn­un­um ekk­ert að van­bún­aði að fara í þau mál.“

Kært til úrskurðarnefndar

Kjarninn hefur ítrekað farið fram á að fá upp­lýs­ingar um þá ein­stak­linga og lög­að­ila sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands og hversu háar fjár­hæðir hver og einn flutti til lands­ins. Seðla­banki Íslands hefur ítrekað hafnað þess­ari beiðni og vísað í þagn­ar­skyldu­á­kvæði þeirra laga sem gilda um starf­semi bank­ans. Kjarninn kærði synjun Seðla­banka Íslands til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mála þar sem málið er enn til með­ferðar. Í byrjun nóv­em­ber 2018 barst úrskurð­ar­nefnd­inni umsögn frá Seðla­banka Íslands vegna kærunnar. Þar ítrek­uðu lög­fræð­ingar bank­ans þá skoðun sína að hafna bæri því að veittur yrði aðgangur að umbeðnum gögnum.

Þótt stjórn­völd hafi ekki viljað upp­lýsa um hverjir það voru sem nýttu sér leið­ina þá hafa fjöl­miðlar getað upp­lýst um félög í eigu aðila sem það gerðu. Á meðal þeirra sem hafa nýtt sér þessa leið eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­munds­sona, Hreið­ars Más Sig­urðs­son­ar, Jóns Ólafs­son­ar, Jóns Von Tetzchner, knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­son­ar, Ólafs Ólafs­son­ar, Hjör­leifs Jak­obs­son­ar, Ármanns Þor­valds­son­ar, Kjart­ans Gunn­ars­son­ar, Skúla Mog­en­sen, rekstr­ar­fé­lags Iceland Foods, Alvogen, Karls og Stein­gríms Wern­ers­sona og danskra eig­enda Húsa­smiðj­unn­ar.

Hundruð milljarða flutt til landsins

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­­­fest­ing­ar­­leið­inni frá því í febr­­úar 2012 til febr­­úar 2015, þegar síð­­asta útboðið fór fram. Allt í allt komu um 1.100 millj­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­­ar­inn­­ar, sem sam­svarar 206 millj­örðum króna.

794 inn­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­fest­ing­­ar­­leiðar Seðla­­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­sent þeirrar fjár­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­ari leið, en hún tryggði allt að 20 pró­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­kvæmt skil­­málum útboða fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­­ar­inn­­ar.

Afslátt­­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­bank­ans er um 17 millj­­arðar króna.

[adspot]Í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­­­svæð­um, sem birt var í byrjun jan­ú­ar, er fjallað um fjár­­­fest­ing­­ar­­leið Seðla­­banka Íslands og því meðal ann­­ars velt upp hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­­­magn­inu frá aflands­­svæð­um, sem orðið hafi til með ólög­­mætum hætti, hafi skilað sér Íslands með geng­is­af­slætti í gegnum fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­ina. Sú skýrsla er gerð fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ið.

Orð­rétt segir í skýrsl­unni: „Miðlun upp­­lýs­inga um fjár­­­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­­taka í fjár­­­fest­ing­­ar­­leið Seðla­­bank­ans er ekki til stað­­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­­bank­ans þegar um grun­­sam­­legar fjár­­­magnstil­­færslur er að ræða. Æski­­legt má telja að sam­­starf væri um miðlun upp­­lýs­inga á milli þess­­ara stofn­ana.“

Eitt mál til rannsóknar

Ekki virð­ist hafa átt sér stað nein upp­runa­vottun af hendi opin­berra aðila á því fé sem fært var til lands­ins í gegnum leið­ina. Allir við­skipta­bank­arnir fjórir litu svo á að það hefði verið í þeirra verka­hring að stað­festa áreið­an­leika við­skipta­manna sinna sem tóku þátt í fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Þeir segj­ast allir hafa kannað þá fjár­festa úr við­skipta­manna­hópi sínum sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina með til­liti til laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Þrír bank­anna, Íslands­banki, Arion banki og Lands­bank­inn, hafa hins vegar ekki viljað svara því hvort þau hafi sent ein­hverjar til­kynn­ingar til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu (Financial Intelligence Unit) vegna gruns um að ein­hverjir úr við­skipta­manna­hópi þeirra hafi þvættað pen­inga með því að nýta sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Einn banki, Kvika banki, seg­ist hins vegar ekki hafa sent neinar til­kynn­ingar til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu vegna þessa.

Emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, en pen­inga­þvætt­is­skrif­stofan heyrir undir það, segir að eftir því sem næst verður kom­ist þá hafi ekki borist neinar til­kynn­ingar frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum vegna fjár­festa sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Kjarninn greindi frá því í októ­ber 2018 að emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra rann­saki eitt mál tengt fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands. Auk þess er emb­ætti að vinna í gögnum sem emb­ættið fékk afhent um þá sem nýttu sér leið­ina í sam­vinnu við emb­ætti rík­is­skatt­stjóra. Meðal ann­ars hafa verið sendar út fyr­ir­spurnir til gjald­enda og fram­hald þeirra mála mun ráð­ast af því sem út úr þeim kem­ur.

Umrædd gögn voru afhent emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra í apríl 2016. Þegar þau voru sam­keyrð við gögn sem emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra keypti sum­arið 2015 á 37 millj­ónir króna, og sýndu eignir Íslend­inga í þekktum skatta­skjól­um, kom í ljós að 21 ein­stak­lingar fór fjár­fest­inga­leið­ina var einnig í skatta­skjóls­gögn­un­um.

Ný lög sett um peningaþvætti

Síð­ast­liðið ár hefur Ísland þurft að hafa hraðar hendur til að auka varnir sínar gegn pen­inga­þvætti. Alþjóð­legu sam­tökin Financial Action Task Force (FATF) settu land­inu úrslita­kosti í fyrra. Annað hvort myndu stjórn­völd þar taka sig til og inn­leiða almenni­legar varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka eða landið myndi verða sett á lista FATF um ósam­vinnu­þýð ríki.

[adspot]Í úttekt sam­tak­anna á stöðu mála Íslandi, sem var gerð opin­ber í apríl 2018, fengu varnir Íslands gegn pen­inga­þvætti fall­ein­kunn. íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­legar, og Ísland færi á lista FATF yfir ósam­vinnu­þýð ríki myndi það, að mati inn­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­legan hnekki.

Vegna þessa var lagt fram frum­varpi í nóv­em­ber um ný heild­ar­lög um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Það frum­varp var afgreitt hratt í síð­asta mán­uði og varð að lögum 1. jan­úar 2019.

Á meðal þeirra breyt­inga sem nýju lögin hafa í för með sér er að öllum opin­berum aðilum er ný skylt að til­kynna henni um grun­sam­leg við­skipti og sú til­kynn­inga­skylda víkur allri þagn­ar­skyldu stjórn­valda til hliðar. Það mun einnig eiga við um Seðla­banka Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárfestingarleið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár