Rannsókn á undanskotum vegna fjárfestingarleiðarinnar stutt á veg komin

Mál tengt ein­stak­lingi sem grun­aður er um að hafa skotið undan fjár­magnstekjum með því að nýta sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands fór frá skatt­rann­sókn­ar­stjóra til hér­aðs­sak­sókn­ara í maí. Þar er rann­sókn þess stutt á veg komin.

Rannsókn emb­ættis hér­að­sak­sókn­ara á máli tengdu ein­stak­lingi sem nýtti sér fjár­­­fest­ing­­ar­­leið Seðla­­banka Íslands, og er grun­aður um að hafa skotið undan fjár­magnstekj­um, er stutt á veg komin sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætt­inu. Málinu var vísað þangað frá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra í maí á þessu ári, en í því er grunur um und­an­skot sem nema á þriðja hund­rað millj­óna króna.

Málið hefur lengi þvælst á milli stofn­ana, en rann­sókn skatt­rann­sókn­ar­stjóra á því lauk fyrir þó nokkru síðan. Eftir þá rann­sókn fór málið til rík­is­skatt­stjóra sem vís­aði því aftur til skatt­rann­sókn­ar­stjóra, sem sendi það loks til hér­aðs­sak­sókn­ara til frek­ari rann­sóknar og eftir atvikum refsi­með­ferðar.

Hægt að fá mikla virð­is­aukn­ingu

Fjár­­­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­­leið Seðla­­­­­­­banka Íslands, sem einnig var nefnd 50/50 leið­in, var gríð­­­­­­­ar­­­­­­­lega umdeild aðferð sem Seðla­­­­­­­bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­­­­­­­hengju, krón­u­­­­­­­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­­­­­­­­­­­­­magns­hafta og gerðu stjórn­­­­­­­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­­­­­­­ari losun þeirra hafta. Sam­­­­­­­kvæmt henni gátu þeir sem sam­­­­­­­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­­­­­­­stæð­­­­­­­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka. Leiðin stóð til boða frá 2012 til 2015.

794 inn­­­­­­­­­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­­­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­­ar­­­­­­­leiðar Seðla­­­­­­­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­­­­­sent þeirrar fjár­­­­­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­­­­­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­­­­­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­­­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­­­­­kvæmt skil­­­­­­­málum útboða fjár­­­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­­ar­­­­­­­leið­­­­­­­ar­inn­­­­­­­ar. Afslátt­­­­­­­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­­­­­­bank­ans er um 17 millj­­­­­­­arðar króna.

Skoð­aði nokkra ein­stak­linga

Emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra fékk afhent öll gögn um þá ein­stak­linga sem nýttu fjár­fest­ing­ar­leið­ina á árinu 2016, eða fyrir rúmum fjórum árum síð­ar.

Þegar þau voru sam­keyrð við gögn sem emb­ættið keypti sum­­­­­arið 2015 á 37 millj­­­ónir króna, og sýndu eignir Íslend­inga í þekktum skatta­­­skjól­um, kom í ljós að 21 ein­stak­l­ingar fór fjár­­­­­fest­inga­­­leið­ina var einnig í skatta­­­skjóls­­­gögn­un­­­um.

[adspot]Í byrjun árs 2018, fyrir tveimur árum síð­an, lágu fyrir nið­ur­stöður for­skoð­unar ell­efu til­vika er vörð­uðu nýt­ingu fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar og voru þau til­vik „valin úr mengi til­vika þar sem aðilar voru ein­stak­lingar búsettir hér á landi á tíma útboðs auk þess sem um hafði rætt fjár­færslur fyrir ofan ákveðna fjár­hæð.“

Það mengi sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri skoð­aði sneri þó, líkt og áður sagði, ein­ungis að ein­stak­ling­um, ekki lög­að­ilum eins og einka­hluta­fé­lög­um. Til að setja það í sam­hengi við umfang þeirra sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina þá voru alls sam­þykkar umsóknir frá 754 ein­stak­lingum en 318 lög­að­ilum um að fara leið­ina, eða alls 1.072 aðila. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri skoð­aði ein­ungis ein­stak­linga sem búsettir voru á Íslandi, en þeir voru 231. Því inni­hélt mengið sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri valdi ell­efu til­vik til að skoða úr, tæp­lega 22 pró­sent þeirra ein­stak­linga og lög­að­ila sem nýttu leið­ina. Þau ell­efu til­vik sem emb­ættið tók til for­skoð­unar eru um eitt pró­sent þeirra sem tóku þátt í útboðum leið­ar­inn­ar.

Vildu láta skipa rann­sókn­ar­nefnd um leið­ina

Í nóv­em­ber í fyrra lögðu allir þing­menn Pírata, Sam­­fylk­ingar og Við­reisnar fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að skipa rann­sókn­ar­nefnd á fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands­.

Í þings­á­­lykt­un­­ar­til­lög­unni er farið fram á að rann­­sókn­­ar­­nefndin geri grein fyrir því hvaðan fjár­­­magnið sem flutt var til lands­ins með fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­inni kom, hvaða ein­stak­l­ingar eða félög voru skráð fyrir fjár­­­magn­inu sem flutt var til lands­ins, hvernig fénu sem flutt var inn til lands­ins var varið og hver áhrif þess voru á íslenskt efna­hags­líf.

Þar er einnig kallað eftir að upp­­lýs­ingar verði dregnar fram um hvort rík­­is­­sjóður hafi orðið af skatt­­tekjum vegna leið­­ar­innar og þá hversu mikið það tap var, hvort að sam­­þykkt til­­­boð í útboðum fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­­ar­innar kunni í ein­hverjum til­­vikum að hafa brotið gegn skil­­málum hennar og hvort fjár­­­fest­ing­­ar­­leiðin kunni að hafa verið notuð til að koma óskráðum og óskatt­lögðum eignum Íslend­inga á aflands­­svæðum aftur til lands­ins, til að stunda pen­inga­þvætti eða mis­­notuð með öðrum hætti.

Málið gekk til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar í jan­úar þar sem það var svæft. Það hefur ekki verið end­ur­flutt á yfir­stand­andi þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárfestingarleið

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hneykslið þar sem til­gangur helgar pen­inga­þvætti

Seðla­banki Íslands hefur und­an­farna mán­uði birt tvær skýrslur þar sem hann rann­sakar sjálfan sig. Sú fyrri, sem fjall­aði um 500 milljón evra neyð­ar­lán til Kaup­þings á neyð­ar­laga­dag­inn 6. októ­ber 2008, var fjögur ár í vinnslu. Þegar hún kom loks út í lok maí 2019 var nið­ur­staða hennar aðal­lega sú að eftir á að hyggja hefði ekki átt að veita lánið,...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár