Ásgeir: Fjárfestingaleiðin hefði aldrei gerst á minni vakt

Sitjandi seðla­banka­stjóri segir að það hefði átt að fylgj­ast betur með því hvaðan pen­ing­arnir sem voru ferjaðir til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands komu. Stjórn­völd hafa neitað að upp­lýsa um hverjir það voru sem nýttu sér leið­ina.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri seg­ist sam­mála gagn­rýni sem sett hefur verið fram á fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands, sem gerði meðal ann­ars Íslend­ingum sem höfðu komið fjár­munum fyrir í aflands­fé­lögum kleift að flytja þá aftur til Íslands með virð­is­aukn­ingu og fá fjár­mun­ina lög­mæti. „Þetta myndi aldrei ger­ast á minni vakt. Aldrei. Ég er sam­mála, það hefði mátt fylgj­ast mun betur með því hvaðan pen­ing­arnir komu. Ég myndi aldrei sam­þykkja svona á minni vakt. Þessi gjald­eyr­is­út­boð voru að ein­hverju leyti neyð­ar­ráð­stöfun á sínum tíma. Ég vil ekki sjá það ger­ast aftur að hér á landi verði tvö­faldur gjald­eyr­is­mark­aður með þessum hætti.“

Þetta kemur fram í við­tali við Ásgeir í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar sem kom út í gær.

Fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­leið Seðla­­­­­­banka Íslands, sem einnig var nefnd 50/50 leið­in, var gríð­­­­­­ar­­­­­­lega umdeild aðferð sem Seðla­­­­­­bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­­­­­­hengju, krón­u­­­­­­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­­­­­­­­­­­magns­hafta og gerðu stjórn­­­­­­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­­­­­­ari losun þeirra hafta. Sam­­­­­­kvæmt henni gátu þeir sem sam­­­­­­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­­­­­­stæð­­­­­­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka.

Þeir sem tóku á sig „tap­ið“ í þessum við­­­­­­skiptum voru aðilar sem áttu krónur fastar innan hafta en vildu kom­­­­­­ast út úr íslenska hag­­­­­­kerf­inu með þær. Þeir sem „græddu“ voru aðilar sem áttu erlendan gjald­eyri en voru til­­­­­­­­­­­búnir að koma til Íslands og fjár­­­­­­­­­­­festa fyrir hann. Seðla­­­­­­bank­inn var síðan í hlut­verki milli­­­­­­­­­­­göng­u­að­ila sem gerði við­­­­­­skiptin mög­u­­­­­­leg. Líkt og verslun sem leiddi heild­­­­­­sala og neyt­endur sam­­­­­­an.

Tug milljarða ávinningur

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­leið­inni frá því í febr­­­­­­úar 2012 til febr­­­­­­úar 2015, þegar síð­­­­­­asta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 millj­­­­­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­­­­­­ar­inn­­­­­­ar, sem sam­svarar um 206 millj­­­­­­örðum króna.

[adspot]Ef þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­­­­­­bank­ans, líkt og venju­­­­­­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­­­­­­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­­­­­­arðar króna. Skil­yrt var að binda þyrfti féð sem fært var inn í landið með þessu hætti í fast­­­­­­eign­um, verð­bréf­um, fyr­ir­tækjum eða öðrum fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­kost­­­­­­um. Því má segja að þeir sem hafi nýtt sér fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­ina hafi fengið um 20 pró­­­­­­sent afslátt af þeim eignum sem þeir keyptu.

794 inn­­­­­­­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leiðar Seðla­­­­­­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­­­­sent þeirrar fjár­­­­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­­­­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­­­­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­­­­kvæmt skil­­­­­­málum útboða fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­­­­­­ar­inn­­­­­­ar. Afslátt­­­­­­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­­­­­bank­ans er um 17 millj­­­­­­arðar króna.

Stjórnvöld neita að upplýsa um þá sem högnuðust

Seðla­bank­inn eða stjórn­völd hafa aldrei viljað upp­lýsa hverjir það voru sem fengu að nýta sér þessa leið til að leysa út geng­is­hagnað, fá lög­mæti á fjár­muni sem mögu­lega voru afurð skattaund­an­skota eða raun­veru­leg eign ann­arra og fá virð­is­aukn­ingu úr hendi opin­bers aðila sem öðrum lands­mönnum bauðst ekki.

Þótt stjórn­völd hafi ekki viljað upp­lýsa um hverjir það voru sem nýttu sér leið­ina þá hafa fjöl­miðlar getað upp­lýst um félög í eigu aðila sem það gerð­u. Á meðal þeirra sem hafa nýtt sér þessa leið eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­­munds­­sona, Hreið­­ars Más Sig­­urðs­­son­­ar, Jóns Ólafs­­son­­ar, Jóns Von Tetzchner, knatt­­spyrn­u­­manns­ins Gylfa Þórs Sig­­urðs­­son­­ar, Ólafs Ólafs­­son­­ar, Hjör­­leifs Jak­obs­­son­­ar, Ármanns Þor­­valds­­son­­ar, Kjart­ans Gunn­­ar­s­­son­­ar, Skúla Mogensen, rekstr­ar­fé­lags Iceland Foods, Alvogen, Karls og Stein­gríms Wern­er­s­­sona og danskra eig­enda Húsa­smiðj­unn­­ar.

Ekki hlutverk Seðlabankans að útdeilda réttlæti

Seðla­bank­inn, sem stóð að fjár­fest­ing­ar­leið­inni og fram­kvæmdi hana, hefur sjálfur gert skýrslu um leið­ina sem birt var í ágúst 2019. Sú skýrsla var unnin áður en að Ásgeir Jónsson tók við emb­ætti seðla­banka­stjóra og á meðan að Már Guð­munds­son gegndi því. Már var líka yfir bank­anum þegar ráð­ist var í fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Þar kom meðal ann­ars fram að aflands­fé­lög frá lág­skatta­svæðum hefðu flutt inn 2,4 pró­sent af heild­ar­fjár­fest­ingu í gegnum leið­ina. Eðli­legt væri, í ljósi sög­unn­ar, að gagn­rýna að það hefði verið ger­legt að ferja fjár­muni frá slíkum svæðum í gegnum hana.

Í skýrsl­unni sagði einnig að það væri ekki hlut­verk Seðla­banka Íslands að útdeilda rétt­læti í sam­fé­lag­inu „með því að greina á milli æski­legra og óæski­legra fjár­festa, verð­ugra og óverð­ugra.“ Það sé ekki úrlausn­ar­efni hans. „Önnur stjórn­völd og stofn­anir hafa hlut­verki að gegna við að fram­fylgja lögum lands­ins, m.a. Sam­keppn­is­eft­ir­litið, Fjár­mála­eft­ir­litið, rík­is­skatt­stjóri, skatt­rann­sókn­ar­stjóri, lög­regla, sak­sókn­arar og svo dóm­stólar sem end­an­lega kveða á um sekt manna og rétt­ar­stöðu þeirra gagn­vart lögum og stjórn­völdum.“

Ekkert þeirra emb­ætta sem Seðla­bank­inn taldi upp í skýrslu sinni, og sagði að hefðu það hlut­verk að útdeilda rétt­læti, hafa rann­sakað fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans af ein­hverri alvöru.“

Reynt að skipa rannsóknarnefnd

Í nóv­em­ber 2019 var lögð fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga um rann­sókn á fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka íslands sem allir þing­menn Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar skrif­uðu upp á.

[links]Þar var farið fram á að þriggja manna rann­sókn­ar­nefnd verði skipuð og að hún geri grein fyrir því hvaðan fjár­magnið sem flutt var til lands­ins með fjár­fest­ing­ar­leið­inni kom, hvaða ein­stak­lingar eða félög voru skráð fyrir fjár­magn­inu sem flutt var til lands­ins, hvernig fénu sem flutt var inn til lands­ins var varið og hver áhrif þess voru á íslenskt efna­hags­líf.

Þar er einnig kallað eftir að upp­lýs­ingar verði dregnar fram um hvort rík­is­sjóður hafi orðið af skatt­tekjum vegna leið­ar­innar og þá hversu mikið það tap var, hvort að sam­þykkt til­boð í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar kunni í ein­hverjum til­vikum að hafa brotið gegn skil­málum hennar og hvort fjár­fest­ing­ar­leiðin kunni að hafa verið notuð til að koma óskráðum og óskatt­lögðum eignum Íslend­inga á aflands­svæðum aftur til lands­ins, til að stunda pen­inga­þvætti eða mis­notuð með öðrum hætti.

Þegar Seðla­banki Íslands skil­aði umsögn um skipun rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar sagði þar að bank­inn legg­ist ekki sér­stak­lega gegn því að fram fari rann­sókn á flutn­ingi fjár til lands­ins á grund­velli fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­bank­ans telji Alþingi lík­legt að slík rann­sókn bæti ein­hverju við þá rann­sókn sem þegar hefur farið fram á vegum rík­is­skatt­stjóra og skatt­rann­sókn­ar­stjóra á leið­inni.

Steingrímur gerði margháttaðar athugasemdir

Í júní í fyrra skil­aði Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, af sér 18 blað­síðna umsögn um þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una þar sem hann gerði marg­hátt­aðar athug­semdir við málið, lagð­ist gegn skipun rann­sókn­ar­nefndar og vildi kanna hvort önnur rann­sóknar­úr­ræði dyggðu ekki til.

Ekki væri úti­lokað að óska mætti til dæmis eftir mati rík­is­end­ur­skoð­unar á henni. Rík­is­end­ur­skoðun sagði í umsögn sinni um skipan rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar að ekki væru sýni­leg laga­skil­yrði séu til þess að emb­ættið geti komið í stað rann­sókn­ar­nefndar í mál­inu.

Síðan að for­seti Alþingis skil­aði sinni umsögn um málið þá hefur það ekki þok­ast neitt áfram, og mun lík­ast til deyja drottni sínum inni í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárfestingarleið

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hneykslið þar sem til­gangur helgar pen­inga­þvætti

Seðla­banki Íslands hefur und­an­farna mán­uði birt tvær skýrslur þar sem hann rann­sakar sjálfan sig. Sú fyrri, sem fjall­aði um 500 milljón evra neyð­ar­lán til Kaup­þings á neyð­ar­laga­dag­inn 6. októ­ber 2008, var fjögur ár í vinnslu. Þegar hún kom loks út í lok maí 2019 var nið­ur­staða hennar aðal­lega sú að eftir á að hyggja hefði ekki átt að veita lánið,...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár