Seðlabankinn leggst ekki gegn skipun rannsóknarnefndar um fjárfestingarleiðina

Í umsögn sem nýr seðla­banka­stjóri skrifar undir leggst Seðla­banki Íslands ekki sér­stak­lega gegn því að fram fari rann­sókn á fjár­fest­ing­ar­leið­inni sem bank­inn hélt úti milli 2011 og 2015. Alls voru 206 millj­arðar króna ferjaðir inn í landið í gegnum hana.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck


Seðla­banki Íslands leggst ekki sér­stak­lega gegn því að fram fari rann­sókn á flutn­ingi fjár til lands­ins á grund­velli fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­bank­ans telji Alþingi lík­legt að slík rann­sókn bæti ein­hverju við þá rann­sókn sem þegar hefur farið fram á vegum rík­is­skatt­stjóra og skatt­rann­sókn­ar­stjóra á leið­inni. Seðla­bank­inn telur þó ekki lík­legt að slík rann­sókn, sem myndi fara fram á grund­velli laga um rann­sókn­ar­nefndir Alþingis, mundi bæta miklu við.

Þetta kemur fram í umsögn Seðla­banka Íslands um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um rann­sókn á fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands sem allir þing­menn Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar lögðu fram í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Ásgeir Jónsson, sem tók við stöðu seðla­banka­stjóra í ágúst í fyrra, skrifar undir umsögn­ina ásamt Guðrúnu Sóleyju Gunn­ars­dóttur, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra hjá bank­anum. Henni var skilað inn í lok síð­ustu viku.

Seðla­bank­inn segir í umsögn sinni um til­lög­una að slík rann­sókn yrði að fram­kvæma á grund­velli laga um rann­sókn­ar­nefndir eða sér­stakra laga, þar sem mark­mið þyrftu að vera afar skýr og heim­ildir ríkar. „Jafnvel þótt í lög­unum sé kveðið á um að rann­sókn­ar­nefnd geti birt upp­lýs­ingar sem ann­ars væru háðar þagn­ar­skyldu ef nefndin telur slíkt nauð­syn­legt til að rök­styðja nið­ur­stöður sínar [...] þá verður að hafa í huga að nefndin skal aðeins birta upp­lýs­ingar um per­sónu­leg mál­efni ein­stak­linga, þ.m.t. fjár­mál þeirra, að almanna­hags­munir af því að birta upp­lýs­ing­arnar vegi þyngra en hags­munir þess ein­stak­lings sem í hlut á. Því er ekki ljóst, hvort slík rann­sókn­ar­nefnd hefði svig­rúm til að birta ítar­legri upp­lýs­ingar en þær sem Seðla­bank­inn hefur þegar birt, þótt mögu­lega gæti hún metið jafn­vægið á milli einka­hags­muna og almanna­hags­muna með eitt­hvað öðrum hætti en Seðla­bank­inn hefur gert.“

[adspot]Í til­lög­unni er farið fram á að nefndin geri grein fyrir því hvaðan fjár­magnið sem flutt var til lands­ins með fjár­fest­ing­ar­leið­inni kom, hvaða ein­stak­lingar eða félög voru skráð fyrir fjár­magn­inu sem flutt var til lands­ins, hvernig fénu sem flutt var inn til lands­ins var varið og hver áhrif þess voru á íslenskt efna­hags­líf. Þar er einnig kallað eftir að upp­lýs­ingar verði dregnar fram um hvort rík­is­sjóður hafi orðið af skatt­tekjum vegna leið­ar­innar og þá hversu mikið það tap var, hvort að sam­þykkt til­boð í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar kunni í ein­hverjum til­vikum að hafa brotið gegn skil­málum hennar og hvort fjár­fest­ing­ar­leiðin kunni að hafa verið notuð til að koma óskráðum og óskatt­lögðum eignum Íslend­inga á aflands­svæðum aftur til lands­ins, til að stunda pen­inga­þvætti eða mis­notuð með öðrum hætti.

Nefndin, verði til­lagan sam­þykkt, á að skila nið­ur­stöðum sínum í skýrslu­formi svo fljótt sem verða má og eigi síðar en 1. októ­ber 2020.

Hundruð milljarðar ferjaðir inn í landið

Fram fóru 21 útboð eftir fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­leið­inni frá því í febr­­­­­­úar 2012 til febr­­­­­­úar 2015, þegar síð­­­­­­asta útboðið fór fram. Leiðin gerði þeim sem vildu kleift að skipta á gjald­eyri fyrir íslenskrar krónur og fá um leið allt að 20 pró­sent virð­is­aukn­ingu fyrir að koma til lands­ins með gjald­eyri. Hún var því opin á meðan að Már Guð­munds­son, fyr­ir­renn­ari Ásgeirs, sat í stóli seðla­banka­stjóra. Þetta er í fyrsta sinn sem Ásgeir tekur afstöðu til rann­sóknar á leið­inni.

Alls komu um 1.100 millj­­­­­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­­­­­­ar­inn­­­­­­ar, sem sam­svar­aði um 206 millj­­­­­­örðum króna. 794 inn­­­­­­­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leiðar Seðla­­­­­­banka Íslands. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­­­­kvæmt skil­­­­­­málum útboða fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­­­­­­ar­inn­­­­­­ar. Virð­is­aukn­ing­in sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­­­­­bank­ans var um 17 millj­­­­­­arðar króna.

Dæmdir brotamenn á meðal þeirra sem nýttu sér leiðina

Margir þeirra aðila sem nýttu sér leið­ina voru stór­tækir í íslensku við­skipta­lífi fyrir banka­hrun en höfðu komið fé fyrir utan land­stein­ana áður en höft voru reist síðla árs 2008. Þessir aðilar gátu því leyst út mik­inn geng­is­hagnað til við­bótar við virð­is­aukn­ing­una sem þeim stóð til boða.

Sumir þeirra hafa hlotið þunga dóma fyrir stór­felld efna­hags­brot vegna brota sem voru framin í aðdrag­anda hruns­ins.

Seðla­banki Íslands hefur ekki viljað upp­lýsa um hverjir það voru sem nýttu sér leið­ina, og borið fyrir sig þagn­ar­skyldu­á­kvæði laga um bank­ann. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, svar­aði fyr­ir­spurn um málið á Alþingi í síð­asta mán­uði og tók sama pól í hæð­ina og Seðla­bank­inn. Hann taldi sér ekki heim­ilt að birta nöfn þeirra sem fluttu fjár­magn til Íslands í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

[box]Máli sínu til stuðn­ings vísar Bjarni í úrskurð úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­ing­ar­mál vegna kæru Kjarn­ans á synjun Seðla­banka Íslands um aðgang að upp­lýs­ing­unum frá því í jan­úar 2019. Í þeim úrskurði sagði meðal ann­ars að for­taks­laus þagn­ar­skylda Seðla­banka Íslands gagn­vart við­skipta­mönnum sínum komi í veg fyrir að slíkar upp­lýs­ingar séu gerðar opin­berar „óháð hags­munum almenn­ings af því að fá að kynna sér þær.“

Þær upp­lýs­ingar sem liggja fyrir um nöfn þeirra sem ferj­uðu fé í gegnum leið­ina hafa því verið opin­beruð af fjöl­miðlum sem hafa rann­sakað þær fjár­magnstil­færslur. Á meðal þeirra sem hafa nýtt sér þessa leið eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­­­munds­­­sona, Hreið­­­ars Más Sig­­­urðs­­­son­­­ar, Jóns Ólafs­­­son­­­ar, Jóns Von Tetzchner, knatt­­­spyrn­u­­­manns­ins Gylfa Þórs Sig­­­urðs­­­son­­­ar, Ólafs Ólafs­­­son­­­ar, Hjör­­­leifs Jak­obs­­­son­­­ar, Ármanns Þor­­­valds­­­son­­­ar, Kjart­ans Gunn­­­ar­s­­­son­­­ar, Skúla Mog­en­sen, rekstr­ar­fé­lags Iceland Foods, Alvogen, Karls og Stein­gríms Wern­er­s­­­sona og danskra eig­enda Húsa­smiðj­unn­­­ar.

[adspot]Á meðal ann­arra sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina var til að mynda félag í eigu Sam­herja, sem hefur verið mikið í sviðs­ljós­inu und­an­farnar vik­ur. Um er að ræða félagið Esju Seafood á Kýp­ur, sem tók við hagn­aði af starf­semi Sam­herja í Namib­íu. Esja Seafood lán­aði öðru félagið Sam­herja, Kald­baki, um tvo millj­arða króna árið 2012 í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Stundin greindi frá því síðla árs í fyrra að Kald­bakur hafi meðal ann­ars lánað enn öðru félagi Sam­herja, Katta­nefi ehf., 300 millj­ónir króna til að fjár­festa í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Það félag var svo selt til Ram­ses II ehf., félags í eigu Eyþórs Arn­alds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, árið 2017, á 325 millj­ónir króna. Sam­herji lán­aði Ram­ses II fyrir kaup­un­um.

Eftirliti ábótavant og brotalamir í peningaþvættisvörnum

Í skýrslu Seðla­­bank­ans um fjár­fest­inga­leið­ina, sem hann vann sjálfur og birti í fyrra­sumar, segir að „stað­­fest­ingin skyldi gerð af hálfu milli­­­göng­u­að­ila eða ann­­ars aðila sem full­nægði kröfum lag­anna eða laut að mati Seðla­­bank­ans bæði sam­­bæri­­legum kröfum og lögin gera og eft­ir­liti sam­­bæri­­legu því sem íslensk fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki lúta. Fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki báru því einnig þá skyldu að kanna fjár­­­festa, þ.e. við­­skipta­­menn sína, með til­­liti til laga[...]um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka, og stað­­festa áreið­an­­leika þeirra gagn­vart Seðla­­bank­an­­um. Eft­ir­lit með því að fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki sinni skyldum sínum varð­andi pen­inga­þvætt­is­at­hug­anir er í höndum Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins.“

Þetta ferli fór því þannig fram að fjár­­­festir leit­aði til íslensks banka og bað hann um að vera milli­­lið í að færa pen­ing­anna sína í gegnum fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­ina. Hann und­ir­­rit­aði síðan pen­inga­þvætt­is­yf­ir­lýs­ingu um að hann væri raun­veru­­legur eig­andi fjár­­mun­anna sem verið var að færa og stað­­fest­ingu á því að hann hefði ekki verið ákærður fyrir brot á lögum um gjald­eyr­is­­mál.

[links]Á síð­ustu árum hefur hins vegar komið í ljós að pen­inga­þvætt­is­eft­ir­lit íslenskra banka, og stjórn­­­valda, hefur verið óvið­un­andi. Það fékk fall­ein­kunn hjá sam­tök­unum Financial Action Task Force (FATF) í apríl 2018 og þess kraf­ist að umfangs­­miklar úrbætur yrðu gerð­­ar, ann­­ars yrði Ísland sett á óæski­legan lista. Ísland var svo sett á gráan lista sam­tak­ana í októ­ber í fyrra.

Fjár­­­mála­eft­ir­litið fram­­kvæmdi athug­­anir á því hvernig fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki hafi staðið sig í vörnum gegn pen­inga­þvætti á árunum 2018 og 2019. Nið­ur­staðan var að hjá öllum fjórum við­skipta­bönk­unum voru brotala­mir í pen­inga­þvætt­is­vörnum þeirra, þótt þær væru mis­mun­andi miklar. Innan þeirri allra skorti á að upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur félaga eða fjár­muna hafi almennt verið metnar með sjálf­stæðum hætti.

Ekki hægt að útiloka blekkingar

Í grein­ar­gerð sem fylgdi þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni þegar hún var lögð fram sagði að fjár­fest­ing­ar­leiðin hafi verið gagn­rýnd af ýmsum ástæðum, en telja verði sér­stak­lega mik­il­vægt í ljósi umræðu um aflandseignir og skattaund­an­skot á síð­ustu miss­erum að leit­ast verði við að rann­saka og fjalla um hvort fjár­fest­ing­ar­leiðin hafi stuðlað að því að fjár­magn vegna skattaund­an­skota, sem geymt var í skjóli á aflandseyjum, hafi verið fært til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina með afslætti.

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, á Alþingi hafi til að mynda komið fram að ekki væri hægt að úti­loka að í ein­hverjum til­vikum hafi ekki verið farið í einu og öllu að ákvæðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar.

Í skýrslu sem Seðla­banki Íslands birti um fjár­fest­ing­ar­leið­ina í fyrra­sumar kom fram aflands­fé­lög frá lág­skatta­svæðum hefðu flutt inn 2,4 pró­sent af heild­ar­fjár­fest­ingu í gegnum leið­ina. Eðli­legt væri, í ljósi sög­unn­ar, að gagn­rýna að það hefði verið ger­legt að ferja fjár­muni frá slíkum svæðum í gegnum hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárfestingarleið

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hneykslið þar sem til­gangur helgar pen­inga­þvætti

Seðla­banki Íslands hefur und­an­farna mán­uði birt tvær skýrslur þar sem hann rann­sakar sjálfan sig. Sú fyrri, sem fjall­aði um 500 milljón evra neyð­ar­lán til Kaup­þings á neyð­ar­laga­dag­inn 6. októ­ber 2008, var fjögur ár í vinnslu. Þegar hún kom loks út í lok maí 2019 var nið­ur­staða hennar aðal­lega sú að eftir á að hyggja hefði ekki átt að veita lánið,...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár