Rannsókn Alþingis á fjárfestingarleiðinni gæti náð yfir Samherja

Samherji flutti rúm­lega tvo millj­arða króna í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Þeir pen­ingar komu frá félagi sam­stæð­unnar á Kýpur, sem tók við hagn­aði af starf­semi Samherja í Namibíu.

Á fimmtu­dag var greint frá því að allir þing­menn Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar hefðu lagt fram sam­eig­in­lega þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að skipuð verði sér­stök þriggja manna rann­sókn­ar­nefnd Alþingis sem á að rann­saka hina svoköll­uðu fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Sú leið var við lýði á árunum 2012 til 2015 og gerði meðal ann­ars Íslend­ingum sem áttu pen­inga erlendis, meðal ann­ars í skatta­skjólum, kleift að flytja þá pen­inga inn í íslenskt hag­kerfi með allt að 20 pró­sent virð­is­aukn­ingu. Við­kom­andi gátu líka margir hverjir leyst út mik­inn geng­is­hagnað, enda höfðu þeir flutt fjár­magnið út áður en krónan féll í hrun­inu. Þá fengu þeir ákveðið heil­brigð­is­vott­orð um að pen­ing­arnir væru „hreinir“ með því að nýta sér leið­ina, en umfjall­anir Kjarnans á síð­ustu árum hafa sýnt að lítið sem ekk­ert var gert til að kanna raun­veru­legan upp­runa þeirra fjár­muna sem komu til lands­ins í gegnum leið­ina. Alls var um að ræða 206 millj­arða króna. Þar af komu íslenskir aðilar með 72 millj­arða króna.

[adspot]Í til­lög­unni er farið fram á að nefndin geri grein fyrir því hvaða fjár­magnið sem flutt var til lands­ins með fjár­fest­ing­ar­leið­inni kom, hvaða ein­stak­lingar eða félög voru skráð fyrir fjár­magn­inu sem flutt var til lands­ins, hvernig fénu sem flutt var inn til lands­ins var varið og hver áhrif þess voru á íslenskt efna­hags­líf. Þar er einnig kallað eftir að upp­lýs­ingar verði dregnar fram um hvort rík­is­sjóður hafi orðið af skatt­tekjum vegna leið­ar­innar og þá hversu mikið það tap var, hvort að sam­þykkt til­boð í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar kunni í ein­hverjum til­vikum að hafa brotið gegn skil­málum hennar og hvort fjár­fest­ing­ar­leiðin kunni að hafa verið notuð til að koma óskráðum og óskatt­lögðum eignum Íslend­inga á aflands­svæðum aftur til lands­ins, til að stunda pen­inga­þvætti eða mis­notuð með öðrum hætti.

Á meðal ann­arra sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina var félag í eigu Samherja. Um er að ræða félagið Esju Seafood á Kýpur, sem tók við hagn­aði af starf­semi Samherja í Namibíu. Esja Seafood lán­aði öðru félagið Samherja, Kaldbaki, um 2,4 millj­arða króna árið 2012 í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Í Stund­inni á þriðju­dag var greint frá því að Kald­bakur hafi meðal ann­ars lánað enn öðru félagi Samherja, Katta­nefi ehf., 300 millj­ónir króna til að fjár­festa í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Það félag var svo selt til Ramses II ehf., félags í eigu Eyþórs Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, árið 2017, á 325 millj­ónir króna. Samherji lán­aði Ramses II fyrir kaup­unum.

Rann­sókn­ar­nefndin, verði til­lagan sam­þykkt, á að skila nið­ur­stöðum sínum í skýrslu­formi svo fljótt sem verða má og eigi síðar en 1. októ­ber 2020. Fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar er Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata. Alls eru 17 þing­menn skrif­aðir fyrir henni.

Tugir milljarða flæddu inn í landið

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­leið­inni frá því í febr­­­­­­úar 2012 til febr­­­­­­úar 2015, þegar síð­­­­­­asta útboðið fór fram. Á grund­velli útboða hennar komu um 1.100 millj­­­­­­ónir evra til lands­ins, sem sam­svarar um 206 millj­­­­­­örðum króna.

Ef þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­­­­­­bank­ans, líkt og venju­­­­­­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­­­­­­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­­­­­­arðar króna. Skil­yrt var að binda þyrfti féð sem fært var inn í landið með þessu hætti í fast­­­­­­eign­um, verð­bréf­um, fyr­ir­tækjum eða öðrum fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­kost­­­­­­um. Því má segja að þeir sem hafi nýtt sér fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­ina hafi fengið um 20 pró­­­­­­sent afslátt af þeim eignum sem þeir keyptu.

[links]794 inn­­­­­­­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leiðar Seðla­­­­­­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­­­­sent þeirrar fjár­­­­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­­­­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­­­­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi.

Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­­­­kvæmt skil­­­­­­málum útboða fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­­­­­­ar­inn­­­­­­ar. Afslátt­­­­­­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­­­­­bank­ans er um 17 millj­­­­­­arðar króna.

Í skýrslu sem Seðla­banki Íslands birti um fjár­fest­ing­ar­leið­ina í sumar kom fram aflands­fé­lög frá lág­skatta­svæðum hefðu flutt inn 2,4 pró­sent af heild­ar­fjár­fest­ingu í gegnum leið­ina. Eðli­legt væri, í ljósi sög­unn­ar, að gagn­rýna að það hefði verið ger­legt að ferja fjár­muni frá slíkum svæðum í gegnum hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárfestingarleið

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hneykslið þar sem til­gangur helgar pen­inga­þvætti

Seðla­banki Íslands hefur und­an­farna mán­uði birt tvær skýrslur þar sem hann rann­sakar sjálfan sig. Sú fyrri, sem fjall­aði um 500 milljón evra neyð­ar­lán til Kaup­þings á neyð­ar­laga­dag­inn 6. októ­ber 2008, var fjögur ár í vinnslu. Þegar hún kom loks út í lok maí 2019 var nið­ur­staða hennar aðal­lega sú að eftir á að hyggja hefði ekki átt að veita lánið,...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár