Hundruð milljóna króna undanskot vegna fjárfestingarleiðar vísað til héraðssaksóknara

Mál tengt ein­stak­lingi sem grun­aður er um að hafa skotið undan fjár­magnstekjum með því að nýta sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands er farið frá skatt­rann­sókn­ar­stjóra til hér­aðs­sak­sókn­ara, sem mun taka ákvörðun um refsi­með­ferð í mál­inu.

Ólafur Þór Hauksson er héraðssaksóknari.
Ólafur Þór Hauksson er hér­aðs­sak­sókn­ari. Mynd: Hringbraut

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hefur vísað máli tengt ein­stak­lingi sem nýtti sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands, og er grun­aður um að hafa skotið undan fjár­magnstekjum, til hér­aðs­sak­sókn­ara. Í mál­inu er grunur um und­an­skot sem nema á þriðja hund­rað millj­óna króna. Þetta hefur Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri stað­fest við Kjarnann.

Rannsókn máls­ins lauk fyrir nokkru síðan en mun lengur hefur tekið en búist var við að taka ákvörðun um hvort málið yrði áfram­sent til hér­aðs­sak­sóknar til refsi­með­ferðar eða ekki. Í umsögn sem emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra skil­aði um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um rann­sókn á fjár­fest­ing­ar­leið­inni, sem var til með­ferðar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fyrr á þessu ári, sagði að í sam­ráði við emb­ætti rík­is­skatt­stjóra hafi verið „tekin ákvörðun um að áfram­hald­andi skoðun gagn­anna yrði í fyrstu á for­ræði þess emb­ættis sem eftir atvikum myndi vísa aftur málum til skatt­rann­sókn­ar­stjóra í þeim til­vikum er athugun myndi vekja grun um refsi­verð brot.“

[adspot]Eftir rann­sókn skatt­rann­sókn­ar­stjóra fór það því til rík­is­skatt­stjóra sem vís­aði því aftur til skatt­rann­sókn­ar­stjóra, sem sendi það í kjöl­farið til hér­aðs­sak­sókn­ara til refsi­með­ferðar.

Hægt að fá mikla virðisaukningu

Fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­leið Seðla­­­­­­banka Íslands, sem einnig var nefnd 50/50 leið­in, var gríð­­­­­­ar­­­­­­lega umdeild aðferð sem Seðla­­­­­­bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­­­­­­hengju, krón­u­­­­­­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­­­­­­­­­­­magns­hafta og gerðu stjórn­­­­­­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­­­­­­ari losun þeirra hafta. Sam­­­­­­kvæmt henni gátu þeir sem sam­­­­­­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­­­­­­stæð­­­­­­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka. Leiðin stóð til boða frá 2012 til 2015.

794 inn­­­­­­­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leiðar Seðla­­­­­­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­­­­sent þeirrar fjár­­­­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­­­­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­­­­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­­­­kvæmt skil­­­­­­málum útboða fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­­­­­­ar­inn­­­­­­ar. Afslátt­­­­­­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­­­­­bank­ans er um 17 millj­­­­­­arðar króna.

Skoðaði nokkra einstaklinga

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra fékk afhent öll gögn um þá ein­stak­linga sem nýttu fjár­fest­ing­ar­leið­ina á árinu 2016, eða fyrir fjórum árum síðar.

Þegar þau voru sam­keyrð við gögn sem emb­ættið keypti sum­­­arið 2015 á 37 millj­­ónir króna, og sýndu eignir Íslend­inga í þekktum skatta­­skjól­um, kom í ljós að 21 ein­stak­l­ingar fór fjár­­­fest­inga­­leið­ina var einnig í skatta­­skjóls­­gögn­un­­um. Í byrjun árs 2018, fyrir tveimur árum síðan, lágu fyrir nið­ur­stöður for­skoð­unar ell­efu til­vika er vörð­uðu nýt­ingu fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar og voru þau til­vik „valin úr mengi til­vika þar sem aðilar voru ein­stak­lingar búsettir hér á landi á tíma útboðs auk þess sem um hafði rætt fjár­færslur fyrir ofan ákveðna fjár­hæð.“

Það mengi sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri skoð­aði sneri þó, líkt og áður sagði, ein­ungis að ein­stak­lingum, ekki lög­að­ilum eins og einka­hluta­fé­lögum. Til að setja það í sam­hengi við umfang þeirra sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina þá voru alls sam­þykkar umsóknir frá 754 ein­stak­lingum en 318 lög­að­ilum um að fara leið­ina, eða alls 1.072 aðila. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri skoð­aði ein­ungis ein­stak­linga sem búsettir voru á Íslandi, en þeir voru 231. Því inni­hélt mengið sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri valdi ell­efu til­vik til að skoða úr, tæp­lega 22 pró­sent þeirra ein­stak­linga og lög­að­ila sem nýttu leið­ina. Þau ell­efu til­vik sem emb­ættið tók til for­skoð­unar eru um eitt pró­sent þeirra sem tóku þátt í útboðum leið­ar­innar.

Vildu láta skipa rannsóknarnefnd um leiðina

Í nóv­em­ber í fyrra lögðu allir þing­menn Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að skipa rann­sókn­ar­nefnd á fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands.

[links]Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni er farið fram á að rann­sókn­ar­nefndin geri grein fyrir því hvaðan fjár­magnið sem flutt var til lands­ins með fjár­fest­ing­ar­leið­inni kom, hvaða ein­stak­lingar eða félög voru skráð fyrir fjár­magn­inu sem flutt var til lands­ins, hvernig fénu sem flutt var inn til lands­ins var varið og hver áhrif þess voru á íslenskt efna­hags­líf.

Þar er einnig kallað eftir að upp­lýs­ingar verði dregnar fram um hvort rík­is­sjóður hafi orðið af skatt­tekjum vegna leið­ar­innar og þá hversu mikið það tap var, hvort að sam­þykkt til­boð í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar kunni í ein­hverjum til­vikum að hafa brotið gegn skil­málum hennar og hvort fjár­fest­ing­ar­leiðin kunni að hafa verið notuð til að koma óskráðum og óskatt­lögðum eignum Íslend­inga á aflands­svæðum aftur til lands­ins, til að stunda pen­inga­þvætti eða mis­notuð með öðrum hætti.

Nefnd­in á, sam­kvæmt til­lög­unni, að skila nið­ur­stöðum sínum í skýrslu­formi svo fljótt sem verða má og eigi síðar en 1. októ­ber 2020.

Þótt málið hafi gengið til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í jan­úar síð­ast­liðnum þá hefur það ekki verið afgreitt þaðan og engar líkur á að það klárist á yfir­stand­andi þingi. Því má telja það ljóst að rann­sókn­ar­nefndin, verði hún skipuð, mun ekki geta skilað nið­ur­stöðu fyrir 1. októ­ber næst­kom­andi.

Leggjast ekki gegn rannsókn

Ýmsir hafa þó skilað inn umsögnum um málið. Kjarninn greindi til að mynda frá því í febr­úar að Seðla­banki Íslands legg­ist ekki sér­stak­lega gegn því að fram fari rann­sókn á flutn­ingi fjár til lands­ins á grund­velli fjár­fest­ing­ar­leiðar hans telji Alþingi lík­legt að slík rann­sókn bæti ein­hverju við þá rann­sókn sem þegar hefur farið fram á vegum rík­is­skatt­stjóra og skatt­rann­sókn­ar­stjóra á leið­inni.

Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands hefur líka skilað umsögn um til­lög­una þar sem fram kemur að hún styðji til­lög­una um rann­sókn. 

Seðla­banki Íslands hefur hingað til ekki viljað upp­lýsa um hverjir það voru sem nýttu sér leið­ina, og borið fyrir sig þagn­ar­skyldu­á­kvæði laga um bank­ann. ­Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, svar­aði fyr­ir­spurn um málið á Alþingi í jan­úar og tók sama pól í hæð­ina og Seðla­bank­inn. Hann taldi sér ekki heim­ilt að birta nöfn þeirra sem fluttu fjár­­­magn til Íslands í gegnum fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­ina.

Máli sínu til stuðn­­ings vís­aði Bjarni í úrskurð úrskurð­­ar­­nefndar um upp­­lýs­ing­­ar­­mál vegna kæru Kjarn­ans á synjun Seðla­­banka Íslands um aðgang að upp­­lýs­ing­unum frá því í jan­úar 2019. Í þeim úrskurði sagði meðal ann­­ars að for­taks­­laus þagn­­ar­­skylda Seðla­­banka Íslands gagn­vart við­­skipta­­mönnum sínum komi í veg fyrir að slíkar upp­­lýs­ingar séu gerðar opin­berar „óháð hags­munum almenn­ings af því að fá að kynna sér þær.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárfestingarleið

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hneykslið þar sem til­gangur helgar pen­inga­þvætti

Seðla­banki Íslands hefur und­an­farna mán­uði birt tvær skýrslur þar sem hann rann­sakar sjálfan sig. Sú fyrri, sem fjall­aði um 500 milljón evra neyð­ar­lán til Kaup­þings á neyð­ar­laga­dag­inn 6. októ­ber 2008, var fjögur ár í vinnslu. Þegar hún kom loks út í lok maí 2019 var nið­ur­staða hennar aðal­lega sú að eftir á að hyggja hefði ekki átt að veita lánið,...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár