Enn neitað að opinbera hverjir nýttu sér fjárfestingarleið Seðlabankans

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið telur ekki heim­ilt að upp­lýsa um hverjir ferj­uðu fjár­muni til Íslands í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands og tekur undir að þagn­ar­skylda gagn­vart þeim komi í veg fyrir það, óháð hags­munum almenn­ings.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, svaraði fyrirspurn Ólafs Ísleifssonar um fjárfestingarleiðina í vikunni.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, svar­aði fyr­ir­spurn Ólafs Ísleifs­sonar um fjár­fest­ing­ar­leið­ina í vik­unni. Mynd: Bára Huld Beck


Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, telur sér ekki heim­ilt að birta nöfn þeirra sem fluttu fjár­magn til Íslands í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Í svari við fyr­ir­spurn Ólafs Ísleifs­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, um málið segir ráð­herr­ann að sam­kvæmt ákvæðis um þagn­ar­skyldu í lögum um Seðla­banka Íslands megi ekki birta upp­lýs­ing­arnar opin­ber­lega. Við vinnslu svars­ins afl­aði ráðu­neytið sér upp­lýs­inga frá Seðla­bank­anum.

Máli sínu til stuðn­ings vísar Bjarni í úrskurð úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­ing­ar­mál vegna kæru Kjarnans á synjun Seðla­banka Íslands um aðgang að upp­lýs­ing­unum frá því í jan­úar 2019. Í þeim úrskurði sagði meðal ann­ars að for­taks­laus þagn­ar­skylda Seðla­banka Íslands gagn­vart við­skipta­mönnum sínum komi í veg fyrir að slíkar upp­lýs­ingar séu gerðar opin­berar „óháð hags­munum almenn­ings af því að fá að kynna sér þær.“

Kjarn­inn hefur á und­an­förnum árum ítrekað farið fram á að fá upp­lýs­ingar um þá ein­stak­linga og lög­að­ila sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands og hversu háar fjár­hæðir hver og einn flutti til lands­ins. Seðla­banki Íslands hefur ætið hafnað þess­ari beiðni og vísað í þagn­ar­skyldu­á­kvæði þeirra laga sem gilda um starf­semi bank­ans.

Hluti opinberaður í fjölmiðlum

Þótt stjórn­völd hafi ekki viljað upp­lýsa um hverjir það voru sem nýttu sér leið­ina hingað til þá hafa fjöl­miðlar getað upp­lýst um félög í eigu aðila sem það gerð­u. Á meðal þeirra sem hafa nýtt sér þessa leið eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­­munds­­sona, Hreið­­ars Más Sig­­urðs­­son­­ar, Jóns Ólafs­­son­­ar, Jóns Von Tetzchner, knatt­­spyrn­u­­manns­ins Gylfa Þórs Sig­­urðs­­son­­ar, Ólafs Ólafs­­son­­ar, Hjör­­leifs Jak­obs­­son­­ar, Ármanns Þor­­valds­­son­­ar, Kjart­ans Gunn­­ar­s­­son­­ar, Skúla Mogensen, rekstr­ar­fé­lags Iceland Foods, Alvogen, Karls og Stein­gríms Wern­er­s­­sona og danskra eig­enda Húsa­smiðj­unn­­ar.

[adspot]Á meðal ann­arra sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina var til að mynda félag í eigu Samherja, sem hefur verið mikið í sviðs­ljós­inu und­an­farnar vikur. Um er að ræða félagið Esju Seafood á Kýpur, sem tók við hagn­aði af starf­semi Samherja í Namibíu. Esja Seafood lán­aði öðru félagið Samherja, Kaldbaki, um tvo millj­arða króna árið 2012 í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Stundin greindi frá því síðla árs í fyrra að Kald­bakur hafi meðal ann­ars lánað enn öðru félagi Samherja, Katta­nefi ehf., 300 millj­ónir króna til að fjár­festa í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Það félag var svo selt til Ramses II ehf., félags í eigu Eyþórs Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, árið 2017, á 325 millj­ónir króna. Samherji lán­aði Ramses II fyrir kaup­unum.

794 aðilar fóru í gegn

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­­­­­fest­ing­­ar­­­leið­inni frá því í febr­­­úar 2012 til febr­­­úar 2015, þegar síð­­­asta útboðið fór fram. Allt í allt komu um 1.100 millj­­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið­­­ar­inn­­­ar, sem sam­svarar 206 millj­örðum króna.

794 inn­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leiðar Seðla­­­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­sent þeirrar fjár­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­ari leið, en hún tryggði allt að 20 pró­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­kvæmt skil­­­málum útboða fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið­­­ar­inn­­­ar.

Afslátt­­­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­­bank­ans er um 17 millj­­­arðar króna.

Í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­­­­svæð­um, sem birt var í byrjun jan­ú­­ar 2017, var fjallað um fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið Seðla­­­banka Íslands og því meðal ann­­­ars velt upp hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­­­­­magn­inu frá aflands­­­svæð­um, sem orðið hafi til með ólög­­­mætum hætti, hafi skilað sér Íslands með geng­is­af­slætti í gegnum fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið­ina. Sú skýrsla er gerð fyrir fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­ið.

Orð­rétt sagði í skýrsl­unni: „Miðlun upp­­­lýs­inga um fjár­­­­­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­­­taka í fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið Seðla­­­bank­ans er ekki til stað­­­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­­­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­­­bank­ans þegar um grun­­­sam­­­legar fjár­­­­­magnstil­­­færslur er að ræða. Æski­­­legt má telja að sam­­­starf væri um miðlun upp­­­lýs­inga á milli þess­­­ara stofn­ana.“

Reynt að skipa rannsóknarnefnd

Seðla­banki Íslands birti skýrslu um fjár­fest­ing­ar­leið­ina í fyrra­sumar. Þar sagði að Seðla­bank­inn teldi að fjár­fest­ing­ar­leiðin og rík­is­bréfa­leiðin sem hann stóð fyrir á árunum 2011 til 2015 til að vinna á þeim aflandskrónu­vand­anum og stuðla að afnámi hafta, hafi þjónað til­gangi sínum.

[adspot]Gjald­eyr­is­út­boðin sem leið­irnar fólu í sér hefðu beinst að vanda sem ekki hafi verið auð­veld­lega leystur með öðrum hætti nema á mjög löngum tíma. Aðgerð­unum hafi vissu­lega fylgt „ýmis nei­kvæð hlið­ar­á­hrif, eins og algengt er um aðgerðir af þessu tagi en þau jákvæðu áhrif sem að var stefnt með aðgerð­unum vega þó þyngra á vog­ar­skál­unum.“

Í skýrslu Seðla­bank­ans var einnig við­ur­kennt að flestar efna­hags­legar ráð­staf­anir sem gripið sé til hafi ein­hver óæski­leg hlið­ar­á­hrif. Líklegt væri að það hafi einnig átt við um fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Meðal ann­ars hafi leiðin sett þá sem áttu óskila­skyldan erlendan gjald­eyri í betri stöðu til að kaupa kaupa inn­lendar eignir á lágu verði og gengi. „Áhrif þess á eigna­skipt­ingu kunna að vera nei­kvæð. Í kjöl­far efna­hag­skreppu geta aðilar sem eru í sterkri lausa­fjár- og eig­in­fjár­stöðu jafnan eign­ast eignir á hag­stæðu verði[...]Þótt deila megi um sann­girni þess var fátt sem Seðla­bank­inn gat gert til þess að stuðla að sann­gjarn­ari útkomu innan þess lag­ara­mma sem hann starfar undir og án þess að ganga gegn því mark­miði aðgerð­anna að stuðla að stöð­ug­leika. Í stöð­ug­leik­anum fel­ast afar brýnir almanna­hags­munir sem vega verður á móti óæski­legum tekju­skipt­ing­ar­á­hrifum.“

Seðla­bank­inn við­ur­kenndi einnig að gagn­rýni á heim­ild félaga með heim­il­is­festi í þekktum skatta­skjólum til þátt­töku í fjár­fest­ing­ar­leið­inni hafi verið eðli­leg í ljósi sög­unnar.

Um miðjan nóv­em­ber 2019 lögðu allir þing­menn Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar sam­eig­in­lega fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að skipuð yrði þriggja manna rann­sókn­ar­nefnd af Alþingi til að rann­saka fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands.

Í til­lög­unni var farið fram á að nefndin gerði grein fyrir því hvaðan fjár­magnið sem flutt var til lands­ins með fjár­fest­ing­ar­leið­inni kom, hvaða ein­stak­lingar eða félög voru skráð fyrir fjár­magn­inu sem flutt var til lands­ins, hvernig fénu sem flutt var inn til lands­ins var varið og hver áhrif þess voru á íslenskt efna­hags­líf.

Tillagan hefur enn sem komið er ekki kom­ist á dag­skrá þings­ins og bíður efn­is­legrar með­ferðar.

Grunur um undanskot

Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber í fyrra að emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hefði um nokk­urt skeið haft eitt mál tengt ein­stak­lingi sem nýtti sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands til form­legrar rann­sókn­ar. Með­ferð þess máls er langt komin og ákvörðun um refsi­með­ferð verður tekin í nán­ustu fram­tíð. Í því máli er grunur um und­an­skot fjár­magnstekna er nemur á þriðja hund­rað millj­óna króna.

[links]Emb­ættið hefur alls aflað gagna í um tíu málum ein­stak­linga eftir að það fékk afhent gögn um þá sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina sem leiddi til hinnar form­legu rann­sóknar á mál­inu sem nú er beðið ákvörð­unar um refsi­með­ferð í.

Umrædd gögn voru afhent emb­ætti skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra í apríl 2016. Þegar þau voru sam­keyrð við gögn sem emb­ætti skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra keypti sum­­­arið 2015 á 37 millj­­ónir króna, og sýndu eignir Íslend­inga í þekktum skatta­­skjól­um, kom í ljós að 21 ein­stak­l­ingar fór fjár­­­fest­ingar­­leið­ina var einnig í skatta­­skjóls­­gögn­un­­um. Þeir ein­stak­l­ingar nýtt sér umrædda leið á árunum 2012 til 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárfestingarleið

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hneykslið þar sem til­gangur helgar pen­inga­þvætti

Seðla­banki Íslands hefur und­an­farna mán­uði birt tvær skýrslur þar sem hann rann­sakar sjálfan sig. Sú fyrri, sem fjall­aði um 500 milljón evra neyð­ar­lán til Kaup­þings á neyð­ar­laga­dag­inn 6. októ­ber 2008, var fjögur ár í vinnslu. Þegar hún kom loks út í lok maí 2019 var nið­ur­staða hennar aðal­lega sú að eftir á að hyggja hefði ekki átt að veita lánið,...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár