Komu aflandspeningar til landsins á afslætti?

Í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum er því velt upp hvort fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands hafi verið notuð til koma eignum úr skatta­skjólum inn í landið.

Í skýrslu um aflandseignir Íslend­inga, sem birt var fyrst í gær, er fjallað um fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands og því meðal ann­ars velt upp, hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­magn­inu frá aflandseyj­unum hafi skilað sér Íslands, með geng­is­af­slætti, í gegnum fjár­fest­inga­leið­ina.

„Að lokum má fyrir for­vitni sakir velta upp þeirri spurn­ingu hvort fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans hafi orðið til þess að eitt­hvað af þessu fjár­magni flutt­ist aftur heim eftir hrun. Þegar litið var til þátt­töku í fjár­fest­ing­ar­leið­inni feng­ust þær upp­lýs­ingar, að frá svæðum sem skil­greind eru sem lág­skatta­svæði sam­kvæmt lista fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins tóku 7 lög­að­ilar í meiri­hluta­eigu íslenskra aðila þátt í ein­hverju af 21 útboði fjár­fest­ing­ar­leiðar á árunum 2012 til 2015 með 13 m. evra alls. Frá Lúx­em­borg, Kýpur og Möltu tóku alls 12 lög­að­ilar í meiri­hluta­eigu íslenskra aðila þátt í útboð­unum, alls með 41 m. evra. Þetta má tvö­falda þar sem aðil­arnir þurftu að skipta öðru eins á álands­gengi til þess að upp­fylla skil­yrði útboðs­ins. Er því alls um 108 m. evra að ræða, eða rúm­lega 14 ma.kr. á gengi dags­ins í dag. Þetta er óveru­leg fjár­hæð hvort sem litið er til ætl­aðra aflandseigna í heild (<3%) eða eign­ar­halds aflands­fyr­ir­tækja í Kauphöll 2007 (<1%). Það sem máli skiptir í þessu sam­hengi er þó það, að þessir fjár­magns­flutn­ingar drag­ast ekki frá aflandseignum Íslend­inga þar sem fjár­mun­irnir eru enn í eigu aflands­fé­laga. Hitt er aftur á móti ekki úti­lokað, að af 226 mö.kr. sem eftir standa af þeim 240 mö.kr. sem fjár­fest­ing­ar­leiðin skil­aði, kann eitt­hvað að vera fé sem verið er að færa út úr aflands­fé­lögum í eigu Íslend­inga og inn í íslensk félög eða yfir á nafn ein­stak­ling­anna sjálfra,“ segir í skýrsl­unni.

Erfitt að greina

Tekið er fram sér­stak­lega að erfitt sé að greina þessa hluti, þannig að vel sé gert. Þá er tekið fram að Seðla­bank­inn hafi veitt und­an­þágur fyrir flutn­ingi á aflandskrónum upp á tugi millj­arða króna. „Seðla­bank­inn hefur aftur á móti veitt aðilum sem sýnt hafa fram á sam­fellt eign­ar­hald á aflandskrónum heim­ild til þess að flytja þær heim til Íslands, enda sýnt fram á að ekki hafi verið átt við­skipti með þær krónur á aflandskrónu­mark­aði. Samtals nema und­an­þágur til flutn­ings aflandskrónu­eigna hingað til lands 28 mö.kr. Í hvaða til­gangi það fé var flutt út upp­haf­lega er óljóst, en ekki er ólík­legt að það hafi verið vegna skatta­legrar hag­ræð­ingar og telj­ist féð því til aflands­fjár. Greining á þessu hefði einnig kallað á nokkra yfir­legu og jafn­vel þó - 11 - í ljós kæmi að með réttu ætti að draga allt þetta fé frá mati á aflandseignum myndi það ekki breyta nið­ur­stöð­unni stór­kost­lega (um 5%),“ segir í skýrsl­unni.

Stökkbreyting

Eins og greint var frá í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans í gær, þá varð stökk­breyt­ing á flæði fjár til aflands- og lág­skatta­svæða á fyrsta ára­tug þess­arar aldar, og fjöldi aflands­fé­laga í eigu Íslend­inga fer­tug­fald­að­ist frá árinu 1999 og fram að hruni. Eignir í stýr­ingu íslensku bank­anna í Lúx­em­borg 46-föld­uð­ust á sama tíma­bili. Upp­safnað umfang eigna Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 til 2015 nemur ein­hvers staðar á bil­inu 350 til 810 millj­örðum króna, og tekju­tap hins opin­bera á árunum 2006 til 2014 nemur lík­lega um 56 millj­örðum króna. Á hverju ári gæti tapið vegna van­tal­inna skatta verið á bil­inu 4,6 til 15,5 millj­arðar króna.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu starfs­hóps, sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra skip­aði í kjöl­far upp­ljóstrana Panama­skjal­anna í apríl á síð­asta ári. Starfs­hóp­ur­inn skil­aði skýrslu sinni í sept­em­ber og kynnti hana í fjár­mála­ráðu­neyt­inu í byrjun októ­ber síð­ast­lið­ins, en hún var ekki kynnt fyrir Alþingi fyrir kosn­ingar. Kjarninn spurð­ist ítrekað fyrir um málið, og í nóv­em­ber var greint frá því að skýrslan kæmi fyrir nýtt Alþingi þegar það kæmi saman. Af því varð ekki, og Kjarninn sagði frá því fyrr í þess­ari viku að ekk­ert bólaði á skýrsl­unni þrátt fyrir að þing hafi komið saman í byrjun des­em­ber. Í dag var skýrslan svo gerð opin­ber, og hún hefur verið send til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis.

Í starfs­hópnum áttu sæti Sig­urður Ing­ólfs­son, for­mað­ur, Andrés Þor­leifs­son frá­ Fjár­mála­eft­ir­lit­inu, Anna Borg­þórs­dóttir Olsen frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, Björn R. Guð­munds­son frá Hag­stofu Íslands, Fjóla Agn­ars­dóttir frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­in­u, Guð­mundur Sig­bergs­son frá Seðla­banka Íslands, Sig­urður H. Ingi­mars­son frá­ skatt­rann­sókna­stjóra og Sig­urður Jens­son frá rík­is­skatt­stjóra.

Starfs­maður hóps­ins var Íris H. Atla­dóttir frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­in­u. Hópurinn tekur marg­sinnis fram í skýrsl­unni að erfitt sé að meta umfang og tap af aflands­fé­lögum, og að flestar rann­sóknir af þessu tagi taki mörg ár, en ekki nokkrar vikur eins og hér var raunin. Þá tekur hóp­ur­inn fram að ljóst sé að þær tölur sem kynntar eru í skýrsl­unni séu aðeins bráða­birgða­nið­ur­stöður og mun ítar­legri grein­ingar sé þörf. „Telur starfs­hóp­ur­inn að gagn­legt gæti verið að taka upp þráð­inn aftur síðar og freista þess að taka á þeim mörgu álita­málum sem upp komu í vinnu­ferl­inu að þessu sinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár