Eitt mál tengt fjárfestingaleið Seðlabankans til rannsóknar

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri er enn að vinna úr gögnum sem emb­ættið fékk afhent um þá sem nýttu sér fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands. Rannsókn er þó hafin á einu máli.

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra rann­sakar eitt mál tengd fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands. Auk þess er verið að vinna í gögnum sem emb­ættið fékk afhent um þá sem nýttu sér leið­ina í sam­vinnu við emb­ætti rík­is­skatt­stjóra. Meðal ann­ars hafa verið sendar út fyr­ir­spurnir til gjald­enda og fram­hald þeirra mála mun ráð­ast af því sem út úr þeim kemur.

Þetta kemur fram í svari Bryn­dísar Krist­jáns­dóttur skatt­rann­sókn­ar­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Umrædd gögn voru afhent emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra í apríl 2016. Þegar þau voru sam­keyrð við gögn sem emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra keypti sum­arið 2015 á 37 millj­ónir króna, og sýndu eignir Íslend­inga í þekktum skatta­skjólum, kom í ljós að 21 ein­stak­lingar fór fjár­fest­inga­leið­ina var einnig í skatta­skjóls­gögn­unum. Þeir ein­stak­lingar nýtt sér umrædda leið á árunum 2012 til 2015.

794 inn­lendir aðilar

Fjár­­­­­­­fest­inga­­­­leið Seðla­­­­banka Íslands, sem einnig var nefnd 50/50 leið­in, var gríð­­­­ar­­­­lega umdeild aðferð sem Seðla­­­­bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­­­­hengju, krón­u­­­­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­­­­­­­magns­hafta og gerðu stjórn­­­­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­­­­ari losun þeirra hafta. Sam­­­­kvæmt henni gátu þeir sem sam­­­­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­­­­stæð­­­­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka. Mun hag­­­­stæð­­­­ara gengi.

Þeir sem tóku á sig „tap­ið“ í þessum við­­­­skiptum voru aðilar sem áttu krónur fastar innan hafta en vildu kom­­­­ast út úr íslenska hag­­­­kerf­inu með þær. Þeir sem „græddu“ voru aðilar sem áttu erlendan gjald­eyri en voru til­­­­­­­búnir að koma til Íslands og fjár­­­­­­­festa fyrir hann. Seðla­­­­bank­inn var síðan í hlut­verki milli­­­­­­­göng­u­að­ila sem gerði við­­­­skiptin mög­u­­­­leg. Líkt og verslun sem leiddi heild­­­­sala og neyt­endur sam­­­­an.

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­­­­­­­fest­inga­­­­leið­inni frá því í febr­­­­úar 2012 til febr­­­­úar 2015, þegar síð­­­­asta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 millj­­­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­­­­­fest­ing­­­­ar­­­­leið­­­­ar­inn­­­­ar, sem sam­svarar um 206 millj­­­­örðum króna.

Ef þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­­­­bank­ans, líkt og venju­­­­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­­­­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­­­­­­­fest­inga­­­­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­­­­arðar króna. Skil­yrt var að binda þyrfti féð sem fært var inn í landið með þessu hætti í fast­­­­eign­um, verð­bréf­um, fyr­ir­tækjum eða öðrum fjár­­­­­­­fest­inga­­­­kost­­­­um. Því má segja að þeir sem hafi nýtt sér fjár­­­­­­­fest­ing­­­­ar­­­­leið­ina hafi fengið um 20 pró­­­­sent afslátt af þeim eignum sem þeir keyptu.

794 inn­­­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­­­fest­ing­­­­ar­­­­leiðar Seðla­­­­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­­sent þeirrar fjár­­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi.

Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­­kvæmt skil­­­­málum útboða fjár­­­­­­­fest­ing­­­­ar­­­­leið­­­­ar­inn­­­­ar. Afslátt­­­­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­­­bank­ans er um 17 millj­­­­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár