Lagt til að fjárfestingarleið Seðlabankans verði rannsökuð

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um að gerð verði rann­sókn á fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands hefur verið birt á vef Alþingis. Þriggja manna nefnd á að upp­lýsa um hverjir komu með fé í gegnum leið­ina og hvaða það fé kom.

Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son er seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tíu þing­menn Pírata hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að gerð verð rann­sókn á fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Samkvæmt til­lög­unni á þriggja manna nefnd sem for­seti Alþingis skipar að fara með rann­sókn­ina og hún á að starfa í sam­ræmi við lög um rann­sókn­ar­nefndir.

Nefndin, verði hún skipuð, á að leggja mat „hvernig til hafi tek­ist þegar fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands var komið á fót, m.a. fram­kvæmd hennar og efna­hags­leg áhrif.“ Í þessu skyni geri nefndin grein fyrir:

  • fjár­magn­inu sem flutt var til lands­ins með fjár­fest­ing­ar­leið­inni;
  • hvaðan fjár­magnið kom;
  • hvaða ein­stak­lingar voru skráðir fyrir fjár­magn­inu sem flutt var til lands­ins eða hvaða félög og eign­ar­haldi; þeirra;
  • hvernig fénu sem fært var inn til lands­ins var varið, þ.e. til hvaða fjár­fest­inga það var notað og hvaða áhrif þær fjár­fest­ingar hafa haft á íslenskt efna­hags­líf;
  • hvort rík­is­sjóður hafi orðið af skatt­tekjum vegna þessa og þá hversu stórt umfang slíks taps hafi verið.

Farið er fram á að nefndin skili nið­ur­stöðum sínum í skýrslu­formi svo fljótt sem verða má og eigi síðar en 31. jan­úar 2018.

Gríðarlega umdeild leið

Fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands, sem einnig var nefnd 50/50 leið­in, var gríð­ar­lega umdeild aðferð sem Seðla­bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­hengju, krónu­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­magns­hafta og gerðu stjórn­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­ari losun þeirra hafta. Sam­kvæmt henni gátu þeir sem sam­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­stæð­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka. Mun hag­stæð­ara gengi.

[links]

Þeir sem tóku á sig „tap­ið“ í þessum við­skiptum voru aðilar sem áttu krónur fastar innan hafta en vildu kom­ast út úr íslenska hag­kerf­inu með þær. Þeir sem „græddu“ voru aðilar sem áttu erlendan gjald­eyri en voru til­búnir að koma til Íslands og fjár­festa fyrir hann. Seðla­bank­inn var síðan í hlut­verki milli­göngu­að­ila sem gerði við­skiptin mögu­leg. Líkt og verslun sem leiddi heild­sala og neyt­endur sam­an.

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­fest­inga­leið­inni frá því í febr­úar 2012 til febr­úar 2015, þegar síð­asta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 millj­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar, sem sam­svarar um 206 millj­örðum króna.

Ef þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­bank­ans, líkt og venju­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­fest­inga­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­arðar króna. Skil­yrt var að binda þyrfti féð sem fært var inn í landið með þessu hætti í fast­eign­um, verð­bréf­um, fyr­ir­tækjum eða öðrum fjár­fest­inga­kost­um. Því má segja að þeir sem hafi nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina hafi fengið um 20 pró­sent afslátt af þeim eignum sem þeir keyptu.

Margir innlendir aðilar nýttu sér leiðina

794 inn­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­kerfi í gegnum útboð fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­sent þeirrar fjár­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi.

Alls fengu þessir aðilar 72 millj­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­kvæmt skil­málum útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar. Afslátt­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­bank­ans er um 17 millj­arðar króna.

Seðla­bank­inn segir að sér sé ekki heim­ilt að greina frá nöfnum þátt­tak­enda í gjald­eyr­is­út­boðum sínum vegna þagn­ar­skyldu­á­kvæðis í lögum um Seðla­banka Íslands.

[adspot]

Á meðal þeirra sem fjöl­miðlar hafa greint frá að hafi nýtt sér þessa leið eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­munds­sona, Hreið­ars Más Sig­urðs­son­ar, Jóns Ólafs­son­ar, Jóns Von Tetzchner, knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­son­ar, Ólafs Ólafs­son­ar, Hjör­leifs Jak­obs­son­ar, Ármanns Þor­valds­son­ar, Kjart­ans Gunn­ars­son­ar, Skúla Mogensen, rekstr­ar­fé­lags Iceland Foods, Alvogen, Karls og Stein­gríms Wern­ers­sona og danskra eig­enda Húsa­smiðj­unn­ar.

Gagnrýnt í aflandseignaskýrslu

Skýrslu um aflandseignir og skattaund­an­skot Íslend­inga, sem birt var snemma á þessu ári, er fjallað um fjár­­­fest­inga­­leið Seðla­­banka Íslands og því meðal ann­­ars velt upp, hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­­­magn­inu frá aflandseyj­unum hafi skilað sér Íslands, með geng­is­af­slætti, í gegnum fjár­­­fest­inga­­leið­ina.

Orð­rétt seg­ir: „Miðlun upp­­lýs­inga um fjár­­­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­­taka í fjár­­­fest­ing­­ar­­leið Seðla­­bank­ans er ekki til stað­­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­­bank­ans þegar um grun­­sam­­legar fjár­­­magnstil­­færslur er að ræða. Æski­­legt má telja að sam­­starf væri um miðlun upp­­lýs­inga á milli þess­­ara stofn­ana.“ Sam­kvæmt þessu gat því fé sem orðið hafði til vegna skattaund­an­skota kom­ist aftur „heim“ til Íslands í gegnum fjár­fest­inga­leið­ina og eig­endur þess notað hið illa fengna fé til að kaupa eignir hér­lendis með afslætti.

Mikilvæg mál sem varðar almenning

Í grein­ar­gerð sem fylgir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Pírata segir að á und­an­förnum árum hafi gagn­rýni á fjár­fest­ing­ar­leið­ina verið hávær, en mis­miklum rökum studd.

Sú gagn­rýni hafi fengið byr undir báða vængi þegar skýrsla fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis, Eignir Íslend­inga á aflands­svæðum, var birt í byrjun jan­úar.

„Segja má að sú rann­sókn sem hér er stefnt að sé að ein­hverju leyti svar við ofan­greindri skýrslu og að hún muni, síð­ast en ekki síst, varpa ljósi á hul­inn hluta íslensks fjár­mála­lífs und­an­far­inna ára og ára­tuga.“

„Lög um rann­sókn­ar­nefndir gera ráð fyrir því að Alþingi geti látið fara fram rann­sókn á mik­il­vægu máli sem varðar almenn­ing. Mik­il­vægi máls þessa felst í því að upp­lýsa um fram­kvæmd fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­banka Íslands, sem var liður í losun gjald­eyr­is­hafta hér­lendis. Fjár­fest­ing­ar­leiðin hefur verið gagn­rýnd af ýmsum ástæðum, en telja verður sér­stak­lega mik­il­vægt í ljósi umræðu um aflandseignir og skattaund­an­skot á síð­ustu miss­erum að leit­ast verði við að rann­saka og fjalla um hvort fjár­fest­ing­ar­leiðin hafi stuðlað að því að fjár­magn vegna skattaund­an­skota, sem geymt var í skjóli á aflandseyjum, hafi verið fært til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina með afslætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár