Stjórnarandstaðan undirbýr vantrauststillögu á Sigríði

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir ræða nú sín á milli um mögu­leika þess að leggja fram van­traust­s­til­lögu á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra, vegna fram­göngu hennar í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða. Þetta herma heim­ildir Kjarnans.

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir ræða nú sín á milli um mögu­leika þess að leggja fram van­traust­s­til­lögu á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra, vegna fram­göngu hennar í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða. Þetta herma heim­ildir Kjarnans.

Allir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir eru nú að íhuga málið eftir fund þing­flokks­for­manna stjórn­ar­and­stöð­unnar í morgun. Formenn og þing­flokks­for­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar munu funda um málið, lík­lega á morgun, og taka ákvörðun um hvort til­lagan verður lögð fram síðar um dag­inn og þá tekin fyrir á fimmtu­dag. Eða hvort hún verður lögð fram á fimmtu­dag og þá ekki tekin fyrir fyrr en mánu­dag­inn 19. mars, þar sem næsta vika er nefnda­vika.

[links]Ástæða þess að flokk­arnir íhuga að bíða með að leggja til­lög­una fram er sú að tveir þing­menn Vinstri grænna, þau Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jónsson, eru á leið úr landi á næstu dögum. Bæði tvö lýstu sig and­víg rík­is­stjórn­ar­sam­starfi Vinstri grænna með Sjálf­stæð­is­flokki og Framsókn þegar stjórnin var mynduð í nóv­em­ber. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir leggja ríka áherslu á að þau Rósa og Andrés séu bæði við­stödd atkvæða­greiðsl­una um van­traust.

Bréfs Umboðs­manns Alþingis var beðið sér­stak­lega en hann skil­aði því til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar á föstu­dag. Greint var frá efni bréfs­ins í for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins í morgun og fór sú fram­setn­ing fyrir brjóstið á ýmsum í stjórn­ar­and­stöð­unni, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans.

Lestu um bréf umboðs­manns hér.

Þar kom fram að hann myndi ekki hefja frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu í ljósi yfir­stand­andi umfjöll­unar dóm­stóla og Alþingis um málið. Hann gerði hins vegar nokkrar veiga­miklar athuga­semdir við máls­með­ferð­ina, meðal ann­ars þá að hann teldi að sá tveggja vikna frestur, sem ráð­herra hefur ítrekað borið við að hafi haft áhrif á mögu­leika hennar til að rann­saka málið, hafi ekki átt við í því til­felli.

Að auki benti hann sér­stak­lega á skyldu sér­fræð­inga ráðu­neyt­is­ins til að veita ráð­herra ráð­gjöf, til að tryggja að ákvarð­anir hans séu lögum sam­kvæmt og að öll stjórn­sýsla ráð­herra og ráðu­neytis sé í sam­ræmi við ólög­festa rétt­mæt­is­reglu stjórn­sýslu­réttar. Ráðherra hafi í þessu til­viki verið veitt sú ráð­gjöf. Eins og kunn­ugt er vör­uðu minnst þrír sér­fræð­ingar ráðu­neyt­is­ins Sigríði ítrekað við því að breyt­ingar á lista Lands­rétt­ar­dóm­ara og sá ófull­nægj­andi rök­stuðn­ingur sem þeim breyt­ingum fylgdi gæti verið brot á stjórn­sýslu­lögum, eins og síðar kom á dag­inn.

Kjarninn hefur greint ítar­lega frá þeirri rétt­ar­fars­legu óvissu sem uppi er vegna skip­ana Sigríðar á fjórum dóm­urum við Lands­rétt, sem voru ekki taldir meðal þeirra hæf­ustu að mati dóm­nefndar. Tveir þeirra sem urðu af dóm­ara­sæti vegna þess­arar ákvörð­unar hafa þegar fengið miska­bætur vegna þess sem Hæsti­réttur taldi brot Sigríðar á stjórn­sýslu­lögum og hinir tveir hafa báðir höfðað mál og gætu átt kröfu á tug­millj­óna skaða­bótum tak­ist þeim að sýna fram á tjón sitt.

Þá hefur Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son kraf­ist þess fyrir Lands­rétti að einn dóm­ar­anna, sem valdir voru án þess að telj­ast meðal þeirra hæf­ustu, víki sæti vegna van­hæfis á grund­velli þess með hvaða hætti staðið var að skipun dóm­ar­ans. Því var hafnað af dóm­ar­anum sjálfum og hefur sú nið­ur­staða verið kærð til Hæsta­réttar. Gert er ráð fyrir því að Hæsti­réttur skili nið­ur­stöðu sinni í mál­inu í þess­ari viku. Vil­hjálmur hefur lagt fram sam­bæri­legar kröfur í málum tveggja ann­arra Lands­rétt­ar­dóm­ara, og eru þau nú í með­förum dóm­stóls­ins. Fari svo að dóm­ar­anum verði gert að víkja er ljóst að engum þess­ara fjög­urra dóm­ara er sætt áfram í sínu emb­ætti og munu allar þeirra emb­ætt­is­færslur vera í lausu lofti. Þá er ekki ólík­legt að jafn­vel þótt Hæsti­réttur telji dóm­ar­ann ekki þurfa að víkja, að mál­inu verði skotið áfram til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, sem gæti tekið nokkur ár að kom­ast að nið­ur­stöðu. Hvernig sem fer er ljóst að réttaró­vissan verður umtals­verð.

Dómarinn sem um er rætt er Arn­fríður Ein­ars­dóttir, eig­in­kona Brynjars Níels­sonar þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem steig úr odd­vita­sæti sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, fyrir Sigríði Á. Andersen og sam­kvæmt kæru Vil­hjálms til Hæsta­réttar, varð þar með af mögu­leik­anum á ráð­herra­sæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár