Sagði Landsrétt hvorki sjálfstæðan né óháðan

Mál­flutn­ingur fór fram um hæfi Arn­fríðar Ein­ars­dóttur lands­rétt­ar­dóm­ara í dag. Tekist var á um skipan Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra í emb­ætti dóm­ara við rétt­inn og hvort einn þeirra skyldi víkja sæti í máli vegna van­hæfis.

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður krefst þess að dómari víki sæti vegna vanhæfis.
Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son lög­maður krefst þess að dóm­ari víki sæti vegna van­hæfis. Mynd: Bára Huld Beck

Mál­flutn­ingur fór fram um van­hæfi Arn­fríðar Ein­ars­dóttur lands­rétt­ar­dóm­ara í dag. Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son lög­maður lagi fyrir helgi fram kröfu um að Arn­fríður viki sæti vegna van­hæfis í máli manns sem sak­felldur var fyrir umferð­ar­laga­brot í hér­aðs­dómi og áfrýjað var til rétt­ar­ins.

Arn­fríður Ein­ars­dóttir var einn þeirra fjög­urra dóm­ara sem skip­aðir voru í rétt­inn af Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra þrátt fyrir að vera ekki meðal þeirra sem hæfn­is­nefnd hafði talið hæf­asta til að gegna emb­ætt­inu.

Óvenjulegar aðstæður

And­rúms­loftið í dóm­salnum í þessum nýja áfrýj­un­ar­dóm­stól var nokkuð magnað. Aðstæður voru enda mjög óvenju­legar. Fyrsti mál­flutn­ingur sem fram fór fyrir dóm­stólnum hafði verið um morg­un­inn og því aðeins um að ræða annað skipti sem mál er flutt fyrir rétt­inum. Húsnæðið er svo nýupp­gert að þar er enn tölu­verð máln­inga­lykt og allar inn­rétt­ingar og umhverfi nýtt og glans­andi.

Þeir Vil­hjálmur og Jón H.B. Snorra­son sak­sókn­ari flutti málið, hvor fyrir sína hlið. Dómarar máls­ins komu inn í nýjum vín­rauðum skykkjum, þau Þorgeir Ingi Njálsson, Jóhannes Sig­urðs­son og fyrr­nefnd Arn­fríður Ein­ars­dóttir, sem málið snýst um. Hinir dóm­ar­arnir tveir voru meðal þeirra fimmtán sem hæfn­is­nefndin taldi hæf­asta.

Arn­fríður setti dóm­þingið sem dóms­for­maður í þessu til­tekna máli, sem átti síðar eftir að skipta máli í mál­flutn­ingi Vil­hjálms. Hún var því sú eina af dóm­ur­unum þremur sem sagði stakt orð í dag. Arn­fríður byrj­aði á því að gefa verj­and­anum, Vil­hjálmi, orðið til að bera fram kröfu sína og færa rök fyrir henni.

Dómar Arnfríðar dauður bókstafur

Vil­hjálmur byrj­aði strax á því að vísa til aðdrag­anda þess að dóm­ar­arnir fimmtán voru skip­aðir við Lands­rétt í júlí á síð­asta ári og að Arn­fríður hefði ekki verið meðal þeirra sem hæfn­is­nefndin taldi hæf­asta, en hefði samt sem áður verið meðal þeirra sem dóms­mála­ráð­herra lagði til við þingið að skip­aðir yrðu. Þannig hafi fjórir af þeim fimmtán sem hæfn­is­nefndin hafði talið meðal þeirra fimmtán hæf­ustu ekki verið skip­aðir. Þá hafi til­lög­urnar verið bornar upp til sam­þykktar í heild sinni í stað þess að leggja hvern umsækj­anda fyrir sig fram fyrir þingið.

Vil­hjálmur vís­aði til ákvæðis stjórn­ar­skrár­innar þar sem segir að skipun dóms­valds­ins verði eigi ákveðin nema með lögum og að öllum beri réttur til að fá úrlausn um ákæru á hendur sér um refsi­verða hátt­semi með rétt­látri máls­með­ferð fyrir óháðum og óhlut­drægum dóm­stóli. Vísaði hann til nið­ur­staðna Hæsta­réttar í bóta­málum tveggja þeirra umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, þar sem þeim voru dæmdar miska­bætur vegna brota á máls­með­ferð­inni við skipan dóm­ar­anna fimmtán. Þannig hafi máls­með­ferðin um mat á hæfni Arn­fríðar ekki verið í sam­ræmi við lög og gengið gegn lögum um dóm­stóla og stjórn­sýlu­lög og verið í and­stöðu við meg­in­reglu um að ávallt skuli skipa hæf­asta umsækj­anda.

„Af öllu fram­an­sögðu er ljóst að Arn­fríður var ekki skipuð í emb­ætti í sam­ræmi við lög eins og er for­taks­laust skil­yrði 59. greinar stjórn­ar­skrár og 2. máls­liðar 1. máls­greinar. 6. greinar mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu,“ sagði Vil­hjálmur.

Vil­hjálmur vís­aði einnig í nýlegar nið­ur­stöður ann­ars vegar EFTA dóm­stóls­ins í máli sem sneri að skipan dóm­ara, þar sem í ákvörðun dóm­stóls­ins kemur fram að gera verði strangar kröfur til þess að réttum máls­með­ferð­ar­reglum sé fylgt við skipun dóm­ara. Hann tók sér­stak­lega fram einn dóm­ara í því máli var Páll Hreins­son, fyrr­ver­andi Hæsta­rétt­ar­dóm­ari á Íslandi og einn fremsti sér­fræð­ingur Íslands hvað varðar hæf­is­reglur.

Einnig vís­aði hann til dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu þar sem vísað var í nið­ur­stöðu EFTA dóm­stóls­ins og fundið að því að ekki máls­með­ferð­ar­reglum hafi ekki verið gætt við skipan dóm­ara. Í því máli hafi við­kom­andi dóm­ari ekki með rétti verið tal­inn með réttu hand­hafi dóms­valds og dómar hans því dauður bók­stafur.

Vil­hjálmur sagði hætt við því að með vísan í nið­ur­stöðu Hæsta­réttar í miska­bóta­málum umsækj­end­anna sem ekki fengu dóm­ara­emb­ætti að dómur Arn­fríðar myndu hljóta sömu örlög verði ekki fall­ist á kröfu þess efnis að henni verði gert að víkja í mál­inu vegna van­hæfis.

Skipan Arnfríðar brot á réttindum ákærða

Hann sagði kröfu sína byggj­ast á því að þeir ann­markar sem verið hefðu á skipan Arn­fríðar brjóti á rétti skjól­stæð­ings síns til að fá úrlausn sinna mála fyrir sjálf­stæðum og óvil­höllum dóm­stóli. Hann vakti einnig athygli á því að þeir fimmtán dóm­arar sem skipa lands­rétt kjósi for­seta rétt­ar­ins, sem síðan úthlutar málum og ákveður hver sé dóms­for­maður hverju sinni. Því mætti ákærði, skjól­stæð­ingur hans, hafa rétta­mætar efa­semdir um að rétt­indi hans væru tryggð.

„Að þessu sögðu er ásýnd dóms­ins eins og hann er nú skip­aður í máli ákærða ekki sú að dóm­ur­inn sé sjálf­stæður eða nægi­lega óháður.“

Vil­hjálmur velti upp nokkrum spurn­ingum, meðal ann­ars: hvers vegna dóms­mála­ráð­herra hafi verið svo mikið í mun að skipa Arnfríði Ein­ars­dóttur í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt? Hvers vegna voru hæf­ustu umsækj­end­urnir sam­kvæmt ítar­legu og rök­studdu áliti dóm­nefndar ekki skip­aðir? Hvers vegna ráð­herra hafi kosið að brjóta lög og setja póli­tískt líf sitt að veði til að Arn­fríður gæti orðið lands­rétt­ar­dóm­ari? Hvernig Arn­fríður og hinir þrír dóm­ar­arnir, sem ekki voru meðal 15 hæf­ustu að mati dóm­nefndar, hafi greitt atkvæði í for­seta kjöri Lands­réttar og hvort atkvæði þess­ara fjög­urra dóm­ara hafi ráðið úrslitum um það hver vald­ist til for­sætis í Lands­rétti? Og hvers vegna for­seti Lands­réttar hafi úthlutað þessu máli til Arn­fríðar Ein­ars­dóttur?

„Auðvitað verður þessum spurn­ingum ekki svarað með vissu, en sú stað­reynd að ákærði má með réttu leiða hug­ann að þeim gerir það að verkum að ásýnd dóms­ins, hlut­rænt séð, er ekki sú að hann sé sjálf­stæður,“ sagði Vil­hjálmur að lokum og bætti því að við að að öllu þessu virtu væru fyrir hendi atvik eða aðstæður sem séu til þess fallnar að draga megi óhlut­drægni Arn­fríðar með réttu í efa og krafð­ist þess að hún verði úrskurðuð van­hæf til þess að dæma í mál­inu og gert að víkja sæti.

Meðan á öllu þessu stóð sat dóms­for­mað­ur­inn, Arn­fríður Ein­ars­dóttir, fimm metrum fyrir framan Vilhjálm.

Af hverju var Arnfríður ekki meðal 15 hæfustu?

Að loknum mál­flutn­ingi Vil­hjálms tók sak­sókn­ar­inn Jón H.B. við. Hann gerði þær kröfur að kröfu Vil­hjálms yrði vísað frá og til vara að henni verði hafnað.

Jón sagði eðli­legt að fjalla almennt um hæfi dóm­ara en vakti athygli á því að eng­inn sé skip­aður dóm­ari í Lands­rétti nema hann upp­fylli almenn hæf­is­skil­yrði sam­kvæmt lögum. Fyrir liggi að allir þeir 33 sem sóttu um emb­ættin fimtán hafi upp­fyllt þessi hæf­is­skil­yrði til þess að það mætti skipa þá sem dóm­ara. Jón gerði athug­semd við að Vil­hjálmur hefði vísað til Hæsta­rétt­ar­dómanna þar sem fjallað var um miska­bóta­kröfur umsækj­end­anna þar sem þeir hafi ekki fjallað um skipun Arn­fríðar eða skipun ein­stakra dóm­ara

Jón vakti einnig athygli á að í dómum þessum hafi verið tekið fram að ráð­herra hafi verið óheim­ilt að skipa í dóm­ara­emb­ætti mann sem dóm­nefnd hafi ekki talið hæf­astan, en víkja hafi mátt frá því ef Alþingi sam­þykki til­lögu ráð­herra þess efnis. Hann sagði lögin skýr um það að þegar ráð­herra hafi fengið nefnd­ar­á­litið í hendur þá hafi hann val um að skoða og rann­saka þetta nefnd­ar­á­lit og leggja það fyrir Alþingi óbreytt eða gera breyt­ingu á því. Það sé alveg skýrt að ráð­herra hafi heim­ild til þess og þurfi vænt­an­lega að und­ir­búa málið fyrir Alþingi þannig að það liggi ljóst fyrir, ef hann gerir breyt­ingu, hver sé ástæða breyt­ing­ar­innar.

Jón vék tal­inu að lista hæfn­is­nefnd­ar­innar sem ráð­herra fékk í hendur með mati á öllum umsækj­end­unum. „Það er hægt að spyrja sig af hverju var Arn­fríður Ein­ars­dóttir ekki á meðal fimmtán hæf­ustu,“ spurði Jón og sagði ráð­herra hafa gert grein fyrir því í þing­inu að efn­is­legar ástæður hafi verið fyrir því að gera breyt­ingar á list­anum því að dóm­ara­reynsla hafi verið van­met­inn þáttur í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar. Um leið og ein­hverjar áherslu­breyt­ingar væru gerðar á mat­inu þá riðlist röð­unin á list­anum.

Forsetinn sagði engin mistök hafa átt sér stað

„Það er eðli­leg og efn­is­leg ástæða hjá ráð­herra að draga fram þennan þátt sem veiga­meiri og með því móti var Arn­fríður Ein­ars­dóttir sem um er fjallað hér færð á meðal fimmtán hæf­ustu. Það fylgdu því rök og ástæður og það var grund­völlur þeirrar ákvörð­unar sem að ráð­herra fékk með­byr með í þing­inu,“ sagði Jón. Hann sagði ráð­herra hafa gert þær ráð­staf­anir sem lög mæli fyrir um og tryggt það gagn­sæi sem sé svo þýð­ing­ar­mikið að sé á allri máls­með­ferð­inni, að það séu ástæður settar fram í til­efni af breyt­ingum á list­anum.

Jón sagði að í þessu máli hefði rétt stjórn­vald, með réttum hætti tekið ákvörð­un­ina og vand­séð hvernig hægt sé að túlka það svo að ákvörð­unin hafi verið í and­stöðu við stjórn­ar­skránna og mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.

Sak­sókn­ar­inn vék að því í lok­inn að for­seti Íslands hafi að end­ingu und­ir­ritað dóm­ara­skip­an­ina og sent frá sér yfir­lýs­ingu sam­dæg­urs um að hann hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að mis­tök hafi ekki átt sér stað við atkvæða­greiðslu þings­ins. Máls­með­ferðin hafi verið í sam­ræmi við lög, þing­venju og þing­sköp áður en hann síðan mót­mælti aftur kröfum verj­and­ans, Vil­hjálms og lagði málið í úrskurð.

Lands­réttur hefur fjórar vikur til að kveða upp úrskurð sinn í mál­inu, en gera má ráð fyrir að það geti vel gerst fljót­lega, jafn­vel í vik­unni.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómarar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár