Jón Steinar vill að dómari í meiðyrðamáli víki

Jón Steinar Gunn­laugs­son vill að dóm­ar­inn í meið­yrða­máli Bene­dikts Boga­sonar gegn honum víki sæti vegna van­hæfis. Vanhæfið á að vera til­komið vegna setu dóm­ar­ans í stjórn Dóm­ara­fé­lags­ins með Skúla Magn­ús­syni sem hefur tjáð sig afger­andi um málið.

Jón Steinar Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari krefst þess að Sandra Bald­vins­dóttir dóm­ari í máli þar sem Benedikt Bogason, núver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, hefur stefnt honum fyrir meið­yrði, víki sæti vegna van­hæfis. Mál­flutn­ingur um hvort dóm­ar­anum beri að víkja sæti vegna þessa fór fram í Hér­aðs­dómi Reykja­ness í dag.

„Dómsmorð“

Aðdrag­andi máls­ins er sá að í bók sinni „Með lognið í fangið - um afglöp Hæsta­réttar eftir hrun“ sem Jón Steinar gaf út í nóv­em­ber í fyrra gagn­rýnir hann Hæsta­rétt harð­lega og full­yrðir að dóm­ur­inn hafi brugð­ist þjóð­inni við með­ferð dóms­mála í kjöl­far efna­hags­hruns­ins.

[links]Í kjöl­farið stefndi Benedikt Jóni fyrir meið­yrði og gerir kröfu upp á tvær millj­ónir auk vaxta í miska­bætur sem hann hyggst láta renna til góð­gerð­ar­mála vinn­ist málið, sem og um máls­kostnað.

Ummælin sem Benedikt vill að verði dæmd dauð og ómerk snú­ast meðal ann­ars um það sem Jón Steinar kallar ítrekað í bók­inni „dóms­morð“, til dæmis að við með­ferð Hæsta­réttar á máli Baldurs Gunn­laugs­sonar, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, sem dæmdur var í tveggja ára fang­elsi fyrir inn­herja­svik árið 2012, hafi verið framið „það sem kallað hefur verið dóms­morð“ og að dóm­ar­arnir hafi vitað eða hlotið að vita að sá dómur hafi ekki stað­ist hlut­lausa laga­fram­kvæmd, ásamt öðru.

Vanhæf vegna skoðana formanns Dómarafélagsins?

Gestur Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og lög­maður Jóns Steinars, gerði þá kröfu að dóm­ar­inn í mál­inu Sandra Bald­vins­dóttir víki vegna van­hæfis á þeim grund­velli að hún sé í stjórn Dóm­ara­fé­lags Íslands og á síð­asta aðal­fundi félags­ins, sem og í fjöl­miðlum eftir fund­inn, hafi þáver­andi for­maður þess, Skúli Magn­ús­son, sett fram sjón­ar­mið sem séu þess vald­andi að Jón Steinar geti dregið óhlut­drægni hennar í efa.

[adspot]Í ræðu sinni á aðal­fund­inum, sem hald­inn var þann 24. nóv­em­ber 2017, sagði Skúli meðal ann­ars að Jón Steinar hafi verið einn þeirra sem harð­ast hafi gengið fram í umræðu í fjöl­miðlum um fjár­mál dóm­ara. „Hvort Jón Steinar tók þátt í því að skipu­leggja þessar aðgerðir frá grunni eða hvort hann sam­sam­aði sig þeim, þegar hann varð þess áskynja, verður hann að svara sjálfur fyrir. Hver og einn getur einnig svarað því hvort og með hvaða hætti fram­ganga Jóns Steinars var sam­ræm­an­leg sið­ferð­is­legum skyldum hans sem starf­andi lög­manns sem og skyldum hans sem fyrr­ver­andi dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands. Ekki síst ætti Jón Steinar að reyna að gera það sjálfur,“ sagði Skúli. Um dóms­málið sem Benedikt hafði þá þegar efnt til gegn Jóni Steinari sagði Skúli að ekki væri furðu­legt þótt til­tek­inn dóm­ari, þ.e. Benedikt, hafi misst þol­in­mæð­ina og ákveðið að nota það úrræði sem lögin bjóða honum, að höfða meið­yrða­mál vegna alvar­lega ávirð­inga um störf hans og ann­arra dóm­ara í til­teknu dóms­máli, í ljósi þess að dóm­arar séu í afar þröngri stöðu til að tjá sig opin­ber­lega og verj­ast ómál­efna­legum mál­flutn­ingi og röngum ásök­unum. „Og auð­vitað má gagn­rýna dóm­stóla og úrlausnir þeirra og jafn­vel dóm­ar­ana sjálfa. Það er hins vegar munur á gagn­rýnni umræðu og svo hreinni nið­ur­rifs­starf­semi.“

Gestur vís­aði einnig í orð Skúla Magn­ús­sonar í kvöld­fréttum RÚV sama dag, þar sem hann sagði að ef fjöl­miðlar eða aðrir sæju ekki um að hreinsa svona óhróður upp þannig að hann dæmi sig í raun og veru sjálfur þá hljóti dóm­arar á ein­hverjum tíma­punkti að grípa til við­bragða sem þeir hafi þá sam­kvæmt lögum og „ég lýsi ákveðnum skiln­ingi á því,“ sagði Skúli. Skúli gagn­rýndi einnig að Jón Steinar sjálfur hafi reynt að hafa áhrif á nið­ur­stöðu máls Baldurs í Hæsta­rétti þó að hann hafi sjálfur lýst sig van­hæfan. „Sú atburða­rás sem hann hefur sjálfur lýst og sú aðkoma hans sjálfs sem hann hefur lýst í fjöl­miðlum hún felur auð­vitað í sér eitt­hvað það skýrasta brot á siða­reglum dóm­ara sem hægt er að hugsa sér.“

Gestur sagði Söndru hafa setið í stjórn félags­ins undir for­ystu Skúla sem for­manns og geri enn eftir for­manns­skipti sem urðu á aðal­fund­inum. Hann viti ekki til þess að Sandra hafi gert neinar athuga­semdir við fram­an­greind orð Skúla Magn­ús­sonar, hvorki á aðal­fund­inum sjálfum né opin­ber­lega síðar á öðrum vett­vangi og því hafi Jón rétt­mætar ástæður til að ætla að orð Skúla end­ur­spegli við­horf þeirra sem með honum sátu í stjórn félags­ins, þar með talin Sandra.

Dómstólasýslan skiptir fé milli dómstólanna

Að auki sitji stefn­and­inn, Benedikt Bogason í stjórn nýrrar stjórn­sýslu­stofnun sem kall­ast dóm­stóla­sýslan og veitir henni for­mennsku. Hún ann­ast stjórn­sýslu dóm­stól­anna og sam­kvæmt lögum um stofn­un­ina skiptir stjórn dóm­stóla­sýsl­unnar fé á milli hér­aðs­dóm­stól­anna og komi fram gagn­vart stjórn­völdum, fjöl­miðlum og öðrum í þágu dóm­stól­anna sam­eig­in­lega. Gestur sagði það þannig dóm­stóla­sýsl­unnar, með Benedikt sem for­mann, að skipta fjár­veit­ingum milli hér­aðs­dóm­stól­anna og ákveða hvaða dóm­stóll fengi hvaða upp­hæðir. Þannig væri þetta mál orðið skrítið og deil­urnar stæðu mjög nærri öllum sem að því kæmu. Í þessu ljósi hefði Jón Steinar rétt­mæta ástæðu til að draga það í efa að allt ferlið væri hlut­laust eins og vera bæri.

Í loka­orðum sínum fyrir rétt­inum sagði Gestur: „þegar for­maður félags dóm­ara stendur upp á aðal­fundi og ávarpar fund­inn og er að tala með þeim hætti sem þarna var gert er þá maður sem er settur undir það að dóm­ar­inn í mál­inu eigi að vera sam­stjórn­ar­maður þess sem tók afstöðu til máls­höfð­un­ar­innar með þeim hætti sem for­mað­ur­inn gerði, hefur hann rétt­mæta ástæðu til að ótt­ast að ekki sé um óhlut­drægan dóm­ara að ræði. Þessari spurn­ingu verður dóm­ar­inn sjálfur að svara,“ sagði Gestur.

Sandra ekki samsömuð Skúla Magnússyni

Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður og lög­maður Bene­dikts krafð­ist þess að kröfu Gests yrði hafnað og að dóm­ar­inn sæti áfram. Hann sagði kröfu Gests langsótta, dóm­ur­inn væri sjálf­stæður í störfum sínum sam­kvæmt stjórn­ar­skrá og lögum og skipað hafi verið með lög­form­legum hætti í emb­ætti á sínum tíma. Hann sagði að Sandra yrði ekki sam­sömuð með Skúla Magn­ús­syni, fyrr­ver­andi for­manni dóm­ar­ar­fé­lags­ins, með þeim hætti sem gert sé af hálfu stefnda Jóns Steinars. „Hvað þá að hinn virðu­legi dómur verði gerður ábyrgur fyrir orðum Skúla Magn­ús­sonar eða að á hinum virðu­lega dómi hvíli athafna­skylda til að and­mæla þeim orðum sem Skúli gerði á aðal­fundi félags­ins,“ sagði Vil­hjálmur og sagði þetta liggja í „augun úti“ og vís­aði í texta hljóm­sveit­ar­innar Purrkur Pillnikk í lag­inu Augun úti - sem létti furðu lítið and­rúms­loftið í dóm­salnum.

Vil­hjálmur sagði dóm­ar­ann bera ábyrgð á sínum eigin orðum, en ekki orðum ann­arra og ekk­ert hafi verið fram komið hvað varðar kröfu eða rök­stuðn­ing sem bendi til þess eða styðji að dóm­ar­inn sé ekki hæfur til að fara með þetta til­tekna mál. Hann lagði sér­staka áherslu á að í hæf­is­reglum felist ekki ein­ungis sú skylda að dóm­ari víki sæti ef hann er van­hæfur, heldur líka sú skylda til þess að fara með mál og víkja ekki sæti ef við­kom­andi dóm­ari er hæfur.

„Enn­fremur er því mót­mælt að Skúli Magn­ús­son hafi í umrætt skipti verið að lýsa skoð­unum stjórnar eða ann­arra stjórn­ar­manna í umrætt skipti,“ sagði Vil­hjálmur og bætti því við að Skúli væri sjálf­stæð per­sóna sem njóti mál­frelsis og verði einn að bera ábyrgð á skoð­unum sínum. Hann sagði að stilla mætti því þannig upp að hefði komið til þess að Skúla sjálfum hefði verið úthlutað þessu máli hefði mátt draga hæfi hans til þess að fara með málið hugs­an­lega í efa, en alls ekki Söndru.

Vil­hjálmur sagð­ist ekki geta séð að starf stefn­anda Bene­dikts sem for­maður dóm­stóla­sýsl­unnar hafi nokkur áhrif í mál­inu, það hafi ekki verið rök­stutt með full­nægj­andi hætti hvers vegna það starf hans ætti að leiða til van­hæfis dóm­ar­ans, sagði það órök­stutt með öllu.

Vil­hjálmur sagði að dóm­ur­inn sé full­kom­lega hæfur og alls ekki van­hæfur í skiln­ingi bæði stjórn­ar­skrár­innar og mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, gerði þá kröfu að dóm­ar­inn Sandra dæmi málið og að kröfu Gests yrði hafnað.

Dómarinn sjálfur, Sandra Bald­vins­dóttir, mun ákvarða hæfi sitt til að sitja áfram eða ekki sem dóm­ari og má búast við nið­ur­stöðu í mál­inu á næstu dögum.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómarar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár