Kvenkyns lögmenn líklegri til að vinna mál í héraði

Kvenkyns mál­flytj­endur skila betri árangri fyrir dóm­stólum og eldri dóm­arar eru lík­legri til að dæma varn­ar­að­ila í vil en þeir sem yngri eru, sam­kvæmt nýrri íslenskri rann­sókn.

Það að vera kvenkyns lögmaður eykur líkur á að mál falli umbjóðandanum í vil samkvæmt nýrri íslenskri rannsókn.
Það að vera kven­kyns lög­maður eykur líkur á að mál falli umbjóð­and­anum í vil sam­kvæmt nýrri íslenskri rann­sókn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kyn lög­manna hefur þýð­ingu, óháð kyni dóm­ara, og kven­kyns lög­menn eru lík­legri til að vinna mál í hér­aðs­dómi en karl­kyns lög­menn. Aldur dóm­ara virð­ist jafn­framt hafa þýð­ingu fyrir úrslit mála þannig að dóm­arar, 50 ára og eldri, eru lík­legri til að dæma varn­ar­að­ila í vil.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri þver­fræði­leg íslenskri rann­sókn á sviði félags­fræði og lög­fræði sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði tíma­rits­ins Stjórn­málum og stjórn­sýslu.

Í rann­sókn­inni eru tengsl kyn­ferðis og ald­urs dóm­ara og lög­manna við úrslit dóms­mála í hér­aði könnuð. Að rann­sókn­inni standa Val­gerður Sólnes, dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands, Guðbjörg Linda Rafns­dóttir, pró­fessor við félags­fræði-, mann­fræði- og þjóð­fræði­deild Háskóla Íslands, Benedikt Bogason, pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands og Kjartan Vífill Iversen, rann­sókna­maður við hjúkr­un­ar­fræði­deild Háskóla Íslands.

Í fyrsta sinn sem tengsl kyns og aldurs dómara og lögmanna í héraði við úrslit dómsmála eru könnuð

Þetta er í fyrsta sinn sem rann­sakað er hér á landi með kerf­is­bundnum hætti hvort og þá hvaða tengsl séu á milli kyn­ferðis og ald­urs dóm­ara og mál­flytj­enda ann­ars vegar og nið­ur­staðna dóms­úr­lausna hins vegar. Rann­sóknin laut að því að greina upp­lýs­ingar um kyn­ferði og aldur dóm­ara og mál­flytj­enda í þeim dóms­úr­lausnum í einka­málum, sem kærðar hafa verið eða áfrýjað til Hæsta­réttar og Lands­réttar, á tíu ára tíma­bili.

[adspot]Rann­sakað var hvort tengsl væru á milli þess­ara þátta og úrslita dóms­mál­anna. Nið­ur­stöður hennar gefa til kynna að kyn lög­manna hafi þýð­ingu, óháð kyni dóm­ara, og að kven­kyns mál­flytj­endur til sóknar og varnar auki líkur á að mál falli umbjóð­endum þeirra í vil. Aldur dóm­ara virð­ist jafn­framt hafa þýð­ingu fyrir úrslit mála þannig að dóm­arar, 50 ára og eldri, séu lík­legri til að dæma varn­ar­að­ila í vil, óháð öðrum þáttum.

Enn hallar á konur í lögmennsku

Rann­sak­aðar voru dóms­úr­lausnir í einka­málum sem kærðar hafa verið eða áfrýjað til Hæsta­réttar og Lands­réttar, á tíu ára tíma­bili, frá 1. jan­úar 2019 til 31. des­em­ber 2019. Í ljósi þess að færri konur hafa gegnt störfum dóm­ara og lög­manna og að enn hallar á konur í lög­mennsku er mik­il­vægt að rann­saka tengsl kyn­ferðis og dóms­úr­lausna að mati rann­sak­enda.

Starfs­stétt lög­fræð­inga ein­skorð­að­ist nær ein­göngu við karla til að byrja með en undir lok 20. aldar og í byrjun 21. aldar hafa konur í auknum mæli sóst eftir menntun og störfum í starfs­stétt lög­fræð­inga. Í rann­sókn­inni er bent á að árið 2019 útskrif­uð­ust 127 nem­endur með meistara­gráðu í lög­fræði frá íslenskum háskólum, þar af 76 konur og 51 karl. Konur voru þannig 60% braut­skráðra nem­enda með meist­ara­próf í lög­fræði það ár. Á hinn bóg­inn hefur konum ekki fjölgað jafn hratt meðal starf­andi lög­manna og full­trúa á lög­manns­stofum.

Hvað varðar kyn dóm­ara voru 42 karlar og 23 konur dóm­arar árið 2019. Þar af voru í Hæsta­rétti sjö karlar og ein kona, í Lands­rétti átta karlar og sjö konur og hjá hér­aðs­dóm­stól­unum 27 karlar og 15 konur dóm­arar. „Á þessu var gerð brag­ar­bót árið 2020 með skipun tveggja kvenna í dóm­ara­emb­ætti við Hæsta­rétt, en eftir það sátu í Hæsta­rétti þrjár konur og fjórir karlar,“ segir í grein rann­sak­enda.

Niðurstöðurnar kalla á frekari rannsóknir

Í rann­sókn­inni var gerð grein­ing á þeim dóms­úr­lausnum í einka­málum sem kærðar hafa verið eða áfrýjað til Hæsta­réttar og Lands­réttar á tíu ára tíma­bili og gögnum safnað um kyn­ferði og aldur dóm­ara og mál­flytj­enda í þessum málum. Spurt var hvort tengsl væru á milli kyn­ferðis og ald­urs ann­ars vegar og úrslita dóms­mál­anna hins vegar.

Eins og fyrr segir gefa nið­ur­stöð­urnar til kynna að það að vera kven­kyns mál­flytj­andi til sóknar og varnar eykur líkur á að mál falli umbjóð­and­anum í vil. Aldur dóm­ara virð­ist jafn­framt hafa tengsl við úrslit mála í þá veru að dóm­arar sem eru 50 ára eða eldri virð­ast hafa til­hneig­ingu til að dæma frekar varn­ar­að­ila í vil en dóm­arar sem eru 49 eða yngri.

Rann­sak­endur segja nið­ur­stöð­urnar athygl­is­verðar og kalli á frek­ari rann­sóknir á því hvað veldur. „Þar sem mikið er fjallað stöðu íslenskra kvenna á kynja­bilskvarð­anum sem stjórn­völd hafa nýtt til að vekja jákvæða athygli á landi og þjóð, þrátt fyrir aug­ljósa van­kanta kvarð­ans, þá væri t.d. áhuga­vert að gera sam­an­burð­ar­rann­sókn á nið­ur­stöð­unum hér á landi og í þeim löndum þar sem heild­ar­skor kvenna á kynja­bilskvarð­anum er ekki eins gott,“ segir í grein rann­sak­enda.

Ekki ljóst hvað veldur því að kvenkyns lögmenn skili betri árangri

Þá hvetja rann­sak­endur til að þær spurn­ingar sem upp vakna við nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar verði rann­sak­aðar frekar. „Til dæmis svarar rann­sóknin því ekki af hverju kven­kyns mál­flytj­endur skili betri árangri fyrir dóm­stólum eða hvað það þýði að eldri dóm­arar séu lík­legri til að dæma varn­ar­að­ila í vil en þeir sem yngri eru,“ segir í grein rann­sak­enda.

Með rann­sókn­inni og nið­ur­stöðum hennar vona höf­undar að nið­ur­stöð­urnar gagn­ist umræð­unni um starf­semi dóm­stóla og jafn­rétti og hvetji til frek­ari rann­sókna á því sviði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómarar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár