Vilhjálmur kærir niðurstöðuna til Hæstaréttar

Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son ætlar, fyrir hönd umbjóð­anda síns, að kæra nið­ur­stöðu Lands­réttar um hæfi Arn­fríðar Ein­ars­dóttur dóm­ara til Hæsta­réttar.

Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son ætlar, fyrir hönd umbjóð­anda síns, að kæra nið­ur­stöðu Lands­réttar um hæfi Arn­fríðar Ein­ars­dóttur dóm­ara til Hæsta­réttar.

Í sam­tali við Kjarnann segir Vil­hjálmur að eftir að hann hafi farið yfir nið­ur­stöð­una með umbjóð­anda sínum fyrr í dag sé það ákvörðun hans að hann vilji kæra. Vil­hjálmur seg­ist hafa fulla trú á Hæsta­rétti Íslands þegar hann er spurður hvort hann sé von­góður um að nið­ur­staðan þar verði með öðrum hætti en í dag. „Ef ég væri ekki þeirrar skoð­unar að við­kom­andi dóm­ara bæri að víkja sæti með vísan til þeirra rétt­ar­reglna sem að um hæfi dóm­ara gilda þá hefði krafan aldrei verið lögð fram.“ Hann seg­ist treysta Hæsta­rétti til að skila nið­ur­stöðu sem sé í sam­ræmi við lög og að við­kom­andi dóm­ara verði gert að víkja sæti í mál­inu.

[links]Aðspurður um hvort umbjóð­andi hans hygg­ist fara enn lengra með málið kom­ist Hæsti­réttur að sömu nið­ur­stöðu segir Vil­hjálmur að það verði bara að koma í ljós. „Þetta er nið­ur­staða Lands­réttar. Ég ætla nú ekki að segja að hún komi á óvart. Það er nú bara þannig að eng­inn er dóm­ari í eigin sök en ég ber fullt traust til Hæsta­réttar og vona að þess­ari eyði­merk­ur­ferð íslensks rétt­ar­kerfis ljúki þar,“ segir Vil­hjálmur.

Skipun Arnfríðar verði ekki haggað

Vil­hjálmur gerði þá kröfu að Arn­fríður viki sæti þar sem hún var einn þeirra fjög­urra dóm­ara sem skip­aðir voru í rétt­inn af Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra þrátt fyrir að vera ekki meðal þeirra sem hæfn­is­nefnd hafði talist hæf­asta til að gegna emb­ætt­inu.

Lands­réttur hafn­aði kröfu Vil­hjálms fyrr í dag og sagði að skip­un­inni yrði ekki haggað. Alþingi hafi sam­þykkt skip­un­ina og á þeim grund­velli hafi for­seti Íslands skipað hana. Þá liggi fyrir að Arn­fríður upp­fylli og upp­fyllti við skip­un­ina almenn hæf­is­skil­yrði sam­kvæmt lögum um dóm­stóla. Sem skip­uðum dóm­ara beri henni að rækja þann starfa sem emb­ætt­inu fylgir í sam­ræmi við stjórn­ar­skránna. Þá njóti hún sjálf­stæðis í emb­ætt­is­at­höfnum sín­um, meðal ann­ars gagn­vart ráð­herra sem gerði til­lögu um skipan hennar í emb­ætt­ið.

Réttur til að fá úrlausn fyrir sjálfstæðum og óvilhöllum dómstóli

Í mál­flutn­ingi fyrir Lands­rétti þar sem tek­ist var á um hæfi Arn­fríðar kom fram í máli Vil­hjálms að Hæsti­réttur hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu, í bóta­málum tveggja þeirra umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, þar sem þeim voru dæmdar miska­bætur vegna brota á máls­með­ferð­inni við skipan dóm­ar­anna fimmt­án, að máls­með­ferðin við mat á hæfni Arn­fríðar hafi ekki verið í sam­ræmi við lög og gengið gegn lögum um dóm­stóla og stjórn­sýlu­lög og verið í and­stöðu við meg­in­reglu um að ávallt skuli skipa hæf­asta umsækj­anda. „Af öllu fram­an­sögðu er ljóst að Arn­fríður var ekki skipuð í emb­ætti í sam­ræmi við lög eins og er for­taks­laust skil­yrði 59. greinar stjórn­ar­skrár og 2. máls­liðar 1. máls­grein­ar. 6. greinar mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu,“ sagði Vil­hjálm­ur.

Hann sagði kröfu sína byggj­ast á því að þeir ann­markar sem verið hefðu á skipan Arn­fríðar brjóti á rétti skjól­stæð­ings síns til að fá úrlausn sinna mála fyrir sjálf­stæðum og óvil­höllum dóm­stóli. Hann vakti einnig athygli á því að þeir fimmtán dóm­arar sem skipa lands­rétt kjósi for­seta rétt­ar­ins, sem síðan úthlutar málum og ákveður hver sé dóms­for­maður hverju sinni. Því mætti ákærði, skjól­stæð­ingur hans, hafa rétta­mætar efa­semdir um að rétt­indi hans væru tryggð. „Að þessu sögðu er ásýnd dóms­ins eins og hann er nú skip­aður í máli ákærða ekki sú að dóm­ur­inn sé sjálf­stæður eða nægi­lega óháð­ur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómarar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár