Annmarkar Sigríðar ekki nægir til að breyta niðurstöðunni

Með stað­fest­ingu Hæsta­réttar á dómi Lands­réttar í dag í máli þar sem tek­ist var á um hæfi dóm­ara við Lands­rétt er mik­illi óvissu í íslensku rétt­ar­kerfi eytt - í það minnsta tíma­bundið.

Með stað­fest­ingu Hæsta­réttar á dómi Lands­réttar í dag í máli þar sem tek­ist var á um hæfi dóm­ara við Lands­rétt er mik­illi óvissu í íslensku rétt­ar­kerfi eytt - í það minnsta tíma­bundið.

[links]Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son lög­maður gerði fyrir hönd skjól­stæð­ings síns, í máli sem sner­ist aðal­lega um umferð­ar­laga­brot, þá kröfu að við­kom­andi yrði sýkn­aður á þeim grund­velli að einn dóm­ara í Lands­rétti, Arn­fríður Ein­ars­dóttir, hafi ekki verið rétt skipuð sem dóm­ari við rétt­inn.

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra skip­aði Arnfríði og þrjá aðra meðal alls fimmtán dóm­ara við nýjan Lands­rétt, þrátt fyrir að þau hefðu ekki verið meðal þeirra sem dóm­nefnd um hæfi umsækj­enda hafi talið hæf­asta.

Ætlar fyrir Mannréttindadómstólinn

Vil­hjálmur segir í sam­tali við Kjarnann að umbjóð­andi hans hafi falið sér að skjóta mál­inu áfram til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. „Miðað við dóma­fram­kvæmd hans þá tel ég að það sé áfram­hald­andi stór­kost­leg réttaró­vissa á Íslandi eftir þennan dóm Hæsta­réttar,“ segir Vil­hjálmur.

Hæsti­réttur gerir í rök­stuðn­ingi sínum skýr­ingar dóms­mála­ráð­herra að umtals­efni.

Rétt­ur­inn segir meðal ann­ars að þegar metið sé hvort ákærði hafi vegna setu Arn­fríðar í dómnum ekki notið rétt­látrar með­ferðar fyrir óháðum og óhlut­drægum dóm­stóli í sam­ræmi við stjórn­ar­skrá og mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, verði að gæta að tveimur dómum Hæsta­réttar frá því í fyrra. Þar var tek­ist á um skaða­bóta­skyldu rík­is­ins til handa ein­stak­linga sem ekki voru skip­aðir dóm­arar þrátt fyrir að hafa verið metnir meðal hæf­ustu umsækj­enda. Þar var því slegið föstu að slíkir ann­markar hafi verið á máls­með­ferð Sigríðar í aðdrag­anda skip­unar lands­rétt­ar­dóm­ar­anna fimmtán að skaða­bóta­skyldu hafi varðar úr hendi íslenska rík­is­ins. Þeir dómar hafa sönn­un­ar­gildi í þessu máli.

Áréttar að dómareynslurökin geta ekki staðist

Þá segir Hæsti­réttur: „Um þetta verður jafn­framt sér­stak­lega að árétta að ekki gat það stað­ist, sem byggt var á í fyrr­nefndu minn­is­blaði dóms­mála­ráð­herra 30. maí 2017, að með því einu að auka vægi dóm­ara­reynslu frá því, sem dóm­nefnd hafði lagt til grund­vallar í stiga­töflu að baki umsögn sinni 19. sama mán­aðar, en byggja að öðru leyti á „full­nægj­andi rann­sókn“ nefnd­ar­innar á ein­stökum mats­þáttum, gæti feng­ist sú nið­ur­staða að fjórir til­teknir umsækj­endur um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt féllu allir, en aðrir ekki, brott úr hópi þeirra fimmtán hæf­ustu og í stað þeirra færð­ust upp í þann hóp fjórir til­teknir umsækj­endur öll með tölu öðrum fremur.“

Þarna ítrekar Hæsti­réttur sjón­ar­mið sín frá skaða­bóta­málum dóm­ar­anna sem ekki voru skip­aðir með því að segja að sú rök­semda­færsla ráð­herra að færa þessa fjóra dóm­ara upp á hæfn­is­list­anum með því að auka vægi dóm­ara­reynslu haldi ekki vatni.

Hins vegar segir dóm­ur­inn að líta verði til þess að skip­unin hefur ekki verið ógilt með dómi og varð að veru­leika með und­ir­ritun for­seta Íslands á skip­un­ar­bréf þeirra. Dóm­ar­arnir fjórir hafi öll full­nægt skil­yrðum laga um skipun í þessi emb­ætti, þar á meðal hæf­is­skil­yrðum.

„Er að þessu öllu virtu ekki næg ástæða til að draga á rétt­mætan hátt í efa að ákærði hafi, þrátt fyrir ann­marka á máls­með­ferð dóms­mála­ráð­herra, fengið notið í Lands­rétti rétt­látrar með­ferðar máls síns fyrir óháðum og óhlut­drægum dóm­endum. Verður því aðal­kröfu ákærða og vara­kröfu hafnað.“

Allur sak­ar­kostn­aður er í dómnum felldur á ríkið, þar á meðal málsvarn­ar­laun Vil­hjálms, 1,2 millj­ónir króna. Það er gert í ljósi þess að dóm­ur­inn veitti leyfi í mál­inu til áfrýj­unar vegna þess að nauð­syn bar til að eyða óvissu um þau atriði sem málið sner­ist um.

Nokkur ár í niðurstöðu

Vil­hjálmur hyggst eins og áður segir skjóta mál­inu fyrir hönd skjól­stæð­ings síns til mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í Strass­borg. Gera má ráð fyrir að ákveði sá dóm­stóll að taka málið fyrir má þó ekki vænta nið­ur­stöðu fyrir en eftir ein­hver ár.

Vil­hjálmur nefndi í mál­flutn­ingi sínum tölu­vert af erlendum dómafor­dæmum máli sínu til stuðn­ings. Bæði frá EFTA-dóm­stólnum sem og mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu.

Athygli vekur að í nið­ur­stöðu Hæsta­réttar er hvergi á þau minnst. Þannig virð­ist dóma­fram­kvæmd til dæmis mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins, sem fyr­ir­séð er að muni fá það hlut­verk að skoða málið, ekki hafa komið til skoð­unar rétt­ar­ins, eða að minnsta kosti ekki með þeim hætti að hann telji þörf á því að taka það fram í for­sendum fyrir niðu­stöðu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómarar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár