Lögmaður vill að dómari víki sæti úr Landsrétti

Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son, lög­maður, lagði fram kröfu í Lands­rétti á föstu­dag um að Arn­fríður Ein­ars­dóttir, dóm­ari við dóm­stól­inn, víki sæti úr dóms­máli sem henni hafði verið úhlutað vegna van­hæfis.

Landsréttur
Lands­réttur Mynd: Bára Huld Beck

Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son, lög­maður, lagði fram kröfu í Lands­rétti á föstu­dag um að Arn­fríður Ein­ars­dóttir, dóm­ari við dóm­stól­inn, víki sæti úr dóms­máli sem henni hafði verið úhlutað vegna van­hæfis. Arn­fríður var einn fjög­urra dóm­ara sem dóms­mála­ráð­herra lagði til að yrði skipuð í stað þeirra fjög­urra sem sér­stök hæfn­is­nefnd mat hæf­asta.

Frá þessu er greint í frétt RÚV í kvöld.

Björn L. Bergsson, skrif­stofu­stjóri Lands­réttar, stað­festir í sam­tali við frétta­stofu RÚV að krafan hafi verið lögð fram fyrir helgi og að tekin verði afstaða til máls­með­ferð­ar­innar á morgun en fyrstu málin verða flutt fyrir Lands­rétti á þriðju­dag.

„Dómarar við dóm­stól­inn úrskurða sjálfir um eigið hæfi og það verða því þeir þrír dóm­arar sem eiga að dæma í umræddu máli sem fá það verk­efni - Arn­fríður, Jóhannes Sig­urðs­son og Þorgeir Ingi Njálsson. Jóhannes og Þorgeir voru báðir í þeim hópi sem hæf­is­nefndin mat hæf­asta.

Vil­hjálmur Hans stað­festi í sam­tali við frétta­stofu að hann hefði lagt kröf­una fram en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.

[links]Samkvæmt upp­lýs­ingum frétta­stofu er krafan meðal ann­ars rök­studd með vísan til nýlegs dóms Evr­ópu­dóm­stóls­ins þar sem skipun dóm­ara í starfs­manna­rétt dóm­stóls­ins var talin ólög­mæt og hún gæti leitt til þess að ómdara hans yrði ómerktir. Þá er einnig vísað til nýlegs dóms EFTA-dóm­stóls­ins þar sem talið var að ann­marki væri á skipun norsk dóm­ara.

Þá er í kröf­unni einnig vísað til dóma Hæsta­réttar í málum Ástráðs Har­alds­sonar og Jóhann­esar Rúnars Jóhann­es­sonar. Hæsti­réttur dæmdi íslenska ríkið til að greiða hvorum um sig 700 þús­und krónur í miska­bætur vegna ólög­legrar máls­með­ferðar við skipan dóm­ara í Lands­rétt,“ segir í frétt RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár