Hæstiréttur veitir leyfi til áfrýjunar í máli landsréttardómara

Hæsti­réttur hefur sam­þykkt að veita leyfi til áfrýj­unar í máli sem Arn­fríður Ein­ars­dóttir dæmdi í Lands­rétti.

Hæsti­réttur hefur sam­þykkt að veita leyfi til áfrýj­unar í máli sem Arn­fríður Ein­ars­dóttir dæmdi í Lands­rétti. Rétt­ur­inn mun því skera úr um hvort Arn­fríður hafi verið með réttu hand­hafi dóms­valds þegar hún dæmdi í mál­inu. Stefnt er að því að dæma í mál­inu fyrir rétt­ar­hlé í júní og fer það því fram fyrir ein­hver ódæmd mál hjá rétt­inum.

Þetta kemur fram í frétt RÚV.

[links]Kjarninn hefur fjallað um málið en for­sagan er sú að Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son, lög­maður, gerði þá kröfu að Arn­fríður viki sæti þar sem hún var einn þeirra fjög­urra dóm­ara sem skip­aðir voru í rétt­inn af Sig­ríði Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra þrátt fyrir að vera ekki meðal þeirra sem hæfn­is­nefnd hafði talist hæf­asta til að gegna emb­ætt­inu.

Lands­réttur hafn­aði kröfu Vil­hjálms þann 22. febr­úar síð­ast­lið­inn og sagði að skip­un­inni yrði ekki hagg­að. Alþingi hafi sam­þykkt skip­un­ina og á þeim grund­velli hafi for­seti Íslands skipað hana. Þá liggi fyrir að Arn­fríður upp­fylli og upp­fyllti við skip­un­ina almenn hæf­is­skil­yrði sam­­kvæmt lögum um dóm­stóla. Sem skip­uðum dóm­­ara beri henni að rækja þann starfa sem emb­ætt­inu fylgir í sam­ræmi við stjórn­­­ar­­skránna. Þá njóti hún sjálf­­stæðis í emb­ætt­is­at­höfnum sín­um, meðal ann­­ars gagn­vart ráð­herra sem gerði til­­lögu um skipan hennar í emb­ætt­ið.

Vil­hjálmur sótti um áfrýj­un­ar­leyfi vegna dóms­máls­ins til Hæsta­réttar. Í frétt RÚV kemur fram að hann telji mik­il­vægt að æðsta dóm­stig lands­ins skeri úr um hvort skipan Arn­fríðar hafi verið lögum sam­kvæmt. Það sé ekki sjálf­gefið að Hæsti­réttur veiti slíkt leyfi. Enn fremur kemur fram að Jón H.B. Snorra­son, sak­sókn­ari í mál­inu, hafi sent Hæsta­rétti bréf fyrir helgi, þar sem fram komi stuðn­ingur hans við að leyfið verði veitt.

Hæsti­réttur féllst svo á það í gær, sam­kvæmt RÚV, að veita áfrýj­un­ar­leyfið. Í bréfi sem rétt­ur­inn sendi aðilum máls­ins segir meðal ann­ars:

Sak­born­ing­ur­inn telur skil­yrði „fyrir veit­ingu áfrýj­un­ar­leyfis vera upp­fyllt þar sem meðal dóm­ara í mál­inu fyrir Lands­rétti hafi verið dóm­ari sem ekki sé með réttu hand­hafi dóms­valds með því að skipun við­kom­andi í emb­ætti hafi ekki verið lögum sam­kvæm. Ákæru­valdið fellst á að mik­il­vægt sé að fá úrlausn Hæsta­réttar um það álita­efni, en telur að nið­ur­staða Lands­réttar um refs­ingu og svipt­ingu öku­réttar [sak­born­ings­ins] sé í sam­ræmi við dóma í sam­bæri­legum málum.

Að virtum gögnum máls­ins er beiðnin sam­þykkt.“

„Þetta er í fyrsta skipti sem Hæsti­réttur veitir leyfi til áfrýj­unar á dómi úr Lands­rétti. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá rétt­inum er stefnt að því að dæma í mál­inu fyrir rétt­ar­hlé, sem hefst seint í júní. Þor­steinn A. Jónsson, skrif­stofu­stjóri Hæsta­réttar, segir að það þýði að dæmt verði í mál­inu áður en dæmt verður í nokkrum fjölda einka­mála sem bíða dóms,“ segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómarar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár