Arnfríður hafnaði vanhæfiskröfunni

Lands­réttur úrskurð­aði í dag að Arn­fríður Ein­ars­dóttir dóm­ari væri ekki van­hæf til að dæma við rétt­inn í ljósi ann­marka á skipun dóm­ar­anna við með­ferð Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra á mál­inu.

Lands­réttur kvað rétt í þessu upp þann úrskurð sinn að Arn­fríður Ein­ars­dóttir væri ekki van­hæf og þurfi þar af leið­andi ekki að víkja sæti í máli er snýr að umferð­ar­laga­broti.

[links]Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður hafði gert þá kröfu að Arn­fríður viki sæti vegna van­hæfis á þeim grund­velli að í ljósi ann­marka á skipun dóm­ara í Lands­rétt sam­kvæmt dómum Hæsta­réttar hefði ákærði í mál­inu rétt­mæta ástæðu til að tor­tryggja óhlut­drægni og sjálf­stæði dóm­ar­ans.

Þessari beiðni var sem fyrr segir hafnað og situr Arn­fríður því áfram.

Vil­hjálmur var staddur erlendis í dag og því mætti Sveinn Andri Sveins­son hæsta­rétt­ar­lög­maður í hans stað. Sveinn óskaði fyrir hönd Vil­hjálms eftir fresti til að taka afstöðu til þess hvort úrskurð­ur­inn yrði kærður til Hæsta­réttar, en til þess hefur hann þriggja sól­ar­hringa frest.

Arnfríður uppfyllir og uppfyllir enn almenn hæfisskilyrði

Í nið­ur­stöðu Lands­réttar kemur meðal ann­ars fram að Alþingi hafi sam­þykkt skipun dóm­ar­anna, í einu lagi. Á þeim grund­velli hafi Arn­fríður verið skipuð dóm­ari af for­seta Íslands. Skipunin sé ótíma­bundin og henni verði ekki haggað. Þá liggi fyrir að Arn­fríður upp­fylli og upp­fyllti við skip­un­ina almenn hæf­is­skil­yrði sam­kvæmt lögum um dóm­stóla. Sem skip­uðum dóm­ara beri henni að rækja þann starfa sem emb­ætt­inu fylgir í sam­ræmi við stjórn­ar­skránna. Þá njóti hún sjálf­stæðis í emb­ætt­is­at­höfnum sínum, meðal ann­ars gagn­vart ráð­herra sem gerði til­lögu um skipan hennar í emb­ættið.

Fram kemur að dóm­arar skuli að sjálfs­dáðum gæta að hæfi sínu til að fara með mál og leysa með úrskurði kröfu um að hann víki sæti sökum van­hæfis. „Til­gangur hæf­is­reglna í rétt­ar­fars­lögum er að tryggja að dóm­ari sitji ekki í máli nema hann sé óhlut­drægur gagn­vart bæði aðilum máls og efni þess. Jafn­framt sé til­gangur þeirra sá að tryggja traust aðil­anna jafnt sem almenn­ings til dóm­stóla með því að koma í veg fyrir að dóm­ari standi að úrlausn máls í til­viki þar sem rétt­mæt tor­tryggni gæti risið um óhlut­drægni hans.“ Þannig birt­ist í hæf­is­reglum útfærsla á þeirri skyldu lög­gjafans sam­kvæmt stjórn­ar­skránni að setja skýrar reglur um hvenær dóm­ari verði tal­inn van­hæfur í máli. Sú skylda grund­vall­ist á skil­yrði ákvæð­is­ins um óhlut­drægan dóm­stól, en það feli í sér áskilnað um að dóm­ari í máli þurfi að vera hlut­laus og að aðilar njóti jafn­ræðis að því leyti, sem ásamt áskiln­aði þess um óháða dóm­stóla sé und­ir­staða þess að maður geti talist njóta rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir þeim.

Ekki deilt um persónulega afstöðu Arnfríðar í málinu

Þannig þurfi atvik eða aðstæður að vera fyrir hendi sem séu til þess fallnar að draga óhlut­drægni dóm­ar­ans í efa. Ekki hafi verið byggt á því að per­sónu­leg afstaða Arn­fríðar til ákærða eða efnis máls hafi verið með þeim hætti að draga megi óhlut­drægni hennar í efa. Heldur hafi ákærði byggt á því að í ljósi ann­marka á skipun dóm­ara í Lands­rétt sam­kvæmt dómum Hæsta­réttar, hafi hann rétt­mæta ástæðu til að tor­tryggja óhlut­drægni hennar og sjálf­stæði. Þannig séu ann­mark­arnir þess eðlis að hún sé ekki með réttu hand­hafi dóms­valds og því ekki bær til að fara með málið.

Þá er rakin lagaum­gjörðin í kringum skipan dóm­ara, að dóm­nefndin meti hæfni umsækj­enda og láti ráð­herra í té umsögn um umsækj­endur. Ráðherra sé óheim­ilt að skipa í dóm­ara­emb­ætti mann sem dóm­nefnd teldi ekki hæf­astan meðal umsækj­enda, hvort heldur einn eða sam­hliða öðrum, nema ef Alþingi sam­þykkti til­lögu ráð­herra um annan umsækj­anda.

Málið hafi verið lagt fyrir Alþingi, líkt og kveðið er á um í grein­ar­gerð með frum­varpi er varð að lögum um dóm­stóla, þar sem fram kemur að í ljósi þess að skip­aðir yrðu 15 dóm­arar í þetta sinn við upp­haf Lands­réttar væri eðli­legt að tryggja aðkomu fleiri en eins valda­hafa rík­is­valds að því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár