Jón Steinar reyndi að hafa áhrif á dómara í máli Baldurs

Benedikt Bogason Hæsta­rétt­ar­dóm­ari hefur stefnt Jóni Steinari Gunn­laugs­syni hrl. fyrir meið­yrði. Í stefn­unni sjálfri er fjallað um það hvernig Jón Steinar hag­aði sér innan dóms­kerf­is­ins þegar mál Baldurs Guð­laugs­sonar var til með­ferðar.

Jón Steinar Gunn­laugs­son hrl. og fyrr­ver­andi dóm­ari við Hæsta­rétt, gengst við því að hafa beitt sam­dóm­ara sína þrýst­ingi þegar mál Baldurs Guð­laugs­sonar var til umfjöll­unar í Hæsta­rétti.

Jón Steinar var van­hæfur í mál­inu vegna vin­áttu við Baldur.

Í stefnu Bene­dikts Boga­sonar hæsta­rétt­ar­dóm­ara á hendur Jóni Steinari eru þessi afskipti sögð brot á lögum um dóm­stóla.

Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld, en umfjöllun um þessi mál verður í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik í kvöld.

Í stefnu Bene­dikts segir að á meðan mál Baldurs var til með­ferðar í Hæsta­rétti; einkum frá því að mál­flutn­ingi lauk og þar til dómur féll, hafi Jón Steinar ítrekað gert sér ferð inn á skrif­stofur dóm­ar­anna í mál­inu þar sem hann „leit­að­ist við að hafa áhrif á hvernig þeir myndu dæma málið efn­is­lega,“ að því er fram kom í frétt RÚV, og er það vitnað beint í stefnu Bene­dikts.

Jón Steinar full­yrðir í nýrri bók, Með lognið í fang­ið, að Hæsti­réttur hafi framið dóms­morð á Baldri Guð­laugs­syni, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, en hann var dæmdur fyrir inn­herja­svik í tengslum við sölu hans á hluta­bréfum í Lands­bank­an­um.

Hæstirétt­ur stað­festi tveggja ára fang­els­is­­dóm yfir Baldri vegna inn­­herj­a­svika og brota í op­in­beru starfi. Einn hæsta­rétt­­ar­­dóm­­ari, Ólaf­ur Börk­ur Þor­­valds­­son, skil­aði sér­á­liti og vildi láta vísa mál­inu frá.

Bald­ur var ákærður fyr­ir inn­­herj­a­­svik og brot í op­in­beru starf­i þegar hann seldi hluta­bréf í Lands­­bank­an­um 17. og 18. sept­­em­ber 2008. Bald­ur var þá ráðu­neyt­is­­stjóri, eins og áður seg­ir, og sat í sam­ráðs­hópi ís­­lenskra stjórn­­­valda um fjár­­­mála­­stöðug­­leika. Sölu­and­virði bréf­anna, 192 millj­ónir króna, var einnig gert upp­tækt.

Bene­dikt krefst þess að fimm ummæli í bók­inni verði dæmd dauð og ómerk, að því er fram kemur í frétt RÚV, en þau snúa að full­yrð­ingum Jóns Stein­ars um að dóms­morð hafi verið framið. „Dóms­morð er... dráp af ásettu ráði, þar sem rétt­ar­farið verður að morð­tól­in­u,“ ­skrifar Jón Steinar í bók sinni og vísar þar til gam­allar skil­grein­ingar á hug­tak­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár