Eiríkur stefnir íslenska ríkinu vegna lögbrots dómsmálaráðherra

Eiríkur Jónsson, einn þeirra fjög­urra sem dóm­nefnd hafði talið hæf­asta til að verða dóm­arar í Lands­rétti en dóms­mála­ráð­herra ákvað ekki að til­nefna, hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu.

Eiríkur Jóns­son laga­pró­fessor við Háskóla Íslands, hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu og krefj­ast bóta vegna ólög­mætra athafna Sig­ríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra þegar hún skip­aði dóm­ara í Lands­rétt. Eiríkur var einn þeirra fjög­urra sem dóm­nefnd hafði talið á meðal 15 hæf­ustu til að starfa í rétt­inum en Sig­ríður vék til hlið­ar. Raunar hafði dóm­nefndin metið Eirík sjö­unda hæf­asta umsækj­and­ann, en hann var samt lát­inn víkja af lista dóms­mála­ráð­herra.

[links]Eiríkur sendi kröfu á rík­is­lög­mann 28. des­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem hann krafð­ist bóta vegna máls­ins. Grímur Sig­urðs­son, lög­maður Eiríks, segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið að íslenska ríkið hafi við­ur­kennt greiðslu miska­bóta en hafnað bóta­skyldu að öðru leyti. „Eiríkur hefur því ákveðið að stefna rík­inu. Stefnu­gerðin er á loka­metrum og verður stefnan birt fyrir rík­inu á næst­unni. Í stefn­unni er ekki sett fram fjár­krafa heldur krafa um við­ur­kenn­ingu á bóta­skyldu. Sú bóta­skyldan er að okkar mati ótví­ræð og nú þegar dæmd, með dómum Hæsta­réttar í málum Jóhann­esar Rúnars Jóhanns­sonar og Ástráðs Har­alds­sonar.“

Braut gegn ákvæðum stjórnsýslulaga

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra ákvað að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­nefndar um skipun 15 dóm­­ara í Lands­rétt í lok maí 2017. Hún ákvað að til­nefna fjóra ein­stak­linga dóm­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­ustu og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­ustu. Alþingi sam­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

[adspot]Ást­ráður Har­alds­son og Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem urðu báðir af dóm­ara­sæti í Lands­rétti vegna ákvörð­unar Sig­ríð­ar, stefndu rík­inu vegna ákvörð­unar Sigríðar. Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu í des­em­ber að Sigríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­nefnd­ar­innar. Í gær birti Stundin svo gögn sem sýna að sér­fræð­ingar stjórn­ar­ráðs­ins höfðu varað ráð­herr­ann við því að svona gæti farið.

Þeir eru báðir starf­andi lög­menn og lögðu ekki fram nein gögn sem gátu sýnt fram á fjár­hagstjón vegna ákvörð­unar ráð­herra. Skorað var á þá fyrir dómi að leggja fram skatt­fram­töl og þar með upp­lýs­ingar um tekjur sínar þannig að unnt væri að taka afstöðu til þess hvort þeir hefðu beðið „fjár­tjón vegna þeirra ákvarð­ana dóms­mála­ráð­herra sem um ræðir í mál­in­u“. Hvor­ugur þeirra gerði slíkt og þess vegna var íslenska ríkið sýknað af við­ur­kenn­ing­ar­kröfu um fjár­tjón. Íslenska rík­inu var hins vegar gert að greiða þeim miska­bætur.

Gætu átt háar bótakröfur

Tveir aðrir menn sem voru á lista dóm­nefndar yfir þá sem átti að skipa dóm­ara höfð­uðu ekki mál. Annar þeirra, Jón Hösk­ulds­son hér­aðs­dóm­ari, sendi hins vegar kröfu á íslenska ríkið eftir að dómur Hæsta­réttar lá fyrir þar sem hann krafði það um skaða- og miska­bætur vegna skip­unar í Lands­rétt. Þeirri kröfu var ekki svarað og Jón hefur nú höfðað mál.

Jón krefst þess að fá bætt mis­mun launa, líf­eyr­is­rétt­inda og ann­arra launa­tengdra rétt­inda dóm­ara við Lands­rétt ann­ars vegar og hér­aðs­dóm­ara hins veg­ar. Jón krefst þess að fá þennan mun greiddan út starfsævi sína, eða í níu ár. Lands­rétt­ar­dóm­arar fá 1,7 millj­ónir króna í laun á mán­uði en hér­aðs­dóm­arar 1,3 millj­ónir króna.

Nú hefur Eiríkur einnig ákveðið að stefna íslenska rík­inu. Hann er, líkt og áður sagði, pró­­fessor við laga­­deild Háskóla Íslands. Hann er fæddur árið 1977 og er því fer­tugur að aldri. Eiríkur á því um 27 ár eftir á vinn­u­­mark­aði miðað við hefð­bund­inn eft­ir­­launa­ald­­ur. Sam­­kvæmt upp­­lýs­ingum á heima­­síðu félags pró­­fess­ora ætti Eiríkur að vera með á bil­inu 659.683 til 727.572 krónur í mán­að­­ar­­laun.

Það er um einni milljón króna frá þeim mán­að­­ar­­launum sem hann hefði haft sem dóm­­ari við Lands­rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár