Katrín svarar fyrir gjörðir Sigríðar Andersen

Stjórn­ar­and­staðan fjöl­mennti í pontu á Alþingi til að spyrja for­sæt­is­ráð­herra út í stöðu Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra eftir dóm Hæsta­réttar þar sem kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að hún hafi brotið stjórn­sýslu­lög.

Katrín Jakobsdóttir, Sigríður Á. Andersen og Helga Vala Helgadóttir.
Katrín Jak­obs­dóttir, Sigríður Á. Andersen og Helga Vala Helga­dóttir. Mynd: Samsett

Stjórn­ar­and­staðan spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra ítrekað út í stöðu Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra á fyrsta fundi Alþingis sem hald­inn var í dag. Eini dag­skrár­liður fund­ar­ins var um stöð­una í stjórn­málum og verk­efnin framundan.

Í and­svari við ræðu Katrínar, sem opn­aði fund­inn þegar hún fór yfir stöð­una á breiðum grund­velli, spurði Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hvað for­sæt­is­ráð­herra ætl­aði að gera til að koma í veg fyrir algjört van­traust á rík­is­stjórn sína vegna afstöðu sinnar til lög­brots dóms­mála­ráð­herra.

Katrín vís­aði í starfs­hóp­inn sem hún hefur skipað um efl­ingu trausts á stjórn­málum og stjórn­sýslu sem ætlað er að fara yfir siða­reglur fram­kvæmda­valds­ins, rík­is­stjórnar og stjórn­sýsl­unnar, setja þeim siða­reglur og reglur um hags­muna­skrán­ingu og að full ástæða sé til að fara yfir þessar reglur og hvernig fram­kvæmd þeirra hefur hingað til verið háttað.

Helga Vala svar­aði því til að það væri gott að skipa starfs­hópa en vand­inn blasi þó við. For­sæt­is­ráð­herra verði að stíga inn í og segja að hér hafi orðið algjört trún­að­ar­rof, farið hafi verið yfir trún­að­ar­mörk og skortur sé á trausti. Bregðast verið við þeim vanda sem blasi við í íslensku dóms­kerfi, í íslensku rétt­ar­kerfi og nefnd sið­fræð­inga og ann­arra mætra ein­stak­linga verði að sýna almenn­ingi að lög beri að virða.

Jón Þór Ólafsson þing­maður Pírata tók í sama streng og Helga Vala. Hann spurði ráð­herra hvort hún ætl­aði á ein­hverjum tíma­punkti, nú þegar ný gögn hafi komið fram, end­ur­skoða afstöðu sína um hvort dóms­mála­ráð­herra geti setið áfram í emb­ætti.

Gunnar Bragi Sveins­son þing­maður Mið­flokks­ins bætti um betur og spurði hvort ráð­herrar væru hafnir yfir lög, hvort þeir þurfi ekki að fara að lögum lands­ins. Ef að dómur falli á ráð­herra hvort hann eigi ekki að axla ábyrgð með ein­hverjum hætti og ef ekki þá af hverju ekki. Eigi hann að axla ábyrgð hvernig sú ábyrgð sé.

Katrín sagð­ist hafa svarað þessum spurn­ingum áður. Ráð­herrar hafi áður fengið á sig dóma, til dæmis fyrir brot á jafn­rétt­islögum, skipu­lags­lögum og svo mætti áfram telja. Stjórn­völdum beri að fara yfir ferlið, það lagaum­hverfi sem skapað hafi verið og þær reglur sem hugs­an­lega þurfi að setja. „Ég tel ekki endi­lega að dómur fyrir brot á lögum leiði til afsagnar ráð­herra,“ sagði Katrín að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár