Lilja ætlar ekki fram gegn Sigmundi Davíð

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra ætlar ekki að bjóða sig fram til for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins gegn Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, sitj­andi for­manni flokks­ins. Hún reiknar þó með því að flokks­þingi flokks­ins, sem á að óbreyttu að fara fram eftir ár, verði flýtt og að það verði haldið fyrir kosn­ingar sem fyr­ir­hug­aðar eru í haust. Þetta kom fram í við­tali við Lilju í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í morgun.

Hún sagði að Sig­mundur Davíð væri nú að tala við flokks­menn út um allt land og að hún haldi að þau sam­töl gangi vel fyrir sig. Sjálf seg­ist Lilja ekki enn hafa ákveðið hvort hún ætli að bjóða sig fram í kom­andi kosn­ingum en að það væri spenn­andi mögu­leiki. Lilja situr sem utan­þings­ráð­herra eftir að hafa verið valin af Fram­sókn­ar­flokknum til að koma inn í rík­is­stjórn þegar Sig­mundur Davíð vék úr stóli for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far Wintris-máls­ins.

Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son, vara­­for­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins og for­­sæt­is­ráð­herra, hefur einnig sagt opin­ber­lega að hann ætli ekki að bjóða sig fram gegn Sig­­mundi Davíð ef sá síð­­­ar­­nefnd­i á­kveður að bjóða sig aftur fram til for­­manns.

Sig­mundur Davíð var í við­tali í sama þætti 22. maí síð­ast­lið­inn, þegar hann snéri til baka eftir frí sem hann fór í eftir að hafa sagt af sér sem for­sæt­is­ráð­herra. Þar sagði Sig­mundur Davíð að hann ætl­aði sér að halda áfram í stjórn­málum, að hann ætl­aði að bjóða sig aftur fram sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins á ný og til þings í haust. Hann sagð­ist gera ráð fyrir því að hann njóti áfram stuðn­ings til þess, og það kæmi honum á óvart ef flokk­ur­inn hans ætl­aði að „láta þessa atburða­r­ás“ hafa áhrif á það, þegar ráð­ist hefði verið að hon­um.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hélt mið­stjórn­ar­fund í byrjun júní. Að honum loknum sögðu flestir þing­menn flokks­ins að þeir reikn­uðu með að Sig­mundur Davíð myndi leiða hann áfram. Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­mað­ur­ Fram­sókn­ar­flokks­ins, gagn­rýndi sumt sem fram fór á fund­inum harð­lega og sagð­ist aldrei hafa orðið vitni við­líkri ­for­ingja­dýrkun og virt­ist vera hjá „fá­mennum en dug­legum hópi inn­an­ Fram­sókn­ar­flokks­ins“. Það væri tölu­verð und­ir­alda í flokknum og hörð gagn­rýn­i hefði komið fram á Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son, á mið­stjórn­ar­fund­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framsóknarflokkur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár