Höskuldur: Aldrei orðið vitni að viðlíkri foringjadýrkun

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að hann hafi aldrei orðið vitni við­líkri for­ingja­dýrkun og virð­ist vera hjá „fámennum en dug­legum hópi innan Fram­sókn­ar­flokks­ins“. Það sé þó tölu­verð und­ir­alda í flokknum og hörð gagn­rýni hafi komið fram á for­manns hans, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, á mið­stjórn­ar­fundi á laug­ar­dag. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Hösk­uldur, sem tap­aði for­manns­kosn­ingum gegn Sigmundi Davíð árið 2009 og síðan leið­toga­sæt­inu í Norð­aust­ur­kjör­dæmi fyrir kosn­ing­arnar 2013, segir hafa miklar áhyggjur af stöðu flokks­ins. Hugsa þurfi um hvort Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ætli að eyða kosn­inga­bar­átt­unni framundan í vörn og í að ræða Panama­skjölin, eða hvort hann vilji ganga til kosn­inga og ræða góð mál. Hann svarar því ekki skýrt hvort hann hyggi á for­manns­fram­boð. Hann hafi þó hugsað sér að bjóða sig aftur fram til Alþingis.

Aðrir þing­menn flokks­ins sem Frétta­blaðið ræddi við segja að þeir hafi upp­lifað fund­inn þannig að Sig­mundur Davíð muni leiða flokk­inn í næstu kosn­ingum.

Í Morg­un­blað­inu er greint frá því að ekki hafi verið borin fram til­laga um að flýta haust­fundi mið­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks­ins á fund­inum á laug­ar­dag, en haust­fund­ur­inn þarf sam­kvæmt lögum flokks­ins að boða til flokks­þings. Þar er haft eftir Karl Garð­ar­syni, þing­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, að lítil sem engin umræða hafi verið um þetta efni á fund­inum á laug­ar­dag. Hann segir marga þeirrar skoð­unar að eðli­legt væri að halda flokks­þing fyrir kosn­ingar, sem ætl­aðar eru í haust. „Þar er ekki aðeins for­manns- og stjórn­ar­kjör heldur er líka stefnan mótuð og sett fyrir kosn­ingar. Þess vegna eru flestir þeirrar skoð­unar að það sé nauð­syn­legt að halda flokks­þing, svo þau mál séu á hreinu.“

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, sagði í gær að hann ætli ekki að bjóða sig fram gegn Sig­mundi Davíð ef sá síð­ar­nefndi ákveður að bjóða sig aftur fram til for­manns. Þetta sagði Sig­urður Ingi í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í gær­morg­un.

Sig­urður Ingi sagði þar að það væri ekk­ert laun­ung­ar­mál að ýmsar raddir væru uppi innan flokks­ins um hvað skyldi gera varð­andi flokks­for­yst­una, en Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far þess að opin­berað var að hann hefði átt aflands­fé­lagið Wintris, skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­un­um, með eig­in­konu sinni. Félag­ið, sem yfir millj­arð króna í eign­um, lýsti kröfum í slitabú föllnu bank­anna. Það er í dag skráð ein­ungis í eigu eig­in­konu Sig­mundar Dav­íðs.

Eig­in­kona Sig­mundar Dav­íðs sagði frá til­vist Wintris á Face­book í mars. Nokkrum dögum áður, þann 11. mars, hafði þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra verið spurður út í félagið í frægu við­tali við sænskan sjón­varps­mann. Það við­tal var síðan sýnt í sér­stökum Kast­ljós­þætti 3. apríl sem fjall­aði um aflands­fé­laga­eign kjör­inna full­trúa á Íslandi. Sig­urður Ingi sagði í Sprengisandi að það hefði verið betra ef Sig­mundur Davíð hefði stigið strax fram og skýrt mál­ið. Hann hefði getað upp­lýst flokk­inn og þjóð­ina alla.

For­sæt­is­ráð­herr­ann sagði það væri alveg öruggt að kosið yrði í haust. Það væri ekki hægt að hætta við kosn­ingar við þær aðstæður sem uppi væru. Þá dragi eng­inn fram­sókn­ar­maður það í efa að mik­il­vægt væri að halda flokks­þing fyrir kosn­ingar í haust og kjósa for­ystu flokks­ins. Sig­urður Ingi sagð­ist styðja Sig­mund Davíð til áfram­hald­andi for­mennsku og að hann myndi ekki bjóða sig fram gegn honum ef Sig­mundur Davíð ákveður að bjóða sig aftur fram.

Sig­mundur Davíð flutti yfir­lits­ræðu á mið­stjórn­ar­fundi Fram­sókn­ar­manna á laug­ar­dag. Þar ræddi hann Wintris-við­talið og sagði m.a. að hann hefði verið leiddur í gildru af fjöl­miðla­­mönnum og að um óþokka­bragð hefði verið að ræða sem snérist um að koma höggi á hann og Fram­­sókn­­ar­­flokk­inn. Sig­­mundur Davíð sagði einnig í ræðu sinn að í ótal skipti hafi verið reynt að ráða hann af dög­um, ekki í eig­in­­­legri merk­ingu, heldur með mann­orðs­morði. Það sé eins og að það séu gefin út heilu dag­blöðin bara til að klekkja á Fram­­­sókn­­­ar­­­flokkn­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framsóknarflokkur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár