Sigmundur Davíð segir ótal marga hafa reynt að mannorðsmyrða sig

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að í ótal skipti hafi verið reynt að ráða hann af dögum, ekki í eig­in­legri merk­ingu, heldur með mann­orðs­morði. Það sé eins og að það séu gefin út heilu dag­blöðin bara til að klekkja á Fram­sókn­ar­flokknum. Þetta er meðal þess sem fram kom í yfir­lits­ræðu hans á mið­stjorn­ar­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins sem nú stendur yfir. Hluti ræð­unnar var spil­aður í hádeg­is­frétta­tíma Bylgj­unnar.

Þar sagði Sig­mundur Davíð að hart hafi verið sótt að Fram­sókn­ar­flokknum og sér sjálfum á kjör­tíma­bil­inu. Fyrri rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna hafi litið svo á að það væri bein­línis rangt að Framsókn væri komin til valda og því hafi strax haf­ist mikil aðför að flokknum og sér. Sú aðför hafi ekki verið mál­efna­leg og ágerst sér­stak­lega eftir að Framsókn fór að skila árangri í því að breyta lof­orðum sínum í verk. „Heimur stjórn­mál­anna er orð­inn býsna harður á tíma inter­nets­ins og sam­fé­lags­miðl­anna. Við höfum ekki farið var­hluta af því,“ sagði Sig­mundur Davíð. Menn hafi talið ástæðu til að skrifa ótrú­lega hluti um sig og beina spjótum sínum að per­sónu sinni, yfir­leitt með kenn­ingum sem stand­ist enga skoðun. Það hafi ótal sinnum verið reynt að ráða hann af dögum, ekki í eig­in­legri merk­ingu, heldur með mann­orðs­morði. Svo virð­ist sem að heilu dag­blöðin séu gefin út bara til að klekkja á Fram­sókn­ar­flokknum.

Talið er að það muni skýr­ast á fund­inum hvort lands­fundi og for­manns­kjöri Fram­sókn­ar­flokks­ins verði flýtt. Fundinum á að ljúka um klukkan 18 í dag.

Snéri aftur í lok maí

Ræðu Sig­mundar Davíðs hafði verið beðið með nokk­urri eft­ir­vænt­ingu, enda var þetta í fyrsta sinn sem hann ávarp­aði Fram­sókn­ar­menn með slíkum hætti frá því hann sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í byrjun apríl. Sú afsögn kom í kjöl­far gríð­ar­fjöl­mennra mót­mæla eftir að Reykja­vik Media og Kastljós höfðu upp­ljóstrað um aflands­fé­laga­eign hans og eig­in­konu hans í sér­stökum Kast­ljós­þætti sem sýndur var 3. apríl, en þau áttu saman félagið Wintris sem skráð er á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Félagið er í dag skráð í eigu eig­in­konu Sig­mundar Davíðs. Auk þess hafði komið í ljós að Wintris átti kröfur í slitabú stóru föllnu bank­anna upp á 523 millj­ónir króna. Kröf­urnar eru vegna skulda­bréfa sem Wintris átti.

Í ræðu sinni í dag sagði Sig­mundur Davíð að honum hafi liðið hræði­lega í kjöl­far Kast­ljós­þátt­ar­ins þar sem „óþokka­bragð“ hafi heppn­ast.

Sig­mundur Davíð snéri aftur úr sjö vikna fríi í lok maí. Sú end­ur­koma hófst í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni 22. maí þar sem hann greindi frá því að hann ætl­aði að halda áfram í stjórn­málum og sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þar sagð­ist hann gera ráð fyrir því að njóta stuðn­ings til þess áfram. Mjög skiptar skoð­anir eru um það á meðal áhrifa­manna í Fram­sókn­ar­flokknum, meðal ann­ars innan þing­flokks­ins hans, hvort Sig­mundur eigi að vera for­maður áfram.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, mun ávarpa mið­stjórn flokks­ins klukkan 14 í dag. Gert er ráð fyrir því sam­kvæmt dag­skrá að ræða hans standi yfir í 15 mín­útur en gert var ráð fyrir því að ræða Sig­mundar Davíðs stæði yfir í 50 mín­útur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár