Sigmundur Davíð ætlar að halda áfram

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins ætlar að halda áfram í stjórn­málum. Hann ætlar að bjóða sig fram sem for­maður flokks­ins á ný og til þings í haust. Þetta kom fram í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun. Hann seg­ist gera ráð fyrir því að hann njóti áfram stuðn­ings til þess, og það kæmi honum á óvart ef flokk­ur­inn hans ætl­aði að „láta þessa atburða­rás“ hafa áhrif á það, þegar ráð­ist hefði verið að honum.

Sig­mundur ræddi í þætt­inum við Pál Magn­ús­son um atburða­rás síð­ustu vikna, frá því að hann fór á fund Ólafs Ragnars Gríms­sonar, for­seta Íslands, í byrjun apríl. Hann gagn­rýndi for­set­ann harð­lega, meðal ann­ars fyrir að hafa brotið trúnað um fund þeirra. Hann sagði for­set­ann hafa rokið til í geðs­hrær­ingu og haldið blaða­manna­fund um málið.

Sig­mundur seg­ist vera að hefja ferð um landið í dag þar sem hann ætli að ræða við kjós­endur. Hann sagð­ist ekki endi­lega gera ráð fyrir því að kosn­ingar verði haldnar í haust, menn hafi haft „ein­hverjar hug­myndir“ um það en það hafi alltaf legið fyrir að það væri bara ef hægt væri að ganga frá öllum stóru mál­unum. „Nú er ég ekki að sjá það ger­ast fyrir sept­em­ber, októ­ber.“ Hann sagð­ist jafn­framt hafa heyrt það, ekki bara í sínum eigin flokki, að það væri ekki hent­ugt að halda kosn­ingar í haust. „Það sem ég heyri menn telji ekki liggja á kosn­ingum í haust, það er enda margt mjög baga­legt við það að fara í kosn­ingar þegar við erum á þeim tíma­punkti að geta farið í sókn.“

Framsókn hafi ekki þvingað hann til afsagnar

Sig­mundur sagði í þætt­inum að flokk­ur­inn hans hafi „engan veg­inn“ þvingað hann til afsagnar. Hann hafi talið að það væri veru­leg hætta á því að rík­is­stjórnin myndi falla og hefði verið upp­lýstur það að ákveðnir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefðu séð tæki­færi til þess að nýta sér þessa stöðu sem upp var komin, jafn­vel að sprengja stjórn­ar­sam­starfið og halda kosn­ingar til að stokka upp í sínum röðum. Þess vegna ákvað hann að segja af sér til að koma í veg fyrir þessa stöðu.

Sig­mundur Davíð taldi ekki á það hætt­andi, að á meðan að æsing­ur­inn var mik­ill, þá þyrfti ein­hvern veg­inn að höggva á hnút­inn og loka ein­hverjum leiðum sem ein­hverjir töldu að væri góð leið til að fella rík­is­stjórn­ina. Það hafi honum tek­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár