Sigmundur Davíð átti Wintris þegar það lýsti kröfum í bú bankanna

For­sæt­is­ráð­herra átti félagið Wintris til 31. des­em­ber 2009. Kröfum Wintris í slitabú föllnu bank­anna var lýst fyrir þann tíma. Sig­mundur Davíð seldi sinn hluta í félag­inu dag­inn áður en að CFC-lög­gjöf tók gildi á Íslandi.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra var eig­andi félags­ins Wintris Inc. þegar það lýsti kröfum í slitabú föllnu bank­anna þriggja. Í sér­stökum Kast­ljós­þætti sem sýndur var í dag kom fram að for­sæt­is­ráð­herra hefði selt helm­ings­hlut sinn í félag­inu til eig­in­konu sinnar á einn banda­ríkja­dal 31. des­em­ber 2009. Samkvæmt kröfu­skrá Lands­banka Íslands lýsti Wintris kröfu í bú hans 30. októ­ber 2009, tveimur mán­uðum áður en að Sig­mundur Davíð seldi hlut sinn í félag­inu til eig­in­konu sinnar. Frestur til að lýsa kröfum í bú Glitnis rann út 26. nóv­em­ber 2009 og í bú Kaup­þings 30. des­em­ber 2009. Þar sem Wintris lýsti kröfum í bú beggja síð­ar­nefndu bank­anna, og fékk þær sam­þykktar, er ljóst að þeirri kröfu var lýst áður en kröfu­lýs­ing­ar­frestur í búin rann út. Því var þeim lýst áður en Sig­mundur Davíð seldi sinn hluta í Wintris til Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, eig­in­konu sinnar, á gaml­árs­dag 2009. Svokölluð CFC-lög­gjöf tók gildi hér­lendis dag­inn eftir, 1. jan­úar 2010.

Lögin kveða meðal ann­ars á um að greiða skuli tekju­skatt hér á landi af hagn­aði félags sem íslenskur skatt­að­ili á en er í lág­skatta­ríki. Íslend­ingar sem eiga félög á lág­skatta­svæðum eiga að skila sér­stöku fram­tali með skatt­fram­tal­inu sínu vegna þessa, skýrslu ásamt grein­ar­gerð þar sem meðal ann­ars eru sund­ur­lið­aðar tekjur, skatta­legar leið­rétt­ingar, arðsút­hlutun og útreikn­ingur á hlut­deild í hagn­aði eða tapi á grund­velli árs­reikn­inga, sem eiga að fylgja með. Ef það er ekki gert brýtur það í bága við lög um tekju­skatt.

For­sæt­is­ráð­herra­hjónin hafa ekki viljað svara fyr­ir­spurnum Kjarnans um hvort Wintris hafi skilað skýrslu ásamt grein­ar­gerð í sam­ræmi við CFC-lög­gjöf­ina.

Wintris á kröfur upp á rúman hálfan milljarð

Wintris lýsti sam­tals kröfum upp á 523 millj­ónir króna í bú bank­anna þriggja. Miðað við væntar end­ur­heimtir mun félagið fá rúm­lega 120 millj­ónir króna upp í þær kröfur. Kröf­urnar eru til­komnar vegna þess að félagið keypti skulda­bréf á bank­anna þrjá fyrir hrun.

Sig­mundur Davíð var kjör­inn for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í upp­hafi árs 2009. Hann hefur setið á þingi frá því í apríl það sama ár. Sig­mundur Davíð var því orð­inn þing­maður þegar félag hans lýsti kröfum í bú bank­anna. Sig­mundur Davíð varð síðan for­sæt­is­ráð­herra eftir alþing­is­kosn­ing­arnar 2013. Á meðal þeirra mála sem rík­is­stjórn hans stóð frammi fyrir að taka á var áætlun um losun hafta og slit búa föllnu bank­anna. Eftir margra ára und­ir­bún­ing náð­ist end­an­legt sam­komu­lag við kröfu­hafa föllnu bank­anna síðla árs 2015 sem gerði þeim kleift að slíta búunum gegn greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags.

[adspot]

Sig­mundur Davíð kom beint að þeirri vinnu með setu sinni í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og með setu sinni í rík­is­stjórn. Hann kom þó ekki að vinnu við slit búanna með þeim hætti að nauð­syn­legt hafi þótt að láta sér­stakar inn­herja­reglur fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins gilda um hann. Þær náðu hins vegar yfir Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, aðstoð­ar­menn hans, starfs­menn ráðu­neyt­is­ins sem komu að vinn­unni og alla sér­fræð­inga sem ráðnir voru til verk­efn­is­ins, þar sem þeir gerðu verk­samn­inga við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið.

Kröfuhafar fá meira en ef skatturinn hefði verið lagður á

Í grein­ar­gerð Seðla­banka Íslands um mat á upp­gjöri föllnu fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja á grund­velli stöð­ug­leika­fram­laga, sem birt var í lok októ­ber 2015, kom fram að stöð­ug­leika­fram­lög myndu nema tæp­lega 379 millj­örðum króna. Sú upp­hæð miðar við að hægt verði að selja Íslands­banka á háu verði, og því gæti fram­lagið mögu­lega orðið umtals­vert lægra.

Í áætlun stjórn­valda sem kynnt var í júní 2015 kom fram að tekjur af 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatti myndi skila rík­is­sjóði 682 millj­örðum króna. Það munar því að minnsta kosti 300 millj­örðum krónum á stöð­ug­leika­fram­lags­leið­inni og stöð­ug­leika­skatts­leið­inni. Því er ljóst að meira var til skipt­anna fyrir kröfu­hafa föllnu bank­anna, meðal ann­ars Wintris, vegna ákvörð­unar um að láta búin greiða stöð­ug­leika­fram­lag en stöð­ug­leika­skattur hefði verið lagður á þau.

Vildi gefa Gróu á leiti frí

Eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra greindi frá til­urð Wintris í stöðu­upp­færslu á Facebook 15. mars síð­ast­lið­inn. Fjórum dögum áður hafði til­vist félags­ins verið borin upp á for­sæt­is­ráð­herra í við­tali í ráð­herra­bú­staðnum í Reykja­vík. Viðtalið tók frétta­maður frá sænska rík­is­sjón­varp­inu ásamt Jóhann­esi Kr. Krist­jáns­syni, hjá Reykja­vík Media. Sig­mundur Davíð gekk út úr við­tal­inu eftir að spurn­ingar um Wintris voru lagðar fyrir hann. Viðtalið var hluti af Kast­ljós­þætti sem sýndur var fyrr í dag. Hann er hluti af viða­miklu sam­starfi fjöl­miðla á alþjóða­vísu með alþjóð­legu rann­sókn­ar­blaða­manna­sam­tök­unum ICIJ, sem hafa und­an­farna mán­uði unnið úr gríð­ar­miklum gagna­leka frá lög­manns­stofu í Panama, sem heitir Mossack Fonseca & Co. Sú stofa stofn­aði meðal ann­ars þús­undir félaga á aflandseyjum fyrir íslenska aðila. Eitt þeirra félaga var Wintris.

Í stöðu­upp­færslu sinni sagði eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra að opin­ber­unin væri meðal ann­ars til­komin vegna þess að gefa ætti Gróu á leiti frí. Þar var ekki minnst á spurn­ingar ofan­greindra blaða­manna um Wintris né við­talið sem for­sæt­is­ráð­herra gekk út úr.

Sig­mundur Davíð birti spurn­ingar og svör sín og eig­in­konu sinnar vegna Wintris-máls­ins á blogg­síðu sinni 27. mars. Þar víkur hann m.a. að skrán­ingu félags­ins og segir að það hafi verið skrá á þau bæði vegna þess að þau hafi verið með sam­eig­in­legan banka­reikn­ing. Anna hafi hins vegar verið eig­andi allra eigna Wintris. „Þegar við ákváðum að gifta okkur fylgdi því að fara yfir ýmis mál, þar á meðal fjár­hags­leg. Um svipað leyti, síðla árs 2009, var skipt um umsýslu­fyr­ir­tæki og þegar starfs­menn þess fóru yfir gögn félags­ins bentu þeir okkur á að við værum bæði skráð hlut­hafar í félag­inu. Við höfðum fram að því ekki hugsað sér­stak­lega út í fyr­ir­komu­lagið sem lagt var upp með af bank­anum í upp­hafi. Það hafði alla tíð verið ljóst í huga okkar beggja að Anna væri eig­andi þess­ara eigna og það hafði ekki breyst þrátt fyrir fyr­ir­hugað brúð­kaup. Þá voru eignir félags­ins og tekjur af þeim færðar Önnu til tekna á skatt­fram­tali hennar. Við sendum því strax svar til baka um að svona ætti þetta ekki að vera og létum breyta því.“

Sig­mundur Davíð og Anna Sig­ur­laug giftu sig í októ­ber 2010, tíu mán­uðum eftir að hlutur Sig­mundar Davíðs í Wintris var seldur til eig­in­konu hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár