Sigmundur Davíð segir Panamaskjölin hafa verið sérstakt „hit-job“

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra segir það liggja fyrir að vog­un­ar­sjóðs­stjór­inn George Soros standi að baki opin­berun Panama­skjal­anna. Argent­ína og Ísland, sem bæði hafa háð rimmur við vog­un­ar­sjóði, hafi fengið sér­staka með­ferð í umfjöllun.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að stjórn­mála­menn í tveimur löndum hafi fengið sér­staka með­ferð þegar unnið var úr upp­lýs­ingum í Panama­skjöl­unum. „Í báðum til­vikum var sér­stakt „hit-job" und­ir­búið mán­uðum saman. Það var í Argent­ínu og á Íslandi. Hvað eiga þessi tvö lönd sam­eig­in­legt? Hverjum hafa þau boðið byrg­inn?“

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslur sem Sig­mundur Davíð hefur sett á Facebook. Tilefnið er umfjöllun um fyrri ummæli hans um aðkomu alþjóð­lega fjár­fest­is­ins George Soros að leka Panama-skjal­anna. Sig­mundur Davíð segir að það sé óþarfi að kalla aðkomu Soros sam­sær­is­kenn­ingu þar sem hún liggi fyrir. Það sem Argent­ína og Ísland eiga sam­eig­in­legt er að hafa tek­ist á við alþjóð­lega vog­un­ar­sjóði sem hafa hagn­ast á efna­hags­á­föllum ríkj­anna tveggja.

Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra eftir að upp­ljóstrað var um það í umfjöllun um Panama­skjölin að hann hafi átt félagið Wintris ásamt eig­in­konu sinni. Það félag er skráð til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, var kröfu­hafi í bú föllnu íslensku bank­anna með kröfur upp á rúm­lega 500 millj­ónir króna og var ekki til­greint í hags­muna­skrán­ingu Sig­mundar Davíðs. Þegar Sig­mundur Davíð var spurður um Wintris í sjón­varps­við­tali þá sagði hann ósatt um til­urð félags­ins og tengsl sín við það.

Sig­mundur Davíð hefur áður haldið því fram að sam­særi hafi verið um að fella hann af stalli. Sú skýr­ing er þannig að erlendir vog­un­ar­sjóðir sem áttu kröfur í bú föllnu bank­anna á Íslandi, og sér­stak­lega vog­un­ar­sjóðs­stjór­inn George Soros, hafi ákveðið að losa sig við Sig­mund Dav­íð.

[adspot]

Sig­mundur Davíð sagði í við­tali við Útvap Sögu í júlí­lok 2016 að árás gegn honum hefði verið „und­ir­búin í sjö mán­uði, í nokkrum löndum og beitt þessum gögn­um, sem að [George] Soros vog­un­ar­sjóð­s­kóngur hafði keypt og greini­lega gat notað að vild.“

Sig­mundur Davíð er þar lík­ast til að vísa í að George Soros hefur gefið fé til að styrkja starf­semi ICIJ, alþjóða­sam­taka rann­sókn­ar­blaða­manna sem unnu að birt­ingu Pana­ma-skjal­anna. Sú pen­inga­gjöf Open Society Foundations - sjóðs sem Soros stofn­aði og stýrir - er hennar m.a. getið á heima­síðu ICIJ og engin leynd er yfir henni. Upp­lýs­ingar um George Soros eru í Panama­skjöl­unum. Í þeim kom fram að hann faldi fé og fjár­magn­aði verk­efni úr fjölda aflands­fé­laga sem eiga heim­il­is­festi á Bresku Jóm­frú­areyj­un­um, á Bermúda og í Panama.

Í við­tali við Morg­un­blaðið í ágúst 2016 sagði Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs að umfjöllun um Panama­skjölin á Íslandi hafi bara snú­ist um að fella Sigmund Davíð sem for­sæt­is­ráð­herra. „Það sáu auð­vitað margir sem vildu ná sér niður á mann­inum sem hafði þvæl­st, svo eftir var tek­ið, fyrir kröf­u­höfum bank­anna og leyst úr stórum málum sem aðrir stjórn­­­mála­­menn höfðu gef­ist upp á að fást við. Miðað við það hversu ljótur leikur þetta var og hvernig þetta teygði sig út fyrir land­­stein­ana þá kæmi mér ekki á óvart þó ein­hverjir úr hópi kröf­u­haf­anna hafi ýtt undir þessa umfjöllun og séð sér veru­­legan hag í því að velta for­­sæt­is­ráð­herra lands­ins úr sessi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

panamaskjöl

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár