Þýska alríkislögreglan miðlar upplýsingum um Sigmund Davíð

Íslensk yfir­völd hafa fengið í hendur upp­lýs­ingar um skatta­mál Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar frá þýsku alrík­is­lög­regl­unni.

Þýska alrík­is­lög­reglan hefur miðlað til íslenskra yfir­valda upp­lýs­ingum um mál­efni Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar sem byggir á rann­sóknum hennar á Panama-skjöl­unum. Frá þessu er greint á RÚV en frétta­stofan hefur þessar upp­lýs­ingar úr grein Süddeutsche Zeitung, sem fjallar um lög­reglu­að­gerðir á grund­velli upp­lýs­inga úr skjöl­unum, sem þýsk yfir­völd ákváðu í sumar að kaupa á fimm millj­ónir evra, jafn­virði um 625 millj­óna íslenskra króna.

Ekki kemur fram í grein Süddeutsche Zeitung hvaða upp­lýs­ingar um Sigmund þetta eru, hvort þær séu nýjar eða hvaða yfir­völd hér landi fengu þær í hendur. Samkvæmt RÚV sé hins hins vegar ekki annað að skilja á fréttum af gagna­kaupum Þjóð­verja í sumar en að þar sé mest­megnis um að ræða sömu gögn og íslenska ríkið ákvað að kaupa á 37 millj­ónir í apríl 2015 og fjöl­miðlar fjöll­uðu svo um í apríl í fyrra.

Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra eftir að upp­ljóstrað var um það í umfjöllun um Panama­skjölin að hann hafi átt félagið Wintris ásamt eig­in­konu sinni. Það félag er skráð til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­un­um, var kröfu­hafi í bú föllnu íslensku bank­anna með kröfur upp á rúm­lega 500 millj­ónir króna og var ekki til­greint í hags­muna­skrán­ingu Sig­mundar Dav­íðs. Þegar Sig­mundur Davíð var spurður um Wintris í sjón­varps­við­tali þá sagði hann ósatt um til­urð félags­ins og tengsl sín við það.

Í frétt RÚV segir að eftir kaupin á gögn­unum í sumar hafi þýska alrík­is­lög­reglan sett á fót sér­stakt teymi til að vinna úr þeim. Í því séu 25 rann­sak­endur og sjö skatta­sér­fræð­ingar sem hafa það hlut­verk að fara í gegnum skjölin og ákveða hvort ráð­ast skuli í aðgerðir gegn þýskum rík­is­borg­urum sem þar er að finna. Í þýsku umfjöll­un­inni komi fram að alrík­is­lög­reglan sé að rann­saka þrjú mál til við­bótar og hafi auk þess vísað sjö málum til sak­sókn­ara sem varði fjár­svik, skatt­svik og pen­inga­þvætti. Þá vinni teymið náið með rann­sak­endum frá öðrum löndum, til dæmis Banda­ríkj­unum, Bret­landi og Frakk­landi. Í því sam­hengi sé upp­lýs­inga­gjöfin til Íslend­inga nefnd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

panamaskjöl

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár