Hljóðupptakan sem er ástæða þess að Sigurður G. má ekki verja Júlíus Vífil

Það sem kemur fram á hljóð­upp­töku frá 6. apríl 2016 er ástæða þess að Sigurður G. Guð­jóns­son má ekki verja Júlíus Vífil Ingv­ars­son, sem grun­aður er um stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti. Sigurður gæti fengið stöðu sak­born­ings í mál­inu.

Embætti Hér­aðs­sak­sókn­ara rann­sakar hvort að Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi gerst sekur um stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti. Frá þessu var greint á vef RÚV í gær.

Júlíus Vífil var einn þeirra stjórn­mála­manna sem voru opin­beraðir í Panama­skjöl­unum og greint var frá í sér­stökum Kast­ljós­þætti sem sýndur var 3. apríl í fyrra. Þar kom fram að hann hefði í árs­byrjun 2014 stofnað félagið Silwood Foundation á Panama. Rík áhersla var lögð á það við stofnun félags­ins að nafn Júlíusar Vífils kæmi hvergi fram í tengslum við félagið. Júlíus Vífill sendi frá sér yfir­lýs­ingu tveimur dögum áður en þátt­ur­inn var sýndur þar sem stóð m.a.: „Allt sem við kemur þessum sjóði er í sam­ræmi við íslensk lög og reglur, enda naut ég sér­fræði­ráð­gjafar til að tryggja að rétti­lega og lög­lega væri að málum staðið. Mér var ráð­lagt að skrá stofnun sjóðs­ins í Panama. Ég hef hvorki fengið neitt greitt úr sjóðnum né haft af honum ann­ars konar tekjur og hef ekki heim­ild til að ráð­stafa fjár­munum úr honum.“ Hann sagði enn fremur að um væri að ræða „eft­ir­launa­sjóð“.

Júlíus Vífill sagði af sér sem borg­ar­full­trúi tveimur dögum eftir að Kast­ljós­þátt­ur­inn var sýndur, eða 5. apríl.

Skattrannsóknarstjóri kærði í janúar

Þann 5. jan­úar síð­ast­lið­inn kærði skatt­rann­sókn­ar­stjóri til emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara vegna meintra brota á skatta­lögum og vegna gruns um pen­inga­þvætti. Við síð­ara brot­inu getur legið allt að sex ára fang­els­is­dómur.

Í kærunni kemur fram að Júlíus Vífill hafi átt fjár­muni á erlendum banka­reikn­ingum að minnsta kosti frá árinu 2005. Frá árinu 2014 hafi þeir verið hjá sviss­neska bank­anum Julius Bär í nafni aflands­fé­lags Júlíusar.

Hér­aðs­sak­sókn­ara barst svo hljóð­upp­taka frá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra þann 27. mars síð­ast­lið­inn. Um svipað leyti var sama upp­taka send á fjöl­miðla. Hana er hægt að heyra í hér að ofan. Upptakan er klippt til. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var sú útgáfa sem barst skatt­rann­sókn­ar­stjóra sú sama og var send á fjöl­miðla og birt á Youtube-rás um svipað leyti.

Á upp­tök­unni má heyra Júlíus Vífill og lög­mann hans, Sigurð G. Guð­jóns­son, ræða um þá fjár­muni sem vistaðir voru í sviss­neska bank­anum við ætt­ingja Júlíusar Vífils, sem höfðu ásakað hann um að hafa komið ætt­ar­auð for­eldra sinna undan og geymt á aflands­reikn­ingum.

Samkvæmt umfjöllun Kastljóss um ásak­anir ætt­ingj­anna, sem eru systk­ini Júlíusar Vífils og erf­ingjar þeirra, sem sýnd var í maí 2016, var umfang þeirra fjár­muna sem ætt­in­gj­arnir telja að Júlíus Vífill hafi haldið frá þeim mörg hund­ruð millj­ónir króna. Pen­ing­ana hafði móðir þeirra ásamt hluta fjöl­skyld­unnar leitað í rúman ára­tug. Um var að ræða sjóð í erlendum banka sem faðir þeirra, Ingvar Helga­son, hafði safnað umboðs­launum frá erlendum bíla­fram­leið­endum inn á alla tíð.

Júlíus Vífill kom í við­tal við Morg­un­blaðið dag­inn eftir að Kast­ljós­þátt­ur­inn var sýndur og sak­aði þar systk­ini sín um að hafa dregið sér tugi millj­óna króna af banka­reikn­ingi móður þeirra. Í yfir­lýs­ingu sagði hann ásak­anir systk­ina sinna vera algjör ósann­indi og ómerki­leg ill­mælgi. Það væri ótrú­lega ófyr­ir­leitið að halda því fram að hann hefði gengið í eða sölsað undir sig sjóði í eigu ann­arra.

Tóku upp fund

Áður­nefnd hljóð­upp­taka var tekin upp á fundi sem fram fór mið­viku­dag­inn 6. apríl 2016, þremur dögum eftir að Kastljós hafði afhjúpað að Júlíus Vífill ætti aflands­fé­lög sem geymdu fjár­muni í sviss­neska bank­anum Julius Bär. Fundinn sátu Júlíus Vífill, lög­maður hans, ætt­ingjar Júlíusar Vífils og lög­menn á þeirra vegum. Fund­ur­inn fór fram á lög­manns­stofu Sigurðar G. Guð­jóns­sonar.

[links]Á upp­tök­unni talar Júlíus Vífill um safn­reikn­inga og jánkar því að hafa kennt látnum bróður sínum um að hafa gengið í sjóð­ina. Af sam­tal­inu er ekki að skilja annað en að Júlíus Vífill við­ur­kenni að fullu til­vist þeirra fjár­muna sem systk­ini hans hafa gert kröfu til og að verið sé að ræða um hvernig sé hægt að koma þeim til þeirra. Síðar hefur Júlíus Vífill hins vegar þrætt fyrir að umræddir sjóðir séu yfir­höfuð til.

Á upp­tök­unni heyr­ist Sigurður, lög­maður Júlíusar Vífils, tala um hvernig best væri að koma þeim pen­ingum sem geymdir eru utan Íslands til systk­ina Júlíusar Vífils. Þar segir hann m.a.: „Peningar ganga ekki á milli manna nema að það séu greiddir af þeim skattar. Við skulum hafa það hug­fast. Á þetta að fara inn í dán­ar­búið og greið­ast þar út sem arður með öðrum skatti? Það getur verið. Og það eru þessar leiðir sem þarf að skoða og finna. Er hægt að færa þessa fjár­muni á nöfn ein­stakra aðila í þeim banka þar sem þeir eru í? Þannig að við­kom­andi aðili bara gerir grein fyrir því á skatta­fram­tali sínu á næsta ári að hann eigi þessa fjár­muni og komi með þá heim og borgi af þeim skatta. Þetta er bara issue, issuið hlýtur að vera það fyrir ykkur, erf­ingja Ingvars Helga­sonar að þið fáið þá sem mest af þessum pen­ingum og minnst af þeim fari í rík­is­sjóð. Þetta liggur fyrir, ég meina Júlíus Vífill er búinn að segja það við ykkur að hann vill koma þessum pen­ingum til systk­ina sinna en það þarf auð­vitað að finna ein­hverja þá leið sem getur leitt til þess að þetta endi ekki allt í skatti.“

Hæstiréttur meinar Sigurði að verja Júlíus Vífil

Júlíus Vífill vildi að Sigurður myndi verja sig í mál­inu sem hér­aðs­sak­sókn­ari rann­sakar nú á hendur honum. Á það vildi hér­aðs­sak­sókn­ari ekki fall­ast þar sem emb­ættið vill kalla Sigurð til skýrslu­töku í mál­inu og það úti­lokar ekki að Sigurður fái stöðu sak­born­ings í því. Ástæðan eru þær ráð­legg­ingar sem Sigurður veitir á hljóð­upp­tök­unni, um hvernig sé hægt að kom­ast hjá því að greiða fjár­mun­ina til systk­ina Júlíusar Vífils án þess að „þetta endi ekki allt í skatti.“

Júlíus Vífill var ósáttur með þetta og fór með það fyrir dóm að Sigurður mætti vera verj­andi hans.

Hér­aðs­dómur stað­festi synjun emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara um að Sigurður mætti ekki verja Júlíus Vífill 25. ágúst síð­ast­lið­inn. Dómari máls­ins, Lár­entsínus Krist­jáns­son, sagði í nið­ur­stöðu sinni að það yrði „ekki betur séð en að lög­maður sókn­ar­að­ila hafi á fund­inum fyrst og fremst lagt áherslu á að skoða þyrfti ofan í kjöl­inn hvernig best væri að standa að slíkri milli­færslu í skatta­legu til­liti. Af end­ur­rit­inu má ráða að með þess­ari áherslu hafi lög­mað­ur­inn verið að gæta með rétt­mætum hætti hags­muna sókn­ar­að­ila með sem bestu móti, eins og honum var skylt.“ Það var því mat hans að ráð­legg­ingar Sigurðar, sem hér­aðs­sak­sókn­ara grunar að geti falið í sér refsi­verða hátt­semi, hafi verið eðli­legar. Hann hafn­aði þó kröfu Júlíusar Vífils, í ljósi þess að kalla ætti Sigurð fyrir til skýrslu­töku.

Þeirri ákvörðun var skotið til Hæsta­réttar sem var mjög afdrátt­ar­laus í sinni nið­ur­stöðu sem féll síð­ast­lið­inn fimmtu­dag: Sigurður getur ekki varið Júlíus Vífil. Rétt­ur­inn stað­festi því úrskurð hér­aðs­dóms. Ekkert liggi fyrir um að til­efni hér­að­sak­sókn­ara um að kalla Sigurð til skýrslu­töku við rann­sókn máls­ins sé til­efn­is­laus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

panamaskjöl

Mest lesið undanfarið ár