Gordon Brown hvetur G20 til að útrýma skattaparadísum

Opið bréf gengur nú um netheima þar sem for­seti Argent­ínu og leið­togar G20 ríkj­anna eru hvattir til að útrýma skattaparadísum og láta þá sem hafa nýtt sér þær taka afleið­ing­unum.

Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands.
Gordon Brown, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Mynd: EPA

Gordon Brown, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur skrifað undir opið bréf þar sem helstu leið­togar heims­ins eru hvattir til að útrýma skattaparadísum og að þeir sem hafi nýtt sér þær verði látnir taka ábyrgð á gjörðum sínum.

Bréfið er einnig stílað á for­seta Argent­ínu, Mauricio Macri, en í því segir að átta rík­ustu ein­stak­lingar heims­ins eigi auð­æfi á við helm­ing mann­kyns.

„Gjáin stækkar, þökk sé meðal ann­ars skugg­sælum skattaparadísum sem láta millj­arða hverfa til aflandseyja úr hag­kerfi okkar. Einmitt núna verða ríkir rík­ari og þau okkar sem sitja eftir borga,“ segir í bréf­inu.

Í bréf­inu kemur einnig fram að fyrir átta árum hafi G20 fall­ist á að binda endi á slíka starf­semi. Nú sé tími til kom­inn að standa við lof­orðið.

Enn fremur segir að eng­inn ætti að kom­ast upp með að sleppa því að sinna skyldum sínum og borga skatta. Það sé á ábyrgð leið­tog­anna að koma því fyrir að svo sé. Sem borg­arar í sam­fé­lagi þjóða krefj­ist þau aðgerða.

Eitt mesta óréttlæti nútímans

Brown seg­ist per­sónu­lega ætla að afhenda for­seta Argent­ínu bréfið. „Sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og aðili í G20 hópnum reyndi ég fyrir átta árum að binda enda á órétt­læti skattaparadísa um allan heim. En eins og Para­dís­ar­skjölin sýna þá eru millj­arðar milli­færðir til útlanda á skugg­sæl­ustu staði hins hnatt­ræna hag­kerfis til að sleppa við það að greiða skatta.

Þetta er eitt mesta órétt­læti dags­ins í dag; að leyfa þeim ríku að standa á hlið­ar­lín­unni á meðan við hin þurfum að greiða fyrir heil­brigð­is­kerfi og menntun og vernda hina varn­ar­lausu í sam­fé­lag­inu.

En núna býðst okkur tæki­færi til að stöðva órétt­lætið í gegnum alþjóð­legan samn­ing sem bannar skattaparadísir og að leggja refs­ingu og fang­els­is­dóma á þá sem skjóta undan skatti. Og leið­togar stærstu efna­hags­svæða heims­ins í G20 hópnum geta látið það ger­ast,“ segir hann og hvetur fólk til að skrifa undir bréfið.

Hann muni biðla til for­set­ans og ann­arra með­lima G20 hóps­ins að ljúka því verki sem hafið var árið 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

panamaskjöl

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár