Systkini Júlíusar Vífils segja Panamasjóð hans eftirlaunasjóð foreldra þeirra

Systkini og syst­ur­sonur Júlíusar Vífils Ingv­ars­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segja að Júlíus hafi við­ur­kennt fyrir þeim að í aflands­fé­lagi hans í Panama hafi verið týndir pen­ingar for­eldra þeirra. Þetta hafi hann gert eftir að Kastljós greindi frá sjóði hans, sem er í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu, í byrjun apríl. Frá þessu var greint í Kast­ljósi í kvöld.

Fjöl­skyldan hefur lengi leitað að þessum sjóðum, sem faðir þeirra sagð­ist hafa átt í erlendum bönkum.

For­eldrar Júlíusar Vífils og systk­ina hans voru Ingvar Helgason og Sigríður Guð­munds­dóttir, sem stofn­uðu og byggðu upp bíla­um­boðið Ingvar Helgason og fyr­ir­tækið Bílheima. Þegar Ingvar lést árið 1999 tóku þrír elstu bræð­urnir í átta systk­ina hópi við rekstr­inum. Guð­mundur, Helgi og Júlíus Vífill tóku við rekstr­inum og þá var fjórði hver bíll á Íslandi frá fyr­ir­tækjum þeirra. Fjórum árum síðar var rekst­ur­inn kom­inn í mik­inn vanda og hann var seldur. Fjöl­skyldan fékk 25 millj­ónir króna. Miklar deilur höfðu þá verið á milli systk­in­anna, bæði voru systk­inin sem ekki voru við stjórn­völ­inn óánægð með að vera haldið utan við ýmsar ákvarð­anir og milli bræðr­anna þriggja sem stjórn­uðu voru líka deilur.

Áður en fyr­ir­tækið var selt, eða í lok 2001, hafði huldu­fé­lag, sem hét Lindos Alliance, fjár­fest fyrir tvær millj­ónir evra í fyr­ir­tækjum fjöl­skyld­unnar. Það þýddi rúm­lega 18 pró­senta hlut. Júlíus Vífill og Guð­mundur kynntu þetta fyrir fjöl­skyld­unni. Fjöl­skyldan fékk aldrei upp­lýs­ingar um það hver var á bak við þetta huldu­fé­lag, en Júlíus Vífill var umboðs­maður þess á hlut­hafa- og stjórn­ar­fundum og hafði umboð til að und­ir­rita samn­inga og taka ákvarð­anir. Félagið var sagt vera í Lúx­em­borg.

Þessi hluti fjöl­skyld­unnar telur að þeir bræður hafi verið á bak við félagið. „Það eru ekki miklar líkur á því að það komi rúmar tvær millj­ónir evra inn í Bílheima og Ingvar Helgason frá ein­hverjum ein­stak­lingi sem að sest ekki í stjórn félags­ins,“ sagði Saga Ýrr Jóns­dóttir, lög­maður Ingvars Ingv­ars­sonar í Kast­ljósi í kvöld.

Týndra sjóða leitað

Vara­sjóð­irnir sem talað er um voru til­komnir vegna þess að Ingvar Helgason hafði alla tíð sett umboðs­laun frá erlendum bíla­fram­leið­endum inn á erlenda banka­reikn­inga. Talið var að um nokkur hund­ruð millj­ónir væri að ræða. Eftir að fyr­ir­tækin fóru úr höndum fjöl­skyld­unnar árið 2004 var farið að spyrj­ast fyrir um þessa vara­sjóði, sem systk­inin segja að faðir þeirra hafi oft sagt þeim frá og Guðrún segir að bræð­urnir sem stjórn­uðu fyr­ir­tæk­inu hafi haft pró­kúru á. Móðir þeirra sendi meðal ann­ars bréf til banka um Evrópu og í Banda­ríkj­unum en án árang­urs.

Þegar móðir systk­in­anna, Sigríður, lést í sept­em­ber fyrir tæpu ári síðan kom fljótt upp ágrein­ingur, að mestu um vara­sjóð­ina, sem ekki eru í dán­ar­bú­inu.

Stuttu eftir ára­mót var ákveðið að kanna hvort hægt væri að finna út eig­endur félags­ins Lindos, sem hafði fjár­fest í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu. Það var gert með hjálp fyr­ir­tæk­is­ins K2, en félagið fannst hins vegar aldrei í Lúx­em­borg, heldur á Tortóla. Félagið er í Panama­skjöl­unum.

Þegar upp­lýs­ingar um aflands­fé­lag Júlíusar Vífils, Silwood foundation, í Kast­ljósi í byrjun apríl segir Guðrún Ingv­ars­dóttir að málið hafi verið sett í nýtt sam­hengi. Það hafi verið líf­eyr­is­sjóður for­eldra þeirra sem hann hafi verið að „díla með“.

Í kjöl­far þess að þau höfðu sam­band við lög­mann Júlíusar segja tvö systk­inin, og syst­ur­sonur Júlíusar, að þau hafi fengið sím­tal frá honum þar sem hann hafi við­ur­kennt að pen­ing­arnir væru upp­runa­lega sjóðir for­eldra þeirra. Faðir þeirra hafi gefið bræðr­unum leyfi til að sjá um sjóð­ina en hann hafi alltaf ætlað að skila þeim aftur inn í dán­ar­búið. Hins vegar segj­ast bæði Júlíus Vífill og Guð­mundur Ágúst nú í gegnum lög­mann sinn að þeir kann­ist ekk­ert við.

Meiri­hluti erf­ingj­anna hefur því ákveðið að reyna að kom­ast til botns í mál­inu með hjálp K2. En í Kast­ljósi í kvöld kom fram að þau teldu alls óvíst hvort tak­ist að end­ur­heimta sjóð­ina með rann­sókn dán­ar­bús­ins.

Júlíus Vífill sagði í yfir­lýs­ingu til Kast­ljóss að allt tal um að hann hafi sölsað undir sig ann­arra manna fé sé ýmist rógur eða ill­mælgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár