Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utanþingsstjórn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, á Bessastöðum 5. apríl síðastliðinn. Hann sagði af sér embættinu síðar sama dag.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, á Bessa­stöðum 5. apríl síð­ast­lið­inn. Hann sagði af sér emb­ætt­inu síðar sama dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson


Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag.

Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann hafi farið til fundar við for­set­ann vegna þess að fyrir hefði legið að Ólafur Ragnar ætl­aði í hádeg­is­fréttir Bylgj­unnar þennan dag að til­kynna um að rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs væri sprungin. Hann var einnig spurður hvort að Ólafur Ragnar hefði verið til­bú­inn með lista yfir utan­þings­ráð­herra sem ættu að sitja í slíkri stjórn undir for­sæti Einars K. Guð­finns­sonar, fyrr­ver­andi for­seta Alþingis. Sig­mundur Davíð svar­aði að hann ætl­aði enn sem komið er að láta vera að svara þessum spurn­ingum en sagði að þessi mál myndu koma í ljós síðar. „Maður fer ekki á Bessa­staði að hitta for­set­ann með skömmum fyr­ir­vara að ástæðu­lausu. Þetta mun allt koma í ljós síðar. Ég mun þá ekki halda fram neinu sem ég get ekki fært sönnur á. Þannig að þegar ég fer yfir þessi mál þá geta menn treyst því að það verði nákvæm lýs­ing á atburðum eins og þeir voru.“Sig­mundur Davíð sagð­ist hafa skrifað alla þessa sögu upp og ætti bara eftir að birta hana á heima­síðu sinni. Það myndi koma að því.

Í við­tal­inu end­ur­tók hann þá sýn sína að hann væri fórn­ar­lamb sam­særis alþjóða­fjár­mála­kerf­is­ins og fjöl­miðla og að Panama­skjölin hafi fyrst og síð­ast verið birt til þess að steypa honum af stóli. Sig­mundur Davíð hélt því fram að Süddeutsche Zeitung, þýska blaðið sem komst yfir Panama­skjölin og vann úr þeim í sam­vinnu við fjöl­miðla út um allan heim, væri í eigu banda­ríska fjár­fest­inga­bank­ans Goldman Sachs. Það er ávirð­ing sem áður hefur komið fram, en Vladimir Pútin, for­seti Rússland, hélt þessu fram í kjöl­far opin­ber­ana um aflands­fé­laga­net aðila tengdum honum sem geymdu mikla fjár­muni. Süddeutsche Zeitung hefur sagt að ávirð­ing­arnar séu rangar. Blaðið sé í eigu austur-þýsks fjöl­miðla­fyr­ir­tækis.

Segist ekki hafa óskað eftir þingrofsheimild

Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar saman dag, þann. 5. apríl. Í við­tal­inu ítrek­aði hann það sem hann hefur áður sagt, að þing­rofs­beiðni hafi ekki verið lögð fram á Bessa­stöðum þennan dag, líkt og Ólafur Ragnar hefur haldið fram.

Sig­mundur Davíð benti á að þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks hafi átt eftir að funda með Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni flokks­ins, þegar Bessa­stað­ar­ferðin átti sér stað, en hann kom heim úr fríi í Banda­ríkj­unum að morgni sama dags.

Bjarni hafði þegar fundað með Sigmundi Davíð um morg­un­inn á fundi sem fór ekki vel. Í kjöl­farið setti Sig­mundur Davíð stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann sagði að ef þing­menn ­Sjálf­stæð­is­flokks­ins treysti sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka ­sam­eig­in­legum verk­efnum hennar myndi hann rjúfa þing og boða til kosn­inga hið ­fyrsta. Í við­tal­inu við Útvarp Sögu sagði Sig­mundur Davíð að hann hafi á þessum tíma enn verið að berj­ast fyrir því að rík­is­stjórn hans myndi halda velli. Það sé þver­öf­ugt við það að rjúfa þing. „En ef að í ljós hefði komið að rík­is­stjórnin hefði ekki meiri­hluta, þá hefði ekki verið nein ástæða til þess að bíða eftir atkvæða­greiðslu í þing­inu, ekki frekar en ´74, þá hefði ég viljað vera til­bú­inn að leggja fram slíka beiðni.“

Sigurður Ingi Jóhanns­son, nú for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði frá því í útvarps­við­tali 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að þing­flokkur flokks­ins hafi verið búinn að taka ákvörðun um að setja Sigmund Davíð af sem for­sæt­is­ráð­herra á þing­flokks­fundi 5. apríl, sem hófst skömmu eftir Bessa­staða­för Sig­mundar Davíð. Ástæðan var trún­að­ar­brestur milli þing­flokks­ins og Sig­mundar Dav­íðs vegna Wintris-­máls­ins og eft­ir­mála þess. Sig­mundur Davíð kom síðar til fund­ar­ins en aðrir þing­menn, meðal ann­ars vegna ferðar hans til Bessa­staða, sem var farin án sam­ráðs við þing­flokk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár